Morgunblaðið - 18.12.2019, Page 27
MENNING 27
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. DESEMBER 2019
ICQC 2020-2022
Nánari
upplýsingar
um
sýningartíma
á sambíó.is
Uppselt í Reykjavík
Lausir miðar í Keflavík
og á Akureyri
Þáttaröðin Pabbahelgar er til-
nefnd til verðlauna Norræna kvik-
mynda- og sjónvarpssjóðsins fyrir
besta handrit að sjónvarps-
þáttaröð. Verðlaunafé er 200.000
norskar krónur, jafnvirði um 2,8
milljóna íslenskra króna. Nanna
Kristín skrifaði handrit þáttanna
og leikstýrði þeim auk þess að
fara með eitt af aðalhlutverkunum
og voru þeir sýndir á RÚV í byrj-
un vetrar. Tilnefndir til verð-
launanna eru aðalhandritshöf-
undar sjónvarpsþáttaraða og
verða verðlaunin afhent í Gauta-
borg 29. janúar á næsta ári.
Aðrir tilnefndir eru hin norska
Sara Johnsen fyrir þáttaröðina 22.
júlí, sænsku handritshöfundarnir
Wilhelm Behrman og Niklas
Rockström fyrir Kalifat, finnski
handritshöfundurinn Matti Laine
fyrir Paratiisi og dönsku höfund-
arnir Dorthe Høgh og Ida Maria
Rydén fyrir Når støvet har lagt
sig.
Tilnefnd Nanna Kristín Magnúsdóttir er
handritshöfundur, leikstjóri og aðal-
leikkona sjónvarpsþáttanna Pabbahelgar.
Nanna Kristín
meðal tilnefndra
fyrir Pabbahelgar
Morgunblaðið/Eggert
» Davíð Þór Jónsson píanóleikari og spunameistari ogTómas Guðni Eggertsson organisti héldu á mánudag
tónleika í Langholtskirkju undir yfirskriftinni Ertu búin/n
að Bach-a fyrir jólin? Léku þeir með guðdómlegum hætti
eigin útgáfur af tíu sálmaforleikjum og nokkrum dáðum
verkum til eftir meistarann Johann Sebastian Bach. Fé-
lagarnir komu síðast fram fyrir áratug með þetta efni á að-
ventunni og fóru nú eins og þá á kostum og heilluðu gesti.
Tómas Guðni og Davíð Þór léku verk eftir J.S. Bach í Langholtskirkju
Miðakaup Vilhjálmur Bjarnason kaupir miða af Sigurbjörgu Þrastardóttur skáldkonu.
Anna María Jónsdóttir og Héðinn Unnsteinsson fylgjast með. Smákaka fylgdi hverjum miða.
Spunameistararnir Davíð Þór Jónsson og Tómas Guðni Eggertsson ávarpa gesti. Hjónin Þórarinn Eldjárn og Unnur Ólafsdóttir nutu listarinnar.
Ánægð Greipur Gíslason og Edda Kristín Sigurjónsdóttir voru
meðal gesta og hlýddu á félagana leika sér með orgelforleiki.
Morgunblaðið/Eggert