Morgunblaðið - 18.12.2019, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 18.12.2019, Qupperneq 14
SVIÐSLJÓS Guðmundur Magnússon gudmundur@mbl.is Skipulagsstofnun vinnur umþessar mundir að viðaukavið gildandi lands-skipulagsstefnu þar sem m.a. verða mótuð viðmið fyrir stað- setningu vindorkuvera með tilliti til landslags. Hefur Matthildur Kr. Elmarsdóttir, skipulagsfræðingur hjá Alta, nýlega tekið saman skýrslu um hvernig staðið er að slíkri stefnumótun í Noregi og Skotlandi og aðra þætti sem tengj- ast skipulagi og hönnun vind- orkuvera með tilliti til landslags. Er samantekt hennar aðgengileg á heimasíðu Skipulagsstofnunar. Fram kemur að bæði í Noregi og Skotlandi er talið mikilvægt að marka heildstæða stefnu á lands- vísu um það hvar best er að koma fyrir vindorkuverum, en það heiti er notað yfir svæði þar sem margar vindmyllur eru á þéttum reitum. Markmið stefnumótunarinnar er að stuðla að því að bestu svæðin séu nýtt með tilliti til tæknilegra, fjár- hagslegra, samfélagslegra og um- hverfislegra sjónarmiða. Landfræðileg greining Við mótun tillögu um ramma- áætlun um vindorku í Noregi var beitt landfræðilegri greiningu stig af stigi, fyrst til að útiloka svæði sem ekki þóttu henta fyrir vind- orkunýtingu út frá allmörgum við- miðunum og síðan til að tilgreina svæði sem best þykja henta. Nið- urstaðan var kort með tilteknum svæðum sem lagt var til að væru forgangssvæði þegar kæmi að leyf- isveitingum stjórnvalda fyrir vind- orkuver. Í Skotlandi hefur svæðum verið skipt í þrjá flokka. Tekur einn til tveggja gerða svæða sem eru alveg útilokuð frá vindorkunýtingu. Þetta eru þjóðgarðar og sérstök verndar- svæði. Í öðrum flokki eru þrjár gerðir svæða og er þar um að ræða svæði sem njóta verndar á lands- vísu eða alþjóðlega, önnur mikilvæg svæði, svo sem víðerni og kolefn- isrík svæði, og loks svæði nærri þéttbýli. Eigi að nota þau undir vindorkuver er þess krafist að sýnt sé fram á að draga megi með afger- andi hætti úr neikvæðum áhrifum með staðsetningu, hönnun mann- virkja eða öðrum mótvægis- aðgerðum. Í þriðja flokknum í Skotlandi eru svo svæði þar sem líklegt er að vindorkuver séu al- mennt ásættanleg út frá skil- greindum viðmiðunum. Í skýrslunni kemur fram að þættir úr bæði norsku og skosku viðmiðunum við val á staðsetningu vindorkuvera geti nýst hér á landi. Meðal svæða sem þá kæmu ekki til greina væru þjóðgarðar, friðlýst svæði á skrá UNESCO, Ramsar- svæði (þ.e. alþjóðlega mikilvæg vot- lendissvæði) og alþjóðlega mikilvæg fuglasvæði, óbyggð víðerni, vernd- arsvæði í byggð og svæði sem eru innan við tvo km frá þéttbýli. Móta stefnu um stað- arval vindorkuvera Umhverfi Vindmyllur eins og þessar við Búrfell hafa m.a. áhrif á upplifun fólks af landslagi. Taka þarf tillit til þess við staðsetningu þeirra. 14 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. DESEMBER 2019 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Boris John-son baðaðisig í sigur- ljóma við þingsetn- ingu í gær. Eitt hundrað nýir þing- menn réðu sér ekki fyrir kæti. Rúmur þriðjungur þeirra kemur úr kjördæmum þar sem Íhalds- flokkurinn hefur löngum haft góða stöðu. Þar losnuðu sæti af tveimur ástæðum. Sumir frá- farandi þingmenn vildu hætta, oftast fyrir aldurs sakir. All- mörg sæti losnuðu þegar Boris Johnson rak þingmenn úr Íhaldsflokknum sem farið höfðu gegn honum á ögur- stundu baráttunnar um brexit. Meðal hinna burtreknu voru menn sem gegnt höfðu veiga- miklum ráðherraembættum og tóku brottvísuninni úr flokkn- um þunglega. Þeir buðu sig því fram sem „óháðir“ í gömlu kjördæmunum gegn þing- mannsefnum flokksforyst- unnar. Sumir fengu bærilegt fylgi því að hefðbundnir and- stæðingar Íhaldsflokksins kusu „uppreisnarmennina“ að þessu sinni. En það dugði ekki til. Hinir burtreknu töpuðu all- ir sem einn. Þetta þýðir að Boris John- son kemur ekki aðeins með fjölmennan þingflokk til þings, heldur má ganga út frá því að langflestir verði mjög fylgi- spakir honum, að minnsta kosti fyrst um sinn. Boris er einnig laus við þing- forsetann, John Bercow, sem ekki er umdeilt lengur að hafi misnotað stöðu sína herfilega í þágu ESB-sinna á þingi. Ber- cow getur á hinn bóginn gengið glaður og reifur að bólgnandi bankareikningum sínum vís- um. Hann mætti sem frétta- skýrandi í settið til Sky- stöðvarinnar á kosninganótt og fékk að sögn um 60.000 pund (tæpar 10 millj. ísl. kr.) fyrir viðveruna. Þá er hann nú sagður eftirsóttur tækifæris- ræðumaður í kvöldverðum og fái, þegar best lætur, allt að 25.000 pund fyrir ræðustubb- inn (fjórar millj. ísl. kr.). Ekki er þó endilega víst að frægðin verði Bercow endingargóð. Boris var hinn sanni sigur- vegari kosninganna, þótt fylgi flokksins yxi ekki um nein ósköp. Frjálslynda flokknum hafði í byrjun verið spáð fram- gangi, en klaufaspörk for- mannsins urðu of mörg og svo fór að þingmönnum fækkaði úr 12 í 11 og formaður flokksins féll út af þingi. En það var Jeremy Corbyn sem dró stysta stráið. Flokkur hans missti 60 þingmenn og það jafnvel í kjör- dæmum þar sem hann var tal- inn ósigrandi. Mjög er nú að Corbyn þrengt. Hann segist ekki ætla að leiða flokkinn í næstu þingkosningum. Í því gæti falist að hann héngi í for- mannssætinu næstu árin! Hljóð- ið í helstu sam- herjum hans í flokknum er annað. Þeir segjast á förum úr forystu og bæta sumir við: Við erum allir á leið úr forystunni. Hugmynd þeirra, sem gráta útkomu Verkamannaflokksins, er sú að færa flokkinn í átt að miðju ella verði þrautaganga hans löng. En vandinn er sá að skipulagi flokksins var breytt á sínum tíma. Það eru almenn- ir félagar sem ráða því hverjir leiða flokkinn. Mikill meiri- hluti þess liðs hefur svipaðar hugsjónir og Jeremy Corbyn. Staðan er því þannig, að þótt Corbyn nái ekki að þráast lengi við er ekki víst að nýr leiðtogi verði eitthvað nær miðju en sá gamli. Nicola Sturgeon, leiðtogi Skoska þjóðarflokksins, ham- ast við að minna á að hún sé annar af tveimur sigurveg- urum kosninganna. Hún fékk vissulega 48 þingmenn og bætti við þig 13. Enginn flokk- ur mjólkar kosningakerfið jafn vel og SNP. Frjálslyndir fengu 11,6% atkvæða á landsvísu en náðu aðeins 11 mönnum á þing. SNP fékk 3,9% fylgi á lands- vísu en fær 48 þingsæti á þjóð- þinginu! Í krafti þessa „sigurs“ krefst Sturgeon nýs þjóðaratkvæðis um sjálfstæði Skotlands. Það er holur hljómur í þeirri kröfu. Sturgeon viðurkennir að ekki nærri allir þeirra sem kusu SNP styðji útgöngu Skota. Skoðanakannanir sem birtar voru eftir kosningar sýna að góður meirihluti Skota sé and- vígur útgöngu. En það er annað sem er at- hyglisvert. Sturgeon er andvíg útgöngu Breta úr ESB og flokkur hennar á þingi gerði allt sem hann mátti til að eyði- leggja úrslitin um það. Og í rauninni eru sömu óheilindi hjá leiðtoganum gagnvart þjóðaratkvæðinu um Skotland. Þar var kosið 2014 og SNP hamaðist í sínum yfirlýsingum þá að kysu Skotar ekki út- göngu myndu „núlifandi kyn- slóðir“ aldrei fá annað tæki- færi! Útkoman var afgerandi. Skotar höfnuðu skilnaði. Og nú vilja leiðtogar SNP, þeir sömu og sögðu að bíða yrði í margar kynslóðir áður en kosið yrði aftur um sömu spurningu, eyðileggja niðurstöðuna frá 2014! Aðeins niðurstaða sem þeir sjálfir viðurkenna skal standa. Hvernig er svona fólk eigin- lega innréttað? Það hefur reynst rétt mat að kosn- ingarnar á fimmtu- dag yrðu mjög mikilvægar} Eftirköst og lærdómur E inu sinni var til happdrætti sem hét launamiðinn. Þar var hægt að vinna 100.000 kr. á mánuði í 15 ár eða fá aðeins lægri heild- arupphæð strax. Miðað við verðbólgu, vexti, launaþróun og þess háttar þá borgaði sig að fá lægri heildarupphæð strax ef vinningurinn væri lagður í sparnað. Valmöguleikinn er þó góður því það eru alls ekki allir í þeim aðstæðum að hafa efni á að spara. Það er nefnilega oft erfitt að gera áætl- anir til framtíðar, hvað þýða til dæmis 100.000 kr. eftir 15 ár? Ef 1981 hefði verið eitt af þeim 15 árum þá hefðu 100.000 kr. ekki verið mikils virði ef þær hefðu misst síðustu tvö núllin. Það er áhugavert að skoða dæmið um launamiðann og þann valmöguleika sem fólk fær í samhengi við nýlegan samning ríkisins við kirkjuna. Þar fær kirkjan um þrjá og hálfan milljarð á ári (og tvo milljarða í viðbót í sóknargjöld) þar sem 90% af upphæðinni fylgja launaþróun. Þetta er samn- ingur sem er gerður í staðinn fyrir kirkjujarða- samkomulagið frá 1997 sem snerist um fullnaðaruppgjör þeirra eigna sem runnu til ríkisins við það samkomulag, eða eins og segir þar: „Aðilar líta á samkomulag þetta um eignaafhendingu og skuldbindingu sem fullnaðar- uppgjör þeirra vegna þeirra verðmæta sem ríkissjóður tók við árið 1907. Aðilar geta óskað eftir endurskoðun á 3. gr. samkomulagins (launagreiðslur) að liðnum 15 ár- um frá undirritun þess.“ Í 3. gr. samkomulagsins er fjallað um að ríkið skuli meðal annars greiða laun 138 presta í 15 ár. Svona „launamiði“ fyrir kirkjuna í staðinn fyrir jarðir sem voru samtals með fast- eignamat upp á 1.072.774.128 kr. árið 1992. Uppfært verðlag á þeirri upphæð árið 2018 eru rúmir þrír milljarðar króna en á sama tíma hafa rúmlega 42 milljarðar verið greidd- ir vegna kirkjujarðasamkomulagsins. Allt í einu verður valmöguleikinn í launamiðanum sjálfsagður, auðvitað velur þú árlegu greiðsl- una. Þú færð andvirði jarðanna, eða svo, á hverju ári. Í að minnsta kosti 15 ár. Árin eru nú orðin rúmlega 20 og nýbúið að semja um laun í skiptum fyrir þessar jarðir í að minnsta kosti 15 ár í viðbót. Fyrir skattgreiðendur þýðir þetta ýmis- legt. Sóknargjöldin eru rétt tæplega 1.000 kr. á mánuði og þjóðkirkjan fær um 80% af sóknargjöldum. Kirkjujarðasamkomulagið er upp á um þrjá og hálfan milljarð á ári. Það þýðir að hver skatt- greiðandi borgar kirkjunni rétt rúmlega 2.000 kr. á mán- uði í laun. 24.000 kr á ári. Önnur lífsskoðanafélög fá um 200 kr. á mánuði eða um 2.400 kr. á ári. Launamiði kirkjujarðasamkomulagsins er, miðað við núverandi fyrirkomulag, óendanlega dýr. Að eilífu, og allt það. Andvirði kirkjujarðanna er hins vegar endan- legt. Það virðist hins vegar vera pólitísk trú á að óendan- leg verðmæti séu til og er þar illa farið með skattfé. Ger- um betur. Björn Leví Gunnarsson Pistill Launamiðinn Höfundur er þingmaður Pírata. bjornlevi@althingi.is STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen Vindmyllur eru engin nýlunda á Íslandi. Á 19. öld voru reistar tvær vindmyllur í Reykjavík, önnur við Hólavelli á Suðurgötu, árið 1830 og hin á horni Banka- strætis og Þingholtsstrætis 1847, kölluð hollenska myllan. Voru þær báðar nýttar við möl- un á rúgi. Vindmyllurnar settu svip á Reykjavík uns þær voru rifnar, Hólavallamyllan um 1880 og hollenska myllan 1902. Vind- mylla var byggð í Vigur 1860 og stendur enn. Einnig voru fleiri vindmyllur á þessum tíma en auðvitað voru þessar myllur ekki tengdar neinu raforkukerfi. Vindmyllur voru á 19. öld ÍSLENDINGAR HAGNÝTTU SÉR VINDORKU FYRR Á TÍÐ Ljósmynd/Þjóðminjasafn Íslands Minjar Vindmylla frá 19. öld sem stendur enn í eynni Vigur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.