Morgunblaðið - 18.12.2019, Qupperneq 28

Morgunblaðið - 18.12.2019, Qupperneq 28
28 MENNING MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. DESEMBER 2019 Hér er birtur inngangur Sigríðar sjálfrar að bókinni og valdir kaflar úr megingrein bókarinnar sem Að- alsteinn Ingólfsson skrifaði. Í grein sinni vísar Aðalsteinn til Dieters Roth fyrrverandi eiginmanns Sigríð- ar. Millifyrirsagnir eru blaðsins. Hvaða Sigga? „Hvaða Sigga?“ „Það er hún Sigga í grasinu, Sigga á spýtunni og hún Sigga í forinni.“ Þannig skilgreindi ég sjálfa mig þegar ég var fimm ára sveitastelpa á mannmörgu prestssetri og heyrði að vinnufólkið var að tala um Siggu (en þá voru fjórar Siggur á heim- ilinu) og ein- hver spurði: „Hvaða Sigga?“ Fyrstu 10 árin mín var pabbi sveita- prestur og stundaði líka búskap. Alltaf var mikil vinna í gangi, bæði úti við og inni við. Þetta var fyrir tíma véltækninnar og vinnukonur og vinnumenn unnu bú- störfin með handafli. Foreldrar mín- ir voru jafnframt ávallt mjög upp- teknir. Í minningunni finnst mér eiginlega að enginn hafi haft tíma til að skipta sér af mér. Ég kunni vel að meta frelsið, gerði það sem mér sýndist og var minn eigin herra. Ég var öllum stundum úti í nátt- úrunni að leika mér, drullumallaði bæði kökur og eitthvað annað; ég raðaði steinvölum á ýmsan máta, fann fjöl sem ég lagði yfir læk og þar með bjó ég til brú yfir lækinn. Ég fann eitthvert spýtnarusl og bjó til úr því ýmislegt; lá á bakinu tímunum saman og horfði upp til skýjanna og sá stöðugt í þeim nýjar og nýjar myndir. Það voru endalausir mögu- leikar. Mér finnst að þessi reynsla bernsku minnar sé sá kjarni sem myndlistin mín spretti frá … og að í henni séu líka endalausir mögu- leikar. Leitandi og skemmtilega uppáfinningasöm „Og einkenni á þeim verkum sem Sigríður gerir langt fram á sjöunda áratuginn, eins og raunar á verkum Dieters frá sama tíma, er hve leit- andi og skemmtilega uppáfinninga- söm hún er. Þessi verk eru sjaldnast mjög stór, flest um 30 x 50 cm, lík- lega gerð við eldhúsborðið undir lág- nættið, eftir að börnin voru komin í háttinn. Þarna er um að ræða mál- verk á striga, tré, pappír, pappa, krossvið, masónít, álplötur og tré- tex. (Listakonan tók sérstöku ást- fóstri við 25 x 25 sm trétexplötur sem henni áskotnuðust á Landspít- alanum, vinnustað hennar til margra ára.) Myndirnar eru gerðar með olíulitum, bílalakki, akrýllitum, Hörpusilki, ritblýi, bleki, sprautu- tækni, eggjárnum og gasbrennara. Við þetta bætast svo fótógrömm, pastelteikningar, þrykk og rifrildi á pappír og síðan allrahanda samkrull þessara miðla og efniviða, að við- bættum aðskotahlutum og lífrænum úrgangi.“ Blendingur nýraunsæis og súrrealisma „Snemma á sjöunda áratugnum fer Sigríður einnig að sanka að sér og vinna með ýmislegt smálegt sem fellur til á hverju heimili: lok af dós- um, kork- og málmtappa af flöskum, þynnur og skrúfbolta og annað sem henni þykir áhugavert, einkum ef það er kringlótt í laginu. Hringlaga trébúta og afskurð af plaströrum fær hún einnig að hirða á verk- stæðum þar sem þau Dieter áttu hauka í horni. Þessi aðföng límir hún á tréplötur, málar þau í ýmsum lit- um eða þekur með einlita iðnaðar- málningu og lakki. Út úr þessum til- raunum koma áferðarmikil verk með „földu“ inntaki, eins konar blendingur nýraunsæis og súrreal- isma. Síðan færir hún sig upp á skaftið og tekur til handagagns af- lóga leikföng og púsluspil barna sinna og gæðir þau nýrri merkingu með því að skeyta þau saman á fleti og yfirmála. Á einhverju stigi lítur hún sennilega til safnara og sam- skeytisnillinga á borð við Arman og Daniel Spoerri, en sá síðarnefndi var einmitt í vinfengi við Dieter. En vinnubrögð Sigríðar eru hvergi nærri jafnskipuleg og þeirra, byggj- ast fremur á skyndilegum hug- dettum en langvarandi yfirlegum. Fyrir það varðveita verk hennar oft- lega með sér fölskvalausa leikgleði sem stundum fer forgörðum í yfir- veguðum verkum þessara frægu starfsbræðra hennar.“ Málaðar „formleysur“ „Hvað varðar málaðar „form- leysur“ Sigríðar, þá eru þær í heild- ina frjálslegri, óheflaðri og ófyrir- séðari en verk íslenskra starfsbræðra hennar á tímabilinu 1957-1960, að hluta til fyrir það að hún kemur inn í frjálsa abstraktlist án viðkomu í strangflatalist, og þeim aga sem henni fylgdi. Í víðasta skiln- ingi mætti flokka málverk hennar á þessu tímabili undir regnhlífar- hugtakið „informalisma“, en þar er átt við verk sem verða til fyrir sjálf- sprottnar og tilviljunarkenndar at- lögur að striganum, áherslu á tján- ingarmátt efniviðarins sjálfs og útilokun á viðteknum hugmyndum. Að vissu marki eru þessi verk tilvist- arleg, framkvæmdin getur af sér inntakið, og við framkvæmdina verður listamaðurinn þess áskynja hver hann er.“ Vitund, innsæi og ímyndunarafl „Sem innmúraður listmeðferðar- fræðingur, ef ég má taka svo til orða, kappkostar Sigríður að rækja trún- að við eigin vitund, innsæi og ímynd- unarafl, fremur en listasöguna og myndlistarstraumana í samtím- anum. Raunar leggja listmeðferðar- fræðingar fast að skjólstæðingum sínum að ganga á svig við allt sem heitir viðtekin aðferðafræði í mynd- list. Sigríður notar myndir sínar fyrst og síðast til að greiða úr þeim tilfinningum sem að henni sækja hverju sinni, grennslast fyrir um uppruna þeirra og eðli og öðlast með því aukinn skilning á sjálfri sér sem manneskju og listamanni. Innbyrðis fjölbreytileiki verkanna er til marks um fjölþætt tilfinninga- og vitundar- líf hennar á hverjum tíma. Sigríður leggur sjálf áherslu á viðvarandi og órjúfanleg tengsl myndlistar og list- meðferðar í ævistarfi sínu. „Þegar ég lít yfir farinn veg finnst mér að öll mín verkefni hafi verið eitt alls- herjar listmeðferðarprójekt,“ segir hún í nýlegu tilskrifi.“ Sterk formhyggja „Samskeytinga- og aðskotahluta- tímabilinu í myndlist Sigríðar lýkur á úthallandi sjöunda áratugnum og við tekur málaralist af ýmsu tagi. Hugsanlega má rekja þessi umskipti til sambandsslita þeirra Dieters, en með þeim rofnuðu tengsl listakon- unnar við þann vettvang róttækra myndlistartilrauna sem þau höfðu bæði tilheyrt fram að því. Eftir sem áður er málaralist Sigríðar jafnfjöl- skrúðug og samsettu verkin á und- an. Hún einkennist hins vegar af sterkri formhyggju fremur en ófyr- irsjáanleika og formleysu. Nærtæk- ast er að tengja þá stefnubreytingu við endurnýjuð kynni þeirra Sigríð- ar og Eyborgar Guðmundsdóttur. Þær Eyborg höfðu kynnst um miðj- an sjötta áratuginn, um það bil sem Sigríður sneri heim frá Danmörku. Þá hafði Eyborg ekki hafið mynd- listarferil sinn, en hreifst af hreyfi- listarverkunum sem Dieter kom með í farteskinu frá Kaupmanna- höfn árið 1957. Að beiðni hennar féllst Dieter á að segja henni til í myndlist og gerði það meðan bæði voru á landinu. Árið 1959 var Ey- borg síðan komin til Parísar, þar sem hún fann sér annan „mentor“, Victor Vasarely, og haslaði sér völl í formfastri op-myndlist. Þessa myndlist kynnti hún fyrir Sigríði í hvert sinn sem hún sneri heim frá París.“ Endalausir möguleikar Bókarkafli | Myndverk 1950-2019 heitir ný bók um listakonuna Sigríði Björnsdóttur. Í bókinni er að finna yfirlit yfir myndlistarferil Sigríðar. Meg- ingrein hennar fjallar um einstök tímabil á mynd- listarferli Sigríðar, helstu áhrifavalda og sérstöðu meðal samtímamanna hennar í myndlistinni. Ljósmynd/Bjarni Grímsson Náttúruskynjun Listakonan Sigríður Björnsdóttir á vinnustofu sinni á Öldugötu 17. Formhyggja Án titils, 1967. Akrýl á trétex, brennt. Gleðileg ól 577-5757 www.gamafelagid.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.