Morgunblaðið - 18.12.2019, Síða 22
22 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. DESEMBER 2019
Miklu meira, en bara ódýrt
Hálkubroddar
695
Bílrúðu-
sköfur
Verð frá
kr. 395
Dráttartóg
2tonn 4m
2.485
Rúðuvökvi
995
Smáratorgi 1, 201 Kóp., s. 588 6090, vl@verkfaeralagerinn.is
Verkfæralagerinn
Mán.-fim. kl. 9-18, fös. kl. 9-18:30, lau. kl. 10-18, sun. kl. 12-17
Startkaplar
frá 1.495
Snjóskóflur
Verð frá
kr. 1.985
Snjósköfur
Verð frá
kr. 1.495
50 ára Ingibjörg er frá
Skefilsstöðum í Skefils-
staðahr. í Skagafirði, en
býr í Hafnarfirði. Hún
er viðskiptafræðingur
að mennt frá HR og er
aðalbókari hjá Stofn-
fiski. Ingibjörg situr í
stjórn Dansíþróttafélags Hafnarfjarðar.
Maki: Einar Jón Sigmarsson, f. 1962, raf-
eindavirki hjá Origo.
Börn: Smári Freyr, f. 2001, og Svandís
Ósk, f. 2003.
Foreldrar: Margrét Viggósdóttir, f. 1936,
d. 2013, og Gunnar Guðvarðarson, f.
1934, d. 1973, bændur á Skefilsstöðum.
Ingibjörg Sigurlaug
Gunnarsdóttir
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Í dag er gott að ræða við vini.
Frumkvæði þitt hefur jákvæð áhrif á fólk-
ið í kringum þig svo nýttu þér það.
20. apríl - 20. maí
Naut Þér kann að berast óvænt tilboð og
ef þú heldur rétt á spilunum getur það
orðið þér til góðs. Talaðu um tilfinningar
þínar.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Lærðu að þekkja takmörk þín
og stattu vörð um sjálfstæði þitt, það
gerir enginn annar. Þú færð skilaboð sem
þú veist ekki hvernig best er að bregðast
við.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þú hefur ferðast með einhverjum
undanfarið og hefur notið þess mjög. Nýr
kafli er um það bil að hefjast í þínu lífi.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þér finnst þú vera að drukkna í alls
kyns misvísandi upplýsingum. Einhver vill
bjóða þér gull og græna skóga en þorir
það ekki. Þú veist hver það er.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þú skalt ekki bregða út af van-
anum, nema þú hafir það á hreinu að
slíkt sé þér til framdráttar. Njóttu þín í
faðmi fjölskyldunnar í kvöld.
23. sept. - 22. okt.
Vog Farðu varlega í að gagnrýna vinnu-
félaga þína, því þeir vinna undir öðrum
formerkjum en þú. Foreldrar átta sig á
betri leiðum til þess að hvetja börn sín.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Það er aldrei til annars en
góðs að sækja sér aukna menntun á
hvaða sviði sem er. Þú færð skemmti-
legar fréttir af góðum vini.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þú hefur einbeitt þér um of
að vinnu og um leið vanrækt líkama þinn.
Taktu mark á tilfinningu sem þú hefur
sem snýr að ástvini.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Samstarfsmenn þínir bera
traust til þín og leita aðstoðar þinnar
þegar á bjátar. Reyndu að sýna þol-
inmæði ef þú verður fyrir gagnrýni af ein-
hverju tagi.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Til þín er horft með forystu í
ákveðnu máli. Barnið í þér gleðst þessa
dagana, því þú ert dugleg/ur að leika þér.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Búðu þig undir að heyra frá vinum
þínum og fá boðskort í veislu. Nýtt ár
mun verður ævintýralega skemmtilegt.
S
vanhildur Sif Haralds-
dóttir er fædd 18. des-
ember 1959 á St. Frans-
iskusspítalanum í
Stykkishólmi. „Ljósmóð-
irin hét systir Ernelia. Ég flutti
tveggja ára á Akranes og bjó þar til
11 ára aldurs og frá Akranesi lá
leiðin til Reykjavíkur. Fyrstu árin
ólst ég upp við rosalegar óveðurs-
sögur frá Flatey á Skjálfanda, þar
sem pabbi er fæddur. Þar komu
ísbirnir mjög oft við sögu.“
Svanhildur gekk í Grunnskólann
á Akranesi og Austurbæjarskóla.
Hún fór í Keili 2008-2009, lauk BA-
námi í félagsráðgjöf frá Háskóla Ís-
lands 2013 og MA-námi í félags-
ráðgjöf frá HÍ árið 2016.
Svanhildur bjó á Hvammstanga
og vann þar hjá Verslun Sigurðar
Pálmasonar, bæði á skrifstofunni og
í verslun, á Laugarbakka og á
Akureyri, en þar bjó hún í fjögur ár
og vann á Leikskólanum Pálmholti.
Svanhildur hefur búið í Kópavogi
frá árinu 1997. Ári seinna hóf hún
að reka Sumarbúðirnar Ævintýra-
land, fyrst á Reykjum í Hrútafirði
og síðan í Borgarfirði. „Hugmyndin
kviknaði þegar ég var barn í sum-
arbúðum á Ökrum á Mýrum en ég
var þar tvö sumur. Markmiðið hjá
mér var að hafa mikla afþreyingu
og mikið val fyrir börnin. Við vorum
með ýmis námskeið eins og
myndlistarnámskeið, tónlistar- og
dansnámskeið, leiklist, íþróttir,
stuttmyndagerð sem var mjög vin-
sælt og ævintýranámskeið. Við
fengum valkyrjur úr sveitinni til að
vera með reiðnámskeið.Við vorum
oftast með fimm til sjö námskeið í
boði og alls konar afþreyingu þar að
auki.“ Sumarbúðirnar voru reknar í
fimmtán sumur.
Svanhildur opnaði vistheimili sem
er skammtímavistun árið 2005, tók
sér frí frá því þegar hún hóf námið
en opnaði aftur skammtímavist-
unina á seinna árinu í meistaranám-
inu og hefur rekið það síðan. Hún
er því að vinna fórnfúst og merki-
legt starf sem er samt ekki hægt að
ræða mikið um af persónuverndar-
ástæðum. Svanhildur hefur enn
fremur verið stuðningsforeldri frá
1997 og fósturforeldri frá árinu
2008.
Áhugamál Svanhildar eru fjöl-
skyldan, útivist, gönguferðir, ferða-
lög og matreiðsla. „Mér finnst gott
að ganga um þar sem eru miklar
öldur. Ég labba oft um á ströndinni
hjá veitingastaðnum Hafið bláa sem
er rétt hjá Stokkseyri og mér finnst
ég hlaða batteríin þar. Ég elska
hafið, að horfa á það, ekki vera á því
og því stærri sem öldurnar eru því
æðislegra er að horfa á þær. Ég
ferðast mest innanlands en líka
erlendis og fór í siglingu um
Karíbahafið í fyrra, það var mjög
skemmtilegt.“ Svanhildur lætur sig
mannúðarmál varða eins og sést á
starfi hennar. „Ég hef alltaf haft
áhuga á þeim og mér finnst sér-
staklega átakanlegt þegar ranglæt-
ið og misskiptingin bitnar á börn-
unum og reyni að leggja mitt af
mörkum.“
Svanhildur hélt upp á afmælið
með pomp og prakt á laugardaginn.
„Ég fékk óvænta afmælisgjöf en
Svanhildur Sif Haraldsdóttir félagsráðgjafi – 60 ára
Frænkur í móðurættinni Frá vinstri: Ellen, dóttir Svanhildar, Svanhildur, Margrét Jónasdóttir, Guðrún Eva
Mínervudóttir, Gurrí, systir Svanhildar, Edda Finnbogadóttir, dóttir Elínar Jónasdóttur móðursystur, og Dagbjört
Theodórsdóttir, dóttir Theodórs Jónassonar móðurbróður, móðir Margrétar Jónasdóttur.
Lætur sig mannúðarmál varða
Í afmælisveislunni „Ég pantaði jólasvein fyrir yngstu
gestina og hann vildi láta taka mynd af okkur saman.“
Á jólum Frá vinstri: Mínerva amma og systkinin Guð-
mundur, Gurrí, Mínerva og Svanhildur í grænum kjól.
30 ára Kristín María
er frá Hellissandi en
býr í Borgarnesi. Hún
er með stúdentspróf
frá Fjölbrautaskóla
Vesturlands á Akra-
nesi og er í fæðingar-
orlofi.
Maki: Björn Sólmar Valgeirsson, f. 1981,
leikskólakennari og fótboltaþjálfari.
Börn: Friðgeir Kári, f. 2008, Birgitta
Sara, f. 2015, og Dagný Marey, f. 2019.
Foreldrar. Guðbjörg Dagný Þórðardóttir,
f. 1966, sundlaugarvörður, og Kári Þór
Rafnsson, f. 1962, húsvörður. Þau eru
búsett á Hellissandi.
Kristín María
Káradóttir
Til hamingju með daginn
Borgarnes Dagný Marey
Björnsdóttir fæddist 8.
júlí 2019 kl. 13.29 á
Sjúkrahúsinu á Akranesi.
Hún vó 3.734 g og var 48
cm löng. Foreldrar henn-
ar eru Kristín María
Káradóttir og Björn
Sólmar Valgeirsson.
Nýr borgari