Morgunblaðið - 18.12.2019, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 18.12.2019, Qupperneq 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. DESEMBER 2019 Farþegar Icelandair greiddu rúm- lega eina milljón króna fyrir kolefn- isjöfnun í gegnum vefsíðu félagsins í október og nóvember á þessu ári. Kol- efnisreiknivél Icelandair fór í loftið 27. september síðastliðinn og gefur farþegum tækifæri til að kolefnis- jafna flugið sitt með viðbótargreiðslu. Samtals var um rúmlega 700 færslur að ræða. Ásdís Ýr Pétursdóttir, upplýsinga- fulltrúi Icelandair, segir að eins og sakir standi séu eru öll framlög notuð til skógræktar á Íslandi í samstarfi við fyrirtækið Kolvið. Samtals var um 600 tonnum af CO2e kolefnisjafnað og þýðir það að um 6.000 trjám verður plantað hjá Kolviði. „Þar sem þetta verkefni hófst seint í haust og aðal- plöntunartímabilinu því lokið, hefur þessum trjáplöntum ekki verið plant- að ennþá,“ segir Ásdís Ýr. Hún segir að Icelandair muni halda áfram að þróa þetta verkefni á nýju ári. „Bæði með það í huga að gera kolefnisjöfnun flugferða enn einfaldari fyrir farþega og skoða hvort við viljum bæta við fleiri samstarfsaðilum,“ segir hún. Í október voru farþegar með vélum Icelandair um 154 þúsund að tölu. Það er því ljóst að aðeins örlítið brot þeirra nýtir sér tækifæri sem félagið býður til að kolefnisjafna ferðalag sitt. gudmundur@mbl.is Trjánum enn ekki plantað  Rúm ein milljón króna í kolefnisjöfnun farþega Icelandair Morgunblaðið/Sigurður Bogi Icelandair Afar fáir farþegar hafa nýtt sér tækifæri til kolefnisjöfnunar. Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is „Ég vona að þessir atburðir auki skilning á því að úrbóta er þörf,“ segir Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, iðnaðar- og nýsköpun- arráðherra. Enn sér ekki fyrir endann á af- leiðingum ofsaveðursins sem gekk yfir landið í síðustu viku. Lands- menn þurfa enn að búa við raf- magnsleysi og truflanir á raf- magni. Allt kerfið er sagt vera viðkvæmt. Innviðir brugðust „Ég efast um að nokkur hafi tal- ið að við ættum yfir höfði okkar verstu rafmagnstruflanir í 25-30 ár og jafnvel leng- ur. Að því leyti stóðu innviðirnir auðvitað ekki undir vænting- um, þó að ýmsir veikleikar í því hafi verið þekkt- ir, til að mynda gamlar línur og berskjölduð tengivirki,“ segir Þórdís Kolbrún þegar hún er spurð hvort ástand raforkukerfis- ins hafi verið verra en talið var í upphafi þessara áfalla. „Sem betur fer hefur samt mikið verið lagt í jörð, mikið yfirbyggt, mikið end- urnýjað og mikið varaafl sett upp á undanförnum árum eins og á Vest- fjörðum. Annars hefði farið enn þá verr. En engin keðja er sterkari en veikasti hlekkurinn og þeir eru of margir, það er ljóst.“ Draga þarf úr tvíverknaði Þórdís Kolbrún lagði fram minn- isblað í ríkisstjórn í september síð- astliðnum um flutningskerfi raf- orku. Þar er rifjað upp að í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar komi fram að flutnings- og dreifi- kerfi raforku verði að mæta betur þörfum atvinnulífs og almennings alls staðar á landinu. Í stjórnarsáttmálanum segir til að mynda: „Forgangsverkefni rík- isstjórnarinnar verður að nýta með sem hagkvæmustum hætti þá orku sem þegar hefur verið virkjuð. Í þeim tilgangi þarf að treysta betur flutnings- og dreifikerfi raforku í landinu, tengja betur lykilsvæði og tryggja afhendingaröryggi raforku um land allt.“ „Það eru mikil tækifæri í því að samþætta leyfisveitingarferlið sem er í einu orði sagt tætingslegt og óskilvirkt. Við eigum að skoða það að sameina skipulagsþætti, um- hverfismat framkvæmda og fram- kvæmdaleyfi í einn og sama far- veginn strax í upphafi. Ekki til að draga úr kröfum eða aðkomu al- mennings heldur einfaldlega til að draga úr tvíverknaði og tímasóun,“ segir ráðherra í svari til Morg- unblaðsins. Í meðfylgjandi grafi má sjá hvernig ráðherra sér fyrir sér að hægt væri að einfalda leyf- isveitingakerfið. Í umræddu minnisblaði er farið yfir lykilverkefni í flutningskerfi raforku og stöðu þeirra: „Veru- legar tafir hafa orðið á mikilvæg- um framkvæmdum í flutningskerfi raforku og er staða þeirra ekki í samræmi við vilja Alþingis eins og hann birtist í þingsályktun nr. 26/ 148, eða vilja ríkisstjórnar sam- anber framangreindar áherslur í stjórnarsáttmála. Fyrir því eru ýmsar ástæður sem m.a. má rekja til núverandi regluverks þegar kemur að leyfisveitingarferlum vegna framkvæmda, sem og máls- hraða innan lykilstofnana.“ Þórdís kveðst vonast til þess að veðurofsinn flýti fyrir því að hægt verði að ráðast í endurbætur á dreifikerfinu. „Landsnet hefur á síðustu árum aðeins getað fram- kvæmt um helminginn af fram- kvæmdaáætlun sinni, ekki vegna fjárskorts heldur vegna tafa í málsmeðferð. Það er því nokkuð augljóst að þar er mestur sársauki, mest þörf á úrbótum, og mestu tækifærin til að skila okkur fram á veginn. Ég bind vonir við vinnuna fram undan og að við sameinumst um mikilvægar breytingar.“ Of margir veikir hlekkir í kerfinu að mati ráðherra Ferlar vegna framkvæmda í fl utningskerfi raforku Hugmynd að samþættri málsmeðferð Aðalskipulag og umhverfi smat áætlana / Mat á umhverfi sahrifum / Framkvæmdaleyfi Lýsing verkefnis og áætlun um umhverfi smat. Unnið af framkvæmdaraðila, sent til „Stjórnsýslueiningar" Kynning og samráð Landsnet vinnur umhverfi smat allra valkosta, kynnir aðalvalkost og sendir til „Stjórnsýslueiningarinnar" „Stjórnsýslueiningin" yfi rfer frummatið og vinnur tillögu ad skipulagi í samræmi vid matið Frummatsskýrsla framkvæmdar/skipulags og tillaga að skipulagi kynnt í samræmi við framlagðan aðalvalkost Matsskýrsla send til „Stjórnsýslueiningar" Stjórnsýslueiningin yfi rfer matsskýrslu og uppfærir skipulag. Veitir samþykki fyrir endanlegu skipulagi og umhverfi smati, sem heimilar framkvæmdaraðila leyfi fyrir framvæmdum Samþykkið er kæranlegt Kerfi sáætlun og um- hverfi smat áætlana Matslýsing umhverfi smats Samráð og kynning 10 ára langtimaáætlun + umhverfi smat 3 ára framkvæmda- áætlun + umhverfi smat Samráð og kynning Uppfærð áætlun send OS Samráð og kynning OS OS afgreiðir áætlun Kæruheimild Núverandi málsmeðferð Aðalskipulag og umhverfi smat áætlana Samræming skipulags- áætlana og kerfi sáætlun Samtal milli Landsnets og sveitarfélaga Skipulagsbreytingar þurfa opinbera kynningu á nokkrum stigum Mögulega þarf deiliskipulag Staðfesting Skipulags- stofnunar á aðal- skipulagsáætlunum Sveitarfélög staðfesta deiliskipulag Kæruheimild vegna deiliskipulags Mat á umhverfi s- áhrifum Tillaga að matsáætlun Samráð og kynning tvisvar í ferlinu Ákörðun Skipu- lagsstofnunar Frummatssk ýrsla Kynning og samráð Matsskýrsla send Skipulagsstofnun Álit Skipulags- stofnunar Framkvæmdaleyfi Undirbúningur umsóknar Gæti þurft samþykki OS Gæti þurft skipulagsbreytingar Samningar við landeigendur Mögulegt eignarnám Framkvæmdaleyfi s- umsóknir Sveitarstjórnir gefa út leyfi og auglýsa Kæruheimild Kerfi sáætlun og um- hverfi smat áætlana Matslýsing umhverfi smats Samráð og kynning 10 ára langtimaáætlun + umhverfi smat 3 ára framkvæmda- áætlun + umhverfi smat Samráð og kynning Uppfærð áætlun send OS Samráð og kynning OS OS afgreiðir áætlun Kæruheimild Heimild: Minnisblað til ríkisstjórnar í september 2019 – Yfi rlit yfi r núverandi málsmeðferð vegna framkvæmda í fl utningskerfi raforku. Hugmyndir um samþættingu ferla. Skrif fram- kvæmdaraðila Samráð Skipulag Staðfesting/ ákvörðun/leyfi stjórnvalds Kæruheimild Samningar „Stjórnsýslueining“ Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir  Þórdís Kolbrún vill endurbætur á dreifikerfi raforku  Vill einfaldari ferla Aðstandendur Leifs heitins Magnúsar Grét- arssonar This- land á Íslandi og í Noregi hafa sent björgunar- og viðbragðsaðilum þakkir sínar: „Í síðustu viku gerðist sá sorg- legi atburður að drengurinn okkar Leif Magnús Grétarsson Thisland lést af slysför- um þegar hann féll í Núpá í Sölva- dal. Í þeirri miklu sorg sem slysinu fylgdi fyrir fjölskyldu og vini Leif Magnúsar vorum við ólýsanlega þakklát fyrir óeigingjarnt starf björgunarsveita, lögreglu, Land- helgisgæslunnar og annarra við- bragðsaðila sem komu að björgunar- aðgerðum við afar erfiðar aðstæður við Núpá. Þarna fundum við fyrst á eigin skinni hve mikilvægt starf björgunarsveita og annarra við- bragðsaðila er, en það skiptir sköp- um fyrir okkur öll þegar veður ger- ast válynd og aðstæður verða nánast óviðráðanlegar. Við upplifðum faglega og fum- lausa framkomu viðbragðsaðila í öll- um samskiptum við okkur aðstand- endur Leif Magnúsar og var mikla nærgætni að finna við allar tilkynn- ingar og upplýsingagjöf í kjölfar slyssins. Þetta veitti okkur styrk og vissu fyrir því að verið var að gera allt sem í mannlegu valdi stóð til að koma dregnum okkar til bjargar. Við erum þakklát ykkur öllum. Við biðjum ykkur Guðs blessunar og gleðilegra jóla. Fyrir hönd fjöl- skyldna Leifs í Noregi og á Íslandi. Grétar Már Óskarsson, Óskar Pétur Friðriksson, Torfhildur Helgadóttir, Valgerður Erla Óskarsdóttir, Brynjólfur Ásgeir Brynjólfsson.“ Senda við- bragðsaðil- um þakkir Leif Magnús Grét- arsson Thisland  Fagleg og fumlaus framkoma þökkuð Viðgerðum á Húsavíkurlínu 1 lauk í gærkvöld og komst hún aftur í rekstur, samkvæmt frétt Lands- nets. Í gær var flutningskerfið á Vestfjörðum tengt Vesturlínu í Mjólká. Skerðingu hjá notendum með skerðanlegan flutning var af- létt og vélar í varaaflstöðinni í Bol- ungarvík stöðvaðar. Tengivirkið í Hrútatungu í Hrútafirði komst aft- ur í rekstur í gærmorgun og sömu- leiðis Sauðárkrókslína eftir hreins- un á tengivirki. gudni@mbl.is Raforkukerfið er aftur að komast í lag

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.