Morgunblaðið - 18.12.2019, Side 32
Verk Önnu Þorvaldsdóttur tón-
skálds er á lista New York Times
yfir 25 bestu hljóðrituðu klassísku
verkin. Það er Metacosmos en í
fyrra var verkið Aequilibria á list-
anum en það má finna á plötunni
Aequa sem kom út í fyrra.
Metacosmos var flutt af Sinfón-
íuhljómsveit Íslands undir stjórn
Daníels Bjarnasonar.
Anna aftur á árslista
New York Times
MIÐVIKUDAGUR 18. DESEMBER 352. DAGUR ÁRSINS 2019
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 670 kr.
Áskrift 7.240 kr. Helgaráskrift 4.520 kr.
PDF á mbl.is 6.420 kr. iPad-áskrift 6.420 kr.
Brasilíska liðið Flamengo leikur til
úrslita í fyrsta skipti í heimsbikar
karla í fótbolta, en liðið vann Al-
Hilal frá Sádi-Arabíu í undan-
úrslitum á Khalifa-vellinum í Katar í
gær, 3:1. Flamengo leikur annað-
hvort við Evrópumeistara Liverpool
eða Norður-Ameríkumeistara Mon-
terrey í úrslitum á laugardag, en
þau mætast í kvöld. »24
Suður-Ameríkumeist-
ararnir leika til úrslita
ÍÞRÓTTIR MENNING
„Mér hefur fundist algerlega frá-
bært að starfa hjá Haukum. Þess
vegna vil ég skilja vel við og halda
dyrunum opnum þannig að maður
gæti snúið aftur síðar,“ segir hand-
knattleiksþjálfarinn Gunnar Magn-
ússon meðal annars en hann er í
ítarlegu viðtali í blaðinu í dag.
Gunnar tilkynnti í gær að hann
myndi láta af störfum
hjá Haukum næsta
sumar og hefja
þess í stað störf hjá
Aftureldingu. »25
Vill skilja vel við eftir
frábært samstarf
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Barnabókin Friðbergur forseti eftir
Árna Árnason hefur fengið góða
dóma. „Viðtökurnar hafa verið mjög
góðar og framar öllum vonum,“ segir
höfundurinn, en Bjartur gefur út.
Þetta er fyrsta ritverk Árna. „Ég
hef lengi átt mér þann draum að
skrifa bók,“ segir hann. Einu sinni
sem oftar hafi hann endurmetið
stöðuna og lífið og komist að þeirri
niðurstöðu að tími væri til kominn að
láta verkin tala á kostnað drauma í
þessu efni. „Ég átti og rak auglýs-
ingastofu í átta ár og hluti af ákvörð-
uninni var að selja fyrirtækið, breyta
um hraða og vettvang og gefa mér
tóm til þess að sinna ritstörfum.“
Valið um hvernig bók hann vildi
skrifa var auðvelt. „Aldrei er nóg af
barnabókum og auk þess langaði
mig til þess að skrifa bók fyrir dótt-
ur okkar Kolbrúnar á meðan hún
væri á þessum aldri og njóta hennar
liðsinnis.“ Helena, sem verður 10 ára
í febrúar, hjálpaði föður sínum að
móta ákveðnar hugmyndir og gaf
öllum sögupersónum nafn. „Hún
lagði líka aðeins línurnar í sambandi
við hvað sagan ætti að fjalla um í
grunninn,“ segir Árni.
Helena er mikill lestrarhestur og
það ýtti enn frekar undir Árna að
skrifa barnabók. „Frá því hún var
pínulítil höfum við alltaf lesið mikið.
Áður las ég fyrir hana og eftir að
hún varð læs höfum við oft legið
uppi í rúmi og lesið hvort sína bók-
ina. Ég hef séð hvað lesturinn gefur
henni mikið og gerir mikið fyrir
hana og það hefur aukið enn frekar
trú mína á lestri sem hugarþjálfun
og uppeldistóli. Það er enn ein
ástæða þess að barnabók varð fyrir
valinu.“
Skrif Árna til þessa hafa að miklu
leyti snúist um auglýsingaskrif.
Geymdur en ekki gleymdur
Hann segist hafa skrifað mikið
fyrir „skúffuna“ á menntaskóla-
árunum á Akureyri og þá þegar hafi
hann átt sér þann draum að eiga
tíma til þess að skrifa. Brauðstritið
hafi komið í veg fyrir það. „Ég lagði
drauminn á hilluna en hann lét mig
samt aldrei í friði. Um árabil fólst
vinnan í því að skapa, en það er kvóti
á sköpun eins og öðru og þegar vinn-
an snýst um það að vera skapandi og
sniðugur er ekki mikið eftir til að
geta skapað þegar vinnudeginum
lýkur. Þess vegna þurfti ég að gera
breytingu á daglegu lífi til þess að
koma bókinni á koppinn.“
Friðbergur forseti fjallar um
krakka sem berjast gegn ranglæti
og fyrir betra samfélagi. „Boðskap-
urinn í bókinni er fyrst og fremst sá
að við eigum að vera óhrædd við að
hlusta á hjarta okkar og berjast
gegn ranglæti,“ segir Árni. Hann
bætir við að skrifin og kynning á
bókinni í skólum og víðar sé það
skemmtilegasta sem hann hafi gert.
„Ég er þegar byrjaður á því að móta
framhald af sögunni og svo eru ýmis
fleiri verkefni á teikniborðinu,“ segir
hann.
Á Bessastöðum Árni Árnason og Helena Árnadóttir færðu Guðna Th. Jóhannessyni forseta eintak af bókinni.
Hlustað á hjartað og
barist gegn ranglæti
Árni Árnason með framhald af sögunni um Friðberg forseta
Sími: 411 5000 • www.itr.is
Fyrir
líkama
og sál
Laugarnar í Reykjavík
Frá
morgnifyrir alla
fjölskylduna
í þínu
hverfi t il kvölds