Morgunblaðið - 20.12.2019, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 20.12.2019, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. DESEMBER 2019 Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is N ýr Magni lagði af stað frá Víetnam til Íslands hinn 19. október sl. og var væntanlegur til Rotter- dam fyrir helgina. Magni mun svo leggja í hann til Íslands strax eftir áramótin og yrði þá í Reykjavík fyrir miðjan janúar. Báturinn hefur þá lagt að baki rúm- lega 10.000 sjómílna siglingu. Eins og fram hefur komið í frétt- um er hinn nýi Magni smíðaður í Hi Phong í Víetnam. Skipasmíðastöðin Damen Shipyards í Hollandi smíðar bátinn, en hún rekur skipasmíðastöð í Víetnam ásamt fjölda annarra stöðva víðs vegar um heiminn. Smíði bátsins var boðin út í fyrra og voru tilboð opnuð í nóvember sama ár. Alls bárust 15 tilboð frá átta skipa- smíðastöðvum og var tilboði Damen Shipyards, að upphæð jafnvirði 1.040 milljóna, tekið. Hinn nýi dráttarbátur er 32 metra langur og 12 metra breiður. Hann er með tvær 2.025 kW aðalvélar (sam- anlagt 6.772 hestöfl). Togkraftur verður 85 tonn fram og 84 aftur. Er það helmingi meiri togkraftur en nú- verandi Magni hefur og sá sami og samanlagður kraftur allra fjögurra núverandi báta Faxaflóahafna. Ákveðið hefur verið að núverandi Magni fái nafnið Haki. Við þessi tímamót er fróðlegt að rifja upp sögu dráttarbáta í Reykja- vík, en sú saga spannar 91 ár. Mynd- irnar með greininni eru í eigu Faxa- flóahafna, nema annað sé tekið fram. Í hinu gagnmerka riti Guðjóns Friðrikssonar um 100 ára sögu Reykjavíkurhafnar, Hér heilsast skipin, kemur fram að mönnum varð ljóst á fyrstu árunum eftir að höfnin var fullgerð (1917), að brýn nauðsyn var að kaupa kraftmikinn dráttar- bát. Aflað var tilboða í nýsmíði en kostnaðurinn var talinn of mikill. Fyrsti Magni keyptur í Hamborg Niðurstaðan varð að kaupa átta ára gamlan bát í Hamborg í Þýskalandi. Báturinn kom til Reykjavíkur árið 1928 og hlaut nafnið Magni. Hann var knúinn 325 hestafla gufuvél. Magni 1 var í notkun fram á sumarið 1955 en var þá gerður að flotbryggju fyrir hafnsögubátana. Magni II. kom næstur og hann á sér merka sögu enda fyrsta stál- skipið sem Íslendingar smíðuðu. Magni liggur nú ásamt varðskipinu Óðni við safnabryggju Sjóminjasafn- sins í Gömlu höfninni í Reykjavík. Dráttarbáturinn Magni var smíð- aður í Stálsmiðjunni í Reykjavík og hannaður af Hjálmari R. Bárðarsyni skipaverkfræðingi (1918-2009) fyrir Reykjavíkurhöfn. Hjálmar var mik- ill frumkvöðull og hafði lengi haft hug á að smíða fyrsta stálskipið. Hjálmar hannaði bátinn svo að hann hentaði í flestöll verkefni auk aðal- verkefnisins, sem var að aðstoða skip og draga. Magna var hleypt af stokkunum í október 1954 og afhentur Reykja- víkurhöfn 25. júní 1955. Aðalvél og hjálparvél voru af gerðinni Deutz og dráttargetan 12 tonn. Lengst af var hann eini dráttarbáturinn sem höfn- in hafði yfir að ráða. Eins var Magni notaður mikið í vatnsflutninga til skemmtiferðaskipa á ytri höfninni. Árið 1986 bræddi aðalvél Magna úr sér og var bátnum lagt. Magni var afhentur Sjóminjasafninu til varð- veislu fyrir nokkrum árum. Holl- vinasamtök Magna hafa pantað nýja vél í bátinn og stefna af því að gera hann haffæran. Árið 1987 var ákveðið að kaupa tvo notaða dráttarbáta frá Hollandi. Hlutu þeir nöfnin Haki og Magni. Þeir voru 33 rúmlestir og höfðu 10 tonna togkraft. Haustið 1995 var gengið til samn- inga við Damen Shipyards í Hollandi um smíði nýs dráttarbáts. Kom hann til landsins vorið 1996 og fékk nafnið Magni. Var hann sá fjórði með því nafni. Nýi Magni var 76 rúmlestir og hafði 17 tonna togkraft. Fljótlega var ljóst að þörf væri á enn öflugri dráttarbáti, enda fóru skipin stækk- andi sem komu til hafnar. Ennfrem- ur var búið að stofna fyrirtækið Faxaflóahafnir sf. og athafnasvæðið var nú allur Faxaflóinn. Meðal ann- ars Grundartangahöfn, en þangað komu risastór súrálsskip. Nýjasti Magni kom 2006 Árið 2005 var því ráðist í að kaupa 141 tonns dráttarbát sem hafði 39,5 tonna togkraft. Var hann keyptur af skipasmíðastöð Damen, smíðaður í Rúmeníu og kom til landsins 2006. Magni, sá fimmti í röðinni, er enn að störfum. Á heimasíðu Faxaflóa- hafna segir að þörf fyrir svo öflugan dráttarbát hafi aukist árin á undan með komu mun stærri skipa. Í bátn- um eru mjög öflugar brunadælur. Góð aðstaða er fyrir áhöfn. Og enn stækka skipin og risastór skemmtiferðaskip koma hingað á sumrin. Þá mun Eimskip á næsta ári taka í notkun rúmlega 26 þúsund tonna vöruflutningaskip. Þörfin fyr- ir enn stærri dráttarbáta eykst því enn. Magni fyrsti kom til landsins 1928 og var í þjónustu hafnarinnar til ársins 1955. Keyptur í Þýskalandi. Magni sjötti var smíðaður í Víetnam á þessu ári. Báturinn er væntanlegur til landsins í næsta mánuði. Saga Magna spannar níu áratugi Fyrsti dráttarbátur Reykjavíkurhafnar kom til landsins 1928 og fékk nafnið Magni. Síðan þá hefur það verið hefð hjá höfninni að skíra öfl- ugasta dráttarbátinn því nafni. Eftir áramótin er nýr Magni væntanlegur í flotann. Báturinn var smíðaður í Víetnam og er langöflugasti dráttarbátur sem Reykjavíkurhöfn/Faxaflóahafnir hafa eignast. Stærri skip hafa kallað á að öflugri dráttarbátar verði til taks. Morgunblaðið/Hari Magni annar og Magni fimmti. Myndin var tekin þegar Magni V. færði nafna sinn að Slippnum, þar sem báturinn var hreinsaður og málaður. Ný vél verður sett í bátinn. Magni þriðji var keyptur notaður til landsins árið 1987. Magni fjórði var nýsmíði frá Hollandi. Kom til landsins 1996.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.