Morgunblaðið - 18.12.2019, Qupperneq 15
15
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. DESEMBER 2019
Jólafrí Skólar þessa lands eru nú einn af öðrum á leið í jólafrí, sem er kær-
komið mörgum. Nemendur, kennarar og aðrir starfsmenn orðnir lúnir.
Eggert
Nú verður skipað í
embætti hæstarétt-
ardómara. Fyrir liggur
umsögn nefndar um
hæfni umsækjenda.
Hrósa ber nefndinni
fyrir að hafna með öllu
aðferðafræði þeirrar
nefndar sem mat um-
sækjendur um emb-
ætti í Landsrétti þegar
hann var stofnaður.
Um þetta hef ég skrif-
að áður og tel ekki ástæðu til að end-
urtaka nú.
Menn ættu hins vegar að átta sig
á því að hér er skrifað eins konar
leikrit, sem miðar að skipun um-
sækjanda, sem fyrirfram er búið að
ákveða að skuli hljóta embættið, þó
að öllum sem til þekkja sé ljóst að sá
umsækjandi stendur ekki jafnfætis
öðrum að hæfni.
Nefndin kaus að setja þrjá um-
sækjendur jafna í efsta sæti, tvo
karla og eina konu. Konan verður
skipuð. Hún var sett jafnfætis hinum
svo ráðherrann gæti samkvæmt
gildandi lagareglum skipað hana.
Þetta var sýnilega gert
vegna kynferðis um-
sækjandans. Hún er
auðvitað hæfur lög-
fræðingur, þó að karl-
arnir standi henni
greinilega framar, eins
og öllum er ljóst sem til
þekkja. Það gera
reyndar einnig fleiri
umsækjendur.
Í viðtali við ráð-
herrann á mbl.is í gær
(mánudag) var þannig
haft eftir henni, þegar
hún var spurð hvort
kynferði umsækjenda myndi hafa
áhrif á ákvörðun hennar: „Ég hef
alltaf talað fyrir því og mun áfram
tala fyrir því að það sé á meðal
þeirra þátta sem skuli líta til þegar
skipað er í embætti eins og lög segja
líka til um.“
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir
hefur vaxið verulega í starfi sínu
sem ráðherra. Hér verður henni
hins vegar á þegar hún svarar því
beint út að kynferði umsækjenda
muni hafa áhrif á ákvörðun hennar. Í
65. gr. stjórnarskrárinnar er skýrt
tekið fram að svona sjónarmið eru
andstæð lögum, því þar segir: „Kon-
ur og karlar skulu njóta jafns réttar
í hvívetna.“
Hvað sem líður ákvæðum í lögum
um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna
og karla, er stjórnvaldshöfum
óheimilt, eftir að umsækjendur um
stöðu eru komnir fram, að velja á
milli þeirra eftir kynferði. Þetta felst
í stjórnarskrárákvæðinu.
Þó að ég hafi tröllatrú á hinum ný-
skipaða dómsmálaráðherra þykist
ég sjá í hendi mér að hún muni ekki
standast þrýstinginn úr umhverfinu.
Hún mun loka leikverkinu og skipa
konuna.
Tjaldið mun svo falla.
Eftir Jón Steinar
Gunnlaugsson » Í 65. gr. stjórnar-
skrárinnar er skýrt
tekið fram að svona
sjónarmið eru andstæð
lögum, því þar segir:
„Konur og karlar skulu
njóta jafns réttar í hví-
vetna.“
Jón Steinar
Gunnlaugsson
Höfundur er lögmaður.
„Jafn réttur í hvívetna“
Ég nokkuð viss um
að margir vinir mínir
á vinstri kantinum
súpa hveljur þegar
þeir átta sig á að frá
því að Sjálfstæðis-
flokkurinn tók sæti í
ríkisstjórn árið 2013
hefur tekist að lækka
álögur á heimili og
fyrirtæki um tugi
milljarða á ári. Í huga
þeirra er slíkt glap-
ræði og vitnisburður um að verið sé
að „veikja“ skattstofna, „afsala“ rík-
inu tekjum og nýta ekki „tekjutæki-
færi“ sem ríkið hefur með því að
vera ekki dýpra í vösum launafólks
og fyrirtækja.
Á sama tíma og vinstrimenn berj-
ast við sálfræðilegt áfall eru ekki all-
ir hægrimenn kátir; telja að of hægt
gangi að koma böndum á skatta-
krumlu hins opinbera. Ég er sam-
mála samherjum mínum en ég líkt
og þeir verð að viðurkenna stað-
reyndir:
Skattkerfisbreytingar í tíð Sjálf-
stæðisflokksins í ríkisstjórn frá
2013, hafa leitt til þess að ráðstöf-
unartekjur heimilanna hafa hækkað
um nær 30 milljarða króna. Séu af-
nám auðlegðarskatts og orkuskatts
á rafmagn talin með má ætla að ráð-
stöfunartekjur heimilanna á þessu
ári séu um 40 milljörðum hærri en
þær hefðu orðið ef breytingar, sem
Bjarni Benediktsson hefur beitt sér
fyrir sem fjármálaráðherra og for-
sætisráðherra, hefðu ekki náð fram
að ganga.
Þessar upplýsingar koma m.a.
fram í ítarlegu svari fjármála- og
efnahagsráðherra við fyrirspurn um
breytingar á sköttum og gjöldum frá
árinu 2013. (Óskað var eftir upplýs-
ingum um hverjar skatttekjur rík-
isins hefðu orðið, að öðru óbreyttu,
ef skattar og tryggingagjöld hefðu
verið óbreytt miðað við árið 2012.)
70 milljarða lækkun skatta
Tekjuskattur einstaklinga hefur
lækkað um nær 24 milljarða króna
vegna ýmissa breytinga sem gerðar
hafa verið á síðustu árum. Án þeirra
breytinga, sem Sjálfstæðisflokk-
urinn hefur haft forystu um, væru
heimilin því að greiða nær tveimur
milljörðum krónum meira í hverjum
mánuði í tekjuskatt en þau gera á
þessu ári. Til viðbótar
kemur skattfrjáls ráð-
stöfun séreignasparn-
aðar vegna íbúðakaupa.
Áætlað er að eftirgjöf /
lækkun tekjuskatts
vegna séreignasparn-
aðar sé um 3,8 milljarðar
á þessu ári. Í byrjun
komandi árs kemur til
framkvæmda fyrri
áfangi í kerfisbreyt-
ingum á tekjuskatti en
síðari áfanginn næst árið
eftir sem tryggir launa-
fólki um 21 milljarðs króna lækkun
tekjuskatts.
Lækkun tryggingagjalds nemur
um 17,8 milljörðum en frá 2013 hef-
ur skatthlutfallið lækkað úr 7,69% í
6,60%. Á næsta ári lækkar gjaldið
enn frekar eða um fjóra milljarða
króna.
Afnám almennra vörugjalda hefur
lengi verið baráttumál sjálfstæðis-
manna. Sú barátta skilaði árangri
2015 þegar gjöldin voru felld niður.
Árin 2016 og 2017 voru tekin stór
skref með því að afnema tolla á flest-
ar vörur utan landbúnaðarvara.
Í heild hafa álögur ríkisins á vörur
– almenn vörugjöld og tollar – lækk-
að um rúmlega 14 milljarða króna
miðað við heilt ár. Heimilin hafa
fengið að njóta þessa í formi lægra
vöruverðs og aukins kaupmáttar.
Alls hafa skattar verið lækkaðir
um 57 milljarða króna frá árinu 2013
eða um meira en 4,7 milljarða á
mánuði. Þessu til viðbótar rann auð-
legðarskatturinn sitt skeið, þrátt
fyrir háværar kröfur vinstrimanna
um að skatturinn skyldi fram-
lengdur og það varanlega í einu
forminu eða öðru. Auðlegðarskatt-
urinn nam 10,7 milljörðum árið
2015. Ári seinna var hætt að inn-
heimta orkuskatt á rafmagn upp á
liðlega 2,2 milljarða.
Að teknu tilliti til auðlegðarskatts
og rafmagnsskattsins nema skatta-
lækkanirnar nær 70 milljörðum
króna frá því að Sjálfstæðisflokk-
urinn tók sæti í ríkisstjórn 2013.
En sumt hefur hækkað
En til að öllu sé haldið til haga þá
hafa ýmsir skattar verið hækkaðir.
Mest munar um töluvert róttækar
breytingar á virðisaukaskatti.
Neðra þrep virðisaukans var hækk-
að, efra þrepið lækkað og skatt-
stofninn breikkaður. Vegna þessa
eru tekjur ríkissjóðs um 13,9 millj-
örðum hærri á þessu ári en þær
hefðu verið án breytinga, að öðru
óbreyttu.
Kolefnisgjald hefur einnig hækk-
að – nokkuð hressilega. Það hefur
verið markmið allra ríkisstjórna síð-
ustu ár að stuðla að orkuskiptum.
Kolefnisgjaldi er ætlað að styðja við
að markmið í loftslagsmálum náist –
draga úr losun gróðurhúsaloftteg-
unda, hvetja til orkusparnaðar og
notkunar á vistvænni ökutækjum en
um leið ýta undir aukna notkun á
innlendum orkugjöfum.
Kolefnisgjaldið er umdeilt og efa-
semdir hafa komið fram um að það
skili tilætluðum árangri. Þá eru vís-
bendingar um að gjaldið leggist mis-
jafnlega þungt á atvinnugreinar sem
og launafólk. Ég hef áður vakið at-
hygli á því að umhverfisskattar –
grænir skattar – geti verið skyn-
samlegir en sú hætta sé alltaf fyrir
hendi að þeir myndi skjól fyrir
aukna skattheimtu hins opinbera.
En fleira skiptir máli.
Grænir skattar, líkt og kolefn-
isgjald, geta haft neikvæð áhrif á
samkeppnishæfni þjóðarinnar. Ef
umhverfisskattar á íslensk fyrirtæki
eru hærri en þeir sem samkeppn-
isaðilar í öðrum löndum þurfa að
standa undir, er augljóst að sam-
keppnisstaðan versnar. Því miður
leiða of fáir hugann að þessum þætti
þegar tekin er ákvörðun um skatta-
og gjaldumhverfi atvinnulífsins.
Vísbendingar eru einnig um að
grænir skattar leggist hlutfallslega
þyngra á tekjulága hópa en tekju-
háa. Þannig kunna umhverfisskattar
að leiða til aukins efnahagslegs
ójöfnuðar.
Byrðin 36 milljörðum léttari
Bankaskattur er þriðji skattstofn-
inn sem skilar hærri tekjum en fyrir
2013 vegna lagabreytinga. Skatt-
urinn var fyrst lagður á 2011 en var
hækkaður gríðarlega í stjórnartíð
Sjálfstæðisflokks og Framsóknar-
flokks, ekki síst til að standa undir
fjármögnun umfangsmikillar leið-
réttingar verðtryggðra húsnæðis-
lána. Skatturinn var m.a. lagður á
þrotabú hinna föllnu banka. Alþingi
samþykkti í byrjun þessa mánaðar
að lækka bankaskattinn verulega í
áföngum fram til ársins 2024. Lækk-
unin er hluti af stefnu ríkisstjórn-
arinnar að stuðla að aukinni skil-
virkni í fjármálakerfinu með það að
leiðarljósi að lækka kostnað neyt-
enda.
Eins og sést á meðfylgjandi töflu
nema brúttó hækkanir ýmissa
skatta frá 2013 um 33,7 milljörðum
króna en 24 milljörðum að undan-
skildum bankaskattinum.
En vegna umfangsmikilla skatta-
lækkana á öðrum sviðum er ljóst að
nettó skattalækkun á þessu ári borið
saman við 2013, að öðru óbreyttu er
rúmlega 23 milljarðar króna og tæp-
ir 33 milljarðar sé horft fram hjá
bankaskattinum.
Þegar haft er í huga að auðlegð-
arskattur og orkuskattur á rafmagn
heyra sögunni til þá er skattbyrði
heimila og fyrirtækja yfir 36 millj-
örðum króna léttari á þessu ári en
hún hefði orðið án afskipta Sjálf-
stæðisflokksins. Án bankaskatts eru
álögurnar nær 46 milljörðum lægri.
En jafnvel þótt okkur hafi í mörgu
miðað í rétta átt stendur eftir sú
staðreynd að Ísland er háskattaland
í alþjóðlegum samanburði. Skatt-
byrði, samkeppnishæfni og lífskjör
eru samtvinnuð og verða ekki að-
skilin. Því miður gengur illa að fá þá
stjórnmálamenn, sem líta á ein-
staklinga og fyrirtæki sem tekju-
hlaðborð hins opinbera, til að skilja
einföld sannindi.
Eftir Óla Björn
Kárason
» Á sama tíma og
vinstrimenn berjast
við sálfræðilegt áfall eru
ekki allir hægrimenn
kátir; of hægt gangi að
koma böndum á skatta-
krumlu hins opinbera.
Óli Björn
Kárason
Höfundur er alþingismaður
Sjálfstæðisflokksins.
Skattabreytingar – um 30 milljarða
hækkun ráðstöfunartekna
Skattkerfi sbreytingar
2013-2019
Nettóáhrif breytinga frá 2013
á skatttekjur ríkisins 2019
í milljónum króna
Nettó lægri skattar
Auðlegðarskattur
Orkuskattur
á rafmagn
Skattalækkanir 2013 til 2019
Í milljónum króna Áhrif 2019
Tekjuskattur einstaklinga -23.757
Tryggingagjald -17.760
Almenn vörugjöld -8.540
Tollar -5.610
Útvarpsgjald -600
Stimpilgjald v/fyrstu íbúðar -400
Uppbætur á lífeyri -300
Fjármagnstekjuskattur -90
Samtals -57.057
Skattahækkanir 2013 til 2019
Í milljónum króna Áhrif 2019
Fjársýsluskattur 30
Orkuskattur á heitt vatn 410
Vörugjald á ökutæki 690
Krónutölugjöld 750
Gistináttaskattur 880
Tóbaksgjald 940
Kolefnisgjald 6.750
Bankaskattur 9.400
VSK-breytingar 13.870
Samtals 33.720
Lækkun
Nettó lægri skattar -23.337
Án bankaskatts -32.737
Auðlegðarskattur -10.700
Orkuskattur á rafmagn -2.230
Nettó lægri skattar Án bankaskatts
Samtals -45.667
Samtals -36.267
-10.700
-2.230
-23.337
-10.700
-2.230
-32.737
Heimild: Skattaskrifstofa fjármála- og efnahagsráðuneytisins.