Fréttablaðið - 22.02.2020, Page 93
Lífið í
vikunni
16.02.20-
22.02.20
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@frettabladid.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050:
Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson, hlynur@frettabladid.is , Sigfús Örn Einarsson sigfus@frettabladid.is, Örn Geirsson orn.geirsson@frettabladid.is FÓLK/
SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5077: Atli Bergmann atli@frettabladid.is, Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@
frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is. FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar
Helgason hrannar@frettabladid.is, Viðar Ingi Pétursson vip@frettabladid.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Guðrún Inga Grétarsdóttir gudruninga@frettabladid.is
HUNDAR Í DANSVERK
Íslenski dansflokkurinn frumsýnir
verkið Rythm of Poison þann 28.
febrúar. Upp kom sú hugmynd að
bæta þremur ferfætlingum við í
dansflokkinn meðan á sýningu
verksins stendur.
NÝ PLATA FRÁ GDRN
Í gær kom út ný plata GDRN.
Guðrún Ýr Eyfjörð, eins og hún
heitir réttu nafni, segist þakklát
fyrir að geta starfað við sitt
helsta áhugamál.
UNDAN GEYMSLURYKINU
Stefán Atli Rúnarsson var grunn-
skólagutti með bíódellu þegar
hann eignaðist Astrópíu-plakat
sem hann gróf upp þrettán árum
síðar og kom auðveldlega í verð.
SKILABOÐ FRÁ SKIN
Skunk Anansie spilar á landinu í
þriðja skiptið í haust. Anna Margrét
Káradóttir sendi skilaboð á sveit-
ina fyrir fjórum árum og fékk svar
frá Skin, söngkonu sveitarinnar.
Eftir áralanga þróun og prófanir
höfum við náð markmiði okkar.
Við höfum búið til eina
þróuðustu dýnu heims
Simba tvinndýnan er gerð úr einstakri
samsetningu 2500 keilulaga gorma
og móttækilegs minnissvamps.
Fáðu betri svefn – sama hvert svefnmynstur þitt er.
Komdu og kynntu þér Simba
í næstu Dormaverslun eða á
www.simba.is
V
A
RA
ÁRSINS 2018
B
R
E T L A N
D
HEILSUDÝNUR
Kjörin heilsudýna ársins á
meðal 10.637 þátttakenda í
neytenda könnun KANTAR
TNS í Bretlandi
SIMBA STÆRÐIR VERÐ
Dýna 80 x 200 cm 79.990
Dýna 90 x 200 cm 89.990
Dýna 90 x 210 cm 94.990
Dýna 100 x 200 cm 94.990
Dýna 120 x 200 cm 104.990
Dýna 140 x 200 cm 114.990
Dýna 160 x 200 cm 134.990
Dýna 180 x 200 cm 149.990
Dýna 180 x 210 cm 159.990
Dýna 200 x 200 cm 169.990
OP
IÐ
Á
SU
NN
UD
ÖG
UM
Í
DO
RM
A
SM
ÁR
AT
OR
GI
SIMBA
DÝNURNAR
HENTA BÆÐI Í
HEFÐBUNDIN OG
STILLANLEG
RÚM
Afgreiðslutími Rvk
Mánudaga til föstudaga kl. 11–18.30
Laugardaga kl. 11–17
Sunnudaga kl. 13–17 (Smáratorgi)
www.dorma.is
Holtagörðum, Reykjavík
Smáratorgi, Kópavogi
Dalsbraut 1, Akureyri
Skeiði 1, Ísafirði
At h a f n a m a ð u r i n n Her mann Fannar Valgarðsson hefði orðið 40 ára í dag, 22. febrúar, og af því tilefni verður slegið
upp hressilegum styrktar- og minn-
ingartónleikum í Bæjarbíói í Hafn-
arfirði í dag.
Hemmi, eins og hann var alltaf
kallaður, féll frá langt fyrir aldur
fram þann 9. nóvember 2011 og
síðan þá hefur hinn alþjóðlegi LUV-
dagur verið haldinn hátíðlegur á
afmælisdegi hans.
„Hann var 31 árs að verða 32 ára
þegar hann dó og fyrsti LUV-dagur-
inn var svo bara haldinn á afmælis-
deginum hans, 22. febrúar, strax
2012,“ segir Sara Óskarsdóttir, sem
stóð skyndilega uppi án síns heitt-
elskaða, ung ekkja með lítið barn og
annað á leiðinni.
„Þarna voru kannski einhverjir
eitthvað farnir að skoða gamla
tölvupósta eða fara yfir gömul
samskipti, eins og eðlilegt er þegar
svona gerist og þá var þetta alltaf
svona rauði þráðurinn að hann
skrifaði alltaf LUV, Hemmsó eða
eitthvað álíka og þetta var orðin
hans fasta kveðja.“
Eðlislæg nánd
„Maður fer náttúrlega að hugsa
svo margt upp á nýtt,“ heldur Sara
áfram og segir að í því ferli hafi
hlýjan sem frá Hemma stafaði
verið alltumlykjandi. „Hann var
alltaf rosalega hlýr, eins og margoft
hefur komið fram og þannig kom
þessi hugmynd upp að á afmælis-
deginum hans ætti fólk að hugsa út
í þetta og víkka aðeins út þæginda-
rammann sinn.“
Sara bendir á að vissulega sé
þægindarammi hvers og eins mjög
persónubundinn. „En það var ekki
margt sem honum fannst óþægi-
legt varðandi það, þessa nánd, og
afmælisdagurinn hans er því tilval-
inn til þess að reyna að opna sig svo-
lítið.“ Í sönnum anda Hemma sem
mun ef laust rísa hátt og svífa yfir
styrktartónleikunum sem haldnir
verða í minningu hans í Bæjarbíói í
Hafnarfirði í kvöld.
LUV-tenging kynslóðanna
Á tónleikunum láta margir af
fremstu tónlistarmönnum lands-
ins að sér kveða, til dæmis JóiPé x
Króli, Súrefni, Elísabet Ormslev,
Friðrik Dór Jónsson, Snorri Helga-
son, Saga Garðarsdóttir, Sigríður
Thorlacius, Sigurður Guðmundsson
og Per:Segulsvið.
„Mér finnst svo frábært að allt
þetta unga fólk sé til í að koma og
spila á tónleikunum innan um vini
hans og eldra tónlistarfólk, þannig
að þetta eru einhvern veginn svona
allar kynslóðir að heiðra hann sem
er mjög skemmtilegt,“ segir Sara.
„Síðan er náttúrlega mjög fallegt
að úti í bílskúr hjá mér núna eru
búnar að vera stífar æfingar vegna
þess að Per:Segulsvið tengjast
okkur líka og eru sem sagt kærast-
inn minn og félagar hans að heiðra
minningu mannsins míns heitins.
Það er bara svo dásamlegt hversu
auðveldlega þetta gekk upp og
allir voru til í að vera með. Þetta er
algerlega í hans anda og einhvern
veginn honum að þakka. Eiginlega
einhvern veginn eins og hann sé
óbeint að standa fyrir þessu.“
Allur ágóði af tónleikunum
rennur til Sorgarmiðstöðvar - þjón-
ustumiðstöðvar fyrir syrgjendur og
aðstandendur.
Sorgarmiðstöð sinnir fræðslu og
ráðgjöf til syrgjenda og þeirra sem
vinna að velferð þeirra og er sam-
starfsverkefni fjögurra grasrótar-
félaga á sviði sorgarúrvinnslu. Þau
eru Ný dögun - stuðningur í sorg,
Birta landssamtök, Ljónshjarta og
Gleym mér ei styrktarfélag.
Tónleikarnir hefjast í Bæjarbíói
klukkan 15.30 en húsið verður
opnað hálftíma fyrr, á slaginu
15. Allar nánari upplýsingar um
Sorgarmiðstöð má finna á https://
sorgarmidstod.is/
toti@frettabladid.is
LUV dagurinn þenur
þægindarammana
Fjölskylda og vinir Hermanns Fannars heiðra minningu athafna-
skáldsins sem fyrr á LUV-deginum og nú með styrktartónleikum í
anda Hemma sem var annálaður fyrir sinn opna og hlýja faðm.
Hemmi lifir skælbrosandi eða skellihlæjandi í hjörtum þeirra sem kynntust
honum á allt of stuttri jarðvist og fagna nú LUV-deginum. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
HANN VAR ALLTAF
ROSALEGA HLÝR, EINS
OG MARGOFT HEFUR KOMIÐ
FRAM.
2 2 . F E B R Ú A R 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R52 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð