Morgunblaðið - 18.12.2019, Side 28
28 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. DESEMBER 2019
Hér er birtur inngangur Sigríðar
sjálfrar að bókinni og valdir kaflar
úr megingrein bókarinnar sem Að-
alsteinn Ingólfsson skrifaði. Í grein
sinni vísar Aðalsteinn til Dieters
Roth fyrrverandi eiginmanns Sigríð-
ar. Millifyrirsagnir eru blaðsins.
Hvaða Sigga?
„Hvaða Sigga?“
„Það er hún Sigga í grasinu, Sigga
á spýtunni og hún Sigga í forinni.“
Þannig skilgreindi ég sjálfa mig
þegar ég var fimm ára sveitastelpa á
mannmörgu prestssetri og heyrði að
vinnufólkið var að tala um Siggu (en
þá voru fjórar
Siggur á heim-
ilinu) og ein-
hver spurði:
„Hvaða
Sigga?“
Fyrstu 10
árin mín var
pabbi sveita-
prestur og
stundaði líka
búskap. Alltaf var mikil vinna í
gangi, bæði úti við og inni við. Þetta
var fyrir tíma véltækninnar og
vinnukonur og vinnumenn unnu bú-
störfin með handafli. Foreldrar mín-
ir voru jafnframt ávallt mjög upp-
teknir. Í minningunni finnst mér
eiginlega að enginn hafi haft tíma til
að skipta sér af mér. Ég kunni vel að
meta frelsið, gerði það sem mér
sýndist og var minn eigin herra.
Ég var öllum stundum úti í nátt-
úrunni að leika mér, drullumallaði
bæði kökur og eitthvað annað; ég
raðaði steinvölum á ýmsan máta,
fann fjöl sem ég lagði yfir læk og þar
með bjó ég til brú yfir lækinn. Ég
fann eitthvert spýtnarusl og bjó til
úr því ýmislegt; lá á bakinu tímunum
saman og horfði upp til skýjanna og
sá stöðugt í þeim nýjar og nýjar
myndir. Það voru endalausir mögu-
leikar.
Mér finnst að þessi reynsla
bernsku minnar sé sá kjarni sem
myndlistin mín spretti frá … og að í
henni séu líka endalausir mögu-
leikar.
Leitandi og skemmtilega
uppáfinningasöm
„Og einkenni á þeim verkum sem
Sigríður gerir langt fram á sjöunda
áratuginn, eins og raunar á verkum
Dieters frá sama tíma, er hve leit-
andi og skemmtilega uppáfinninga-
söm hún er. Þessi verk eru sjaldnast
mjög stór, flest um 30 x 50 cm, lík-
lega gerð við eldhúsborðið undir lág-
nættið, eftir að börnin voru komin í
háttinn. Þarna er um að ræða mál-
verk á striga, tré, pappír, pappa,
krossvið, masónít, álplötur og tré-
tex. (Listakonan tók sérstöku ást-
fóstri við 25 x 25 sm trétexplötur
sem henni áskotnuðust á Landspít-
alanum, vinnustað hennar til margra
ára.) Myndirnar eru gerðar með
olíulitum, bílalakki, akrýllitum,
Hörpusilki, ritblýi, bleki, sprautu-
tækni, eggjárnum og gasbrennara.
Við þetta bætast svo fótógrömm,
pastelteikningar, þrykk og rifrildi á
pappír og síðan allrahanda samkrull
þessara miðla og efniviða, að við-
bættum aðskotahlutum og lífrænum
úrgangi.“
Blendingur nýraunsæis
og súrrealisma
„Snemma á sjöunda áratugnum
fer Sigríður einnig að sanka að sér
og vinna með ýmislegt smálegt sem
fellur til á hverju heimili: lok af dós-
um, kork- og málmtappa af flöskum,
þynnur og skrúfbolta og annað sem
henni þykir áhugavert, einkum ef
það er kringlótt í laginu. Hringlaga
trébúta og afskurð af plaströrum
fær hún einnig að hirða á verk-
stæðum þar sem þau Dieter áttu
hauka í horni. Þessi aðföng límir hún
á tréplötur, málar þau í ýmsum lit-
um eða þekur með einlita iðnaðar-
málningu og lakki. Út úr þessum til-
raunum koma áferðarmikil verk
með „földu“ inntaki, eins konar
blendingur nýraunsæis og súrreal-
isma. Síðan færir hún sig upp á
skaftið og tekur til handagagns af-
lóga leikföng og púsluspil barna
sinna og gæðir þau nýrri merkingu
með því að skeyta þau saman á fleti
og yfirmála. Á einhverju stigi lítur
hún sennilega til safnara og sam-
skeytisnillinga á borð við Arman og
Daniel Spoerri, en sá síðarnefndi var
einmitt í vinfengi við Dieter. En
vinnubrögð Sigríðar eru hvergi
nærri jafnskipuleg og þeirra, byggj-
ast fremur á skyndilegum hug-
dettum en langvarandi yfirlegum.
Fyrir það varðveita verk hennar oft-
lega með sér fölskvalausa leikgleði
sem stundum fer forgörðum í yfir-
veguðum verkum þessara frægu
starfsbræðra hennar.“
Málaðar „formleysur“
„Hvað varðar málaðar „form-
leysur“ Sigríðar, þá eru þær í heild-
ina frjálslegri, óheflaðri og ófyrir-
séðari en verk íslenskra
starfsbræðra hennar á tímabilinu
1957-1960, að hluta til fyrir það að
hún kemur inn í frjálsa abstraktlist
án viðkomu í strangflatalist, og þeim
aga sem henni fylgdi. Í víðasta skiln-
ingi mætti flokka málverk hennar á
þessu tímabili undir regnhlífar-
hugtakið „informalisma“, en þar er
átt við verk sem verða til fyrir sjálf-
sprottnar og tilviljunarkenndar at-
lögur að striganum, áherslu á tján-
ingarmátt efniviðarins sjálfs og
útilokun á viðteknum hugmyndum.
Að vissu marki eru þessi verk tilvist-
arleg, framkvæmdin getur af sér
inntakið, og við framkvæmdina
verður listamaðurinn þess áskynja
hver hann er.“
Vitund, innsæi og ímyndunarafl
„Sem innmúraður listmeðferðar-
fræðingur, ef ég má taka svo til orða,
kappkostar Sigríður að rækja trún-
að við eigin vitund, innsæi og ímynd-
unarafl, fremur en listasöguna og
myndlistarstraumana í samtím-
anum. Raunar leggja listmeðferðar-
fræðingar fast að skjólstæðingum
sínum að ganga á svig við allt sem
heitir viðtekin aðferðafræði í mynd-
list. Sigríður notar myndir sínar
fyrst og síðast til að greiða úr þeim
tilfinningum sem að henni sækja
hverju sinni, grennslast fyrir um
uppruna þeirra og eðli og öðlast með
því aukinn skilning á sjálfri sér sem
manneskju og listamanni. Innbyrðis
fjölbreytileiki verkanna er til marks
um fjölþætt tilfinninga- og vitundar-
líf hennar á hverjum tíma. Sigríður
leggur sjálf áherslu á viðvarandi og
órjúfanleg tengsl myndlistar og list-
meðferðar í ævistarfi sínu. „Þegar
ég lít yfir farinn veg finnst mér að öll
mín verkefni hafi verið eitt alls-
herjar listmeðferðarprójekt,“ segir
hún í nýlegu tilskrifi.“
Sterk formhyggja
„Samskeytinga- og aðskotahluta-
tímabilinu í myndlist Sigríðar lýkur
á úthallandi sjöunda áratugnum og
við tekur málaralist af ýmsu tagi.
Hugsanlega má rekja þessi umskipti
til sambandsslita þeirra Dieters, en
með þeim rofnuðu tengsl listakon-
unnar við þann vettvang róttækra
myndlistartilrauna sem þau höfðu
bæði tilheyrt fram að því. Eftir sem
áður er málaralist Sigríðar jafnfjöl-
skrúðug og samsettu verkin á und-
an.
Hún einkennist hins vegar af
sterkri formhyggju fremur en ófyr-
irsjáanleika og formleysu. Nærtæk-
ast er að tengja þá stefnubreytingu
við endurnýjuð kynni þeirra Sigríð-
ar og Eyborgar Guðmundsdóttur.
Þær Eyborg höfðu kynnst um miðj-
an sjötta áratuginn, um það bil sem
Sigríður sneri heim frá Danmörku.
Þá hafði Eyborg ekki hafið mynd-
listarferil sinn, en hreifst af hreyfi-
listarverkunum sem Dieter kom
með í farteskinu frá Kaupmanna-
höfn árið 1957. Að beiðni hennar
féllst Dieter á að segja henni til í
myndlist og gerði það meðan bæði
voru á landinu. Árið 1959 var Ey-
borg síðan komin til Parísar, þar
sem hún fann sér annan „mentor“,
Victor Vasarely, og haslaði sér völl í
formfastri op-myndlist. Þessa
myndlist kynnti hún fyrir Sigríði í
hvert sinn sem hún sneri heim frá
París.“
Endalausir möguleikar
Bókarkafli | Myndverk 1950-2019 heitir ný bók
um listakonuna Sigríði Björnsdóttur. Í bókinni er
að finna yfirlit yfir myndlistarferil Sigríðar. Meg-
ingrein hennar fjallar um einstök tímabil á mynd-
listarferli Sigríðar, helstu áhrifavalda og sérstöðu
meðal samtímamanna hennar í myndlistinni.
Ljósmynd/Bjarni Grímsson
Náttúruskynjun Listakonan Sigríður Björnsdóttir á vinnustofu sinni á Öldugötu 17.
Formhyggja Án titils, 1967. Akrýl á trétex, brennt.
Gleðileg ól
577-5757 www.gamafelagid.is