Morgunblaðið - 18.12.2019, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 18.12.2019, Blaðsíða 6
BAKSVIÐ Baldur Arnarson baldura@mbl.is Ólafur Ólafsson, dómstjóri við Hér- aðsdóm Austurlands, en áður við Héraðsdóm Norðurlands eystra, var meðal 37 umsækjenda um embætti dómara við Landsrétt. Fjórir um- sækjendur drógu umsóknir sínar síðan til baka. Skipað var í dómarastöðurnar fyrir lok vorþings 2017 en rétturinn tók til starfa 1. janúar 2018. Til- laga dómsmála- ráðherra um dómara var sam- þykkt á Alþingi. Dómaravalið varð síðar umdeilt. Horfið frá skorblöðum Í Morgunblaðinu í gær var fjallað um nýja umsögn dómnefndar um stöðu eins dómara við Hæstarétt og hvernig þar sé horfið frá fyrri að- ferðafræði. Vísuðu nefndarmenn m.a. til gagnrýni umboðsmanns Al- þingis á notkun skorblaða við hæfnismatið vegna Landsréttar. Þá voru 15 umsækjendur af 33 valdir í Landsrétt á grundvelli 12 matsþátta og munaði aðeins 0,03 á þeim sem voru númer 15 og 16 í hæfnisröðinni. Ólafur kveðst aðspurður fagna þessara stefnubreytingu. „Efnislega fagna ég henni. Ég sótti um stöðu dómara við Landsrétt á sínum tíma, ásamt mörgum öðrum. Í umsóknarferlinu var í mínu tilfelli óskað eftir dómum sem ég hafði kveðið upp, að mig minnir síð- astliðna tólf mánuði. Ég varð auðvit- að við þessu og sendi því nokkurn fjölda dóma, m.a. í sakamálum og í einkamálum. Gat svo sem sent dóma langt aftur í tímann enda hef ég haft dómarastarfið að aðalstarfi alllengi eða frá hausti 1984, fyrst sem dóm- arafulltrúi, en síðan sem settur dóm- ari og skipaður dómari frá árinu 1990,“ segir Ólafur um umsóknar- ferlið. Það hafi því verið honum nokkur vonbrigði að uppgötva að þessi gögn og dómar hafi aðeins fengið tak- markaða eða alls enga skoðun hjá þáverandi nefndarmönnum. Það sama hafi væntanlega gilt um aðra umsækjendur og þá á öðrum svið- um, til dæmis fræðimennsku eða lögmennsku. „Þannig að ég fagna því að breytt hafi verið um vinnubrögð og þannig m.a. farið eftir áliti umboðsmanns Alþingis,“ segir Ólafur. Samkvæmt stjórnsýslulögum ber stjórnvöldum að gæta samræmis og jafnræðis í lagalegu tilliti við úr- lausn mála. Spurður hvort sjálf- stæðri stjórnsýslunefnd, í þessu til- viki dómnefndinni, sé heimilt að viðhafa annan rökstuðning fyrir vali sínu en til dæmis dómnefndin sem valdi dómaraefni í Landsrétt segir Ólafur ósamræmið óheppilegt. Þannig sé „óheppilegt að slík kú- vending verði frá valinu 2017 eins og nú virðist verða“. Það sama megi segja um umsögn nefndarinnar vegna Héraðsdóms Reykjavíkur í fyrra. Þar sé líka horfið frá Lands- réttaraðferðinni. Rétt að líta á málið heildstætt „Mér detta í hug orð Stephans G. Stephanssonar skálds um sundur- lyndisfjandann. Hin fyrri vinnu- brögð nefndarinnar geta valdið því að umsækjendur, og aðrir sem láta málefnið sig varða, verði tæpast sáttir. Þess vegna held ég að best sé að hafa sömu regluna og vinnu- brögð, og þá sem nú virðist hafa ver- ið tekin upp, þ.e. að líta á málið heildstætt,“ segir Ólafur. „Þá má velta fyrir sér hvort ekki sé rétt að Dómarafélag Íslands til- nefni einn nefndarmann og þá í stað dómstólasýslunnar. Að mínu viti skiptir miklu að allgóður friður ríki um skipan dómara við Hæstarétt og velti ég því einnig fyrir mér hvort rétt sé að ráðherra leggi tillögu sína fyrir Alþingi, en að síðan þurfi auk- inn meirihluti alþingismanna að samþykkja tilnefninguna, en það er önnur saga,“ segir Ólafur. Fagnar nýrri nálgun dómnefndar Ólafur Ólafsson Morgunblaðið/Hanna Landsréttur Skipan fimmtán dómara í réttinn vakti deilur á sínum tíma.  Umsækjandi um stöðu dómara við Landsrétt segir ósamræmi við hæfnismat á dómurum óheppilegt  Leggur til að Dómarafélag Íslands leggi til nefndarmann í dómnefndina í stað dómstólasýslunnar Dómnefndir veita umsagnir Skipanir í dómarastöður 2017-2019 Dagsetning Dómstóll Fjöldi um- sækjenda Fjöldi dómara sem voru/verða skipaðir 19. maí 2017 Landsréttur 37* 15 9. september 2018 Héraðsdómur Reykjavíkur 31** 1 22. júlí 2019 Landsréttur 8*** 1 9. desember 2019**** Hæstiréttur 8 1 *Fjórir drógu umsókn sína til baka. **Sex drógu umsókn sína til baka. ***Einn dró umsókn sína til baka. ****Umsóknir eru í ferli. 6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. DESEMBER 2019 www.hitataekni.is | S: 5886070 | Smiðjuvegur 10 | 200 Kópavogi HITABLÁSARAR ertu tilbúin í veturinn? Þegar aðeins það besta kemur til greina Eigendur slíkra mynda sem vilja leggja þessu verkefni lið með því að benda á athyglisverðar Þingvallamyndir eru vinsamlegast beðnir að hafa samband við ritstjóra bókarinnar, Aðalstein Ingólfsson, netfang: adalart@mmedia.is – við fyrstu hentugleika. HIÐ ÍSLENSKA BÓKMENNTAFÉLAG HAGATORGI · SÍMI 588 9060 hib@hib.is · www.hib.is Hið íslenska bókmenntafélag vinnur nú að útgáfu á listaverkabók með myndum íslenskra myndlistarmanna frá Þingvöllum, frá upphafi til okkar daga. Þingvallamyndir í íslenskri myndlist Framkvæmdir við byggingu nýrra stúdentaíbúða eru hafnar á svæði Háskóla Íslands. Á dögunum sást þar stórvirk vinnuvél við niðurrif á Gamla Garði, fyrstu byggingu há- skólans á þessu svæði, en verið var að taka niður stigahús á suðurgafli. Nýju stúdentaíbúðirnar verða þrjár hæðir og kjallari og munu þær tengjast Gamla Garði við áðurnefnd- an suðurgafl. Hámarksbyggingar- magn er 2.900 fermetrar ofanjarðar og 480 fermetrar neðanjarðar, eða samtals 3.300 fermetrar. Gert er ráð fyrir að í viðbyggingunni verði 70 ný stúdentaherbergi ásamt sameigin- legum eldhúsum, samkomurýmum og geymslum. Andrúm arkitektar ehf. sáu um hönnun. Löng saga Gamla Garðs Morgunblaðið fjallaði um fyrir- hugaða framkvæmd í maí á þessu ári. Var þar saga Gamla Garðs rifjuð upp, en það hús var byggt árin 1933- 34 og er garðurinn nýttur sem stúd- entaíbúðir og sumargisting. Gamli Garður er stúdentagarður, fyrsta bygging Háskóla Íslands á háskóla- svæðinu. Sigurður Guðmundsson, húsameistari ríkisins, teiknaði hús- ið, en fyrstu stúdentarnir fluttu þangað inn haustið 1934. Framkvæmdir við Gamla Garð eru umdeildar og mótmælti Minja- stofnun þeim á sínum tíma. Taldi stofnunin að fyrirhuguð uppbygging þar fæli í sér veruleg og neikvæð umhverfisáhrif þar sem listrænt mikilvægri skipulagsheild yrði rask- að. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Gamli Garður Framkvæmdir á þessu svæði eru umdeildar og sagðar ógna listrænt mikilvægri skipulagsheild. Niðurrif hafið við HÍ  Nýjar stúdentaíbúðir háskólans munu rísa við Gamla Garð Mynd/Andrúm arkitektar Breyting Viðbyggingin á að rísa vestan við Gamla Garð og verður 3.300 fm.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.