Morgunblaðið - 20.12.2019, Qupperneq 36

Morgunblaðið - 20.12.2019, Qupperneq 36
36 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. DESEMBER 2019 Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is J úlíus Kristinsson segir áhugavert að skoða betur þann möguleika að stunda tæknivædda skelfiskrækt umhverfis Ísland, og þannig búa til verðmæti úr þörungasvifinu í hafinu. Hann segir ef tækist að rækta t.d. krækling úr aðeins 1% af lífmassa þörngasvifs í íslenskri lög- sögu þá væri uppskeran verðmæt- ari en allur sá fiskur sem íslenskur sjávarútvegur veiðir í dag. Júlíus er doktor í líffræði með áherslu á lífeðlisfræði laxa og starf- aði m.a. í fiskeldisgeiranum áður en hann tók þátt í að koma Orf líftækni á laggirnar, þar sem hann er núna framkvæmdastjóri viðskiptaþróun- arsviðs. Í nýútkomnu riti Sjávarklasans, Bak við ystu sjónarrönd, birtist stuttur pistill eftir Júlíus um hvern- ig mætti hugsanlega nýta þör- ungasvifið. Hann bendir á að þör- ungasvif myndi megnið af öllum lífmassa í hafinu og sé upphafið á fæðukeðju sjávarlífvera. „Þörunga- svifið er fæða fyrir skeldýr, krabba- dýr og önnur smádýr sem síðan mynda dýrasvif sem fiskar eins og loðna og síld lifa á, sem svo aftur eru étnir af stærri fiskum og þannig koll af kolli,“ útskýrir Júlíus og bætir við að á hverju þrepi fæðu- keðjunnar tapist um 90% lífmass- ans. Frá veiðum til ræktunar En að nýta þörungasvif er hægara sagt en gert, og væri t.d. ill- mögulegt að ætla að t.d. eima þör- ungasvif úr hafi til að nota sem hrá- efni í fóður. Besta leiðin til að nýta þessa náttúruauðlind virðist vera að rækta t.d. krækling sem nærist á svifi sem hann sí- ar úr sjónum. Kræklingarækt er nú þegar stunduð í ein- hverjum mæli á nokkrum stöðum umhverfis Ísland en Júlíus segir forvitnilegt að ímynda sér hvernig greinin gæti orðið ef tækist að tæknivæða hana, ná enn betri tökum á rækt- uninni og um leið stórauka afköst greinarinnar og umsvif. Júlíus líkir þessu við það skref sem mannkynið tók þegar forfeður okkar tóku fyrst upp á því að fanga dýr og ala frekar en að veiða sér til matar. „Um leið væri verið að svara betur vaxandi matvælaþörf mann- kyns og auka hlut sjávarafurða í fæðuframboðinu en í dag fær heimsbyggðin aðeins 5% af fæðu sinni úr sjó á meðan 95% verður til á landi.“ Myndi byggjast á hugviti Þrátt fyrir mikla vinnu og metnað hefur skelfiskrætk átt erfitt upp- dráttar hér á landi og segir Júlíus að það standi þessari grein m.a. fyr- ir þrifum að kræklingarækt er mannaflsfrek og störfin allt annað en auðveld. Fyrir vikið séu það einkum lönd í Asíu, þar sem vinnu- afl er ódýrt, sem stunda kræklinga- rækt í miklu magni í dag. „Tækni- stigið er ekki hátt en mig grunar að megi gera betur og ná framförum af svipuðum toga og við höfum séð eiga sér stað í sjávarútveginum á undanförnum áratugum. Ætti að líta á skelfiskrækt sem nýsköp- unargrein og eitt risastórt nýsöp- unartækifæri.“ En til að skelfiskrækt geti tekið stór skref í átt að tæknivæðingu og vexti myndu margir þurfa að leggj- ast á eitt. Júlíus segir að helst þyrftu einkageiri og stjórnvöld að snúa bökum saman um gerð að- gerðaáætlunar sem myndi miða að því að byggja greinina upp og tæknivæða. „Aðstæður hér við land eru á margan hátt hentugar fyrir kræklingaræktun og tæknifyritæk- in sem þjónusta sjávarútvegin hafa fyrir löngu sýnt hvers þau eru megnug. Hér þurfum við að virkja hugvitið til að geta nýtt auðlindina.“ Júlíus ímyndar sér að aðgerða- áætlun fyrir kræklingarækt myndi m.a. fela í sér að ryðja úr vegi sem flestum hindrunum og auðvelda áhugasömum að hefja alls kyns ræktunartilraunir í stórum og smáum stíl. „Þó svo að tekjumögu- leikarnir geti verið miklir verður að gæta þess að leyfa uppbyggingunni að eiga sér stað áður en byrjað er að leita leiða til að leggja á greinina skatta og skyldur. Ef það er gert gætum við, að einhverjum tíma liðn- um, eignast mjög stóra og öfluga viðbót við atvinnulífið og útflutn- ingstekjur landsins.“ Verðmæti í þanginu Fleiri tækifæri af svipuðum toga kunna að kalla á nánari skoðun og nefnir Júlíus í því sambandi ræktun á þangi og þara. „Þar erum við líka að vinna með neðsta þrep fæðukeðj- unnar og nýta næringarsöltin í sjón- um og sólarorkuna. Nú þegar sjáum við fyrirtæki í Kína stunda tækni- vædda ræktun á þangi og fer rækt- unin fram samhliða skelfiskræktun í hringrás næringarnefna.“ Þörungasvifið gæti reynst gullnáma Ef tækist að nýta þör- ungasvif í hafinu um- hverfis ísland, s.s. með tæknivæddri ræktun á kræklingi, gæti það skapað mikil verðmæti AFP Sjómaður með köfunarbúnað hugar vandlega að kræklingarækt í sjónum undan ströndum Rabat í Marokkó. Kræklingar nýta þörungasvif sem fæðu og þykja herramannsmatur víða um heim. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Kræklingur er í boði á mörgum veitingastöðum á Íslandi. Júlíus B. Kristinsson Þörungasvif myndar fyrsta þrep fæðukeðjunnar í hafinu og megnið af lífmassanum sem þar er að finna. Ljósmynd/Wikipedia - NOAA MES

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.