Morgunblaðið - 20.12.2019, Síða 21
FÖSTUDAGUR 20. DESEMBER 2019 MORGUNBLAÐIÐ 21
„mikilvægt að halda því á lofti að stjórnvöld
hafa búið vel að Landhelgisgæslunni á undan-
förnum árum. Við erum með tvær nýlegar
leiguþyrlur, þyrluáhöfnum hefur verið fjölgað
um eina, við erum með nýlegt varðskip sem
og nýlega flugvél. Fyrir þetta erum við þakk-
lát.“
Nýjar þyrlur 2023 eða 2024
Talsverð nútímavæðing hefur átt sér stað inn-
an gæslunnar ef litið er til þess að leiguþyrl-
um gæslunnar, TF-GNA og TF-SYN, var
skipt út fyrir nýrri leiguþyrlur af gerðinni
Airbus H225 þyrlur, að sögn forstjórans sem
jafnframt segir TF-EIR og TF-GRO vera
fullkomnari en þær eldri. „Þær fljúga hraðar,
hafa meira flugþol og draga lengra. Með
þessari breytingu má segja að flugdeild
Landhelgisgæslunnar hafi stigið stórt skref
inn í nútímann. Þyrlurnar voru teknar í notk-
un í sumar og hafa reynst afar vel. Það var
hraustlega gert hjá flugdeildinni að innleiða
þessar nýju þyrlur á jafn skömmum tíma og
raunin var. Þjálfun var umfangsmikil og tíma-
frek. Allir lögðust á eitt og útkoman er glæsi-
leg. Allt er þetta gert til þess að auka þjón-
ustu við sjófarendur og almenning.“
Leiguþyrlurnar eru hins vegar ekki komn-
ar til að vera og eru þær hugsaðar til þess að
brúa bilið þangað til nýjar þyrlur verða
keyptar til landsins, en endurnýjun þyrluflot-
ans mun fara fram á næstu árum. „Það er
mikil- vægt framfaraskref fyrir Landhelg-
isgæsluna og þjóðina alla,“ segir forstjórinn
og vísar til þess að stjórnvöld samþykktu árið
2017 að stefnt skyldi að því að festa kaup á
þremur nýjum björgunarþyrlum og hefur
undirbúningur verkefnisins staðið yfir á þessu
ári.
Þá byggist ákvörðun um endurnýjun björg-
unarþyrla Landhelgisgæslunnar á skýrslu
stýrihóps dómsmálaráðherra og tekur fram-
kvæmd verkefnisins mið af þeirri skýrslu, út-
skýrir Georg. „Gert er ráð fyrir því að TF-
LIF, eina þyrlan sem Landhelgisgæslan á
verði seld en endaleg ákvörðun um tímasetn-
ingar og hvenær það ferli hefst hefur ekki
verið ákveðið. Útboðsferlið hefst um miðjan
janúar en það er í höndum Ríkiskaupa.“ Sam-
kvæmt áætlun er stefnt að því að ganga til
samninga við framleiðanda á síðari hluta
næsta árs og ef það gengur eftir má gera ráð
fyrir að nýjar þyrlur verði afhentar gæslunni
2023 eða 2024. Hins vegar mun þetta velta á
fleiri óþekktum breytum svo sem eftirspurn
eftir tegundinni sem verður fyrir valinu og
þeim búnaði sem krafist er þegar um er að
ræða björgunarþyrlur annars vegar. „Þetta
ferli tekur tíma,“ útskýrir forstjórinn.
Spurður hvort þessi þróun á sviði þyrlanna
sé til þess fallin að bæta viðbragðsgetu stofn-
unarinnar, svarar hann: „Tvímælalaust. Með
tilkomu sjöttu þyrluáhafnar getur Landhelg-
isgæslan sinnt þyrluútköllum á sjó, utan 20
sjómílna, stærstan hluta ársins. Þegar farið
er í útköll á sjó utan 20 sjómílna þurfa tvær
þyrlur og tvær áhafnir að vera til taks.“
„Skiptir máli að vera framsýn“
Landhelgisgæslan fékk í sumar til notkunar
mannlaust loftfar, eða dróna, sem gert var út
frá Egilsstaðaflugvelli í samstarfi við Sigl-
ingaöryggisstofnun Evrópu, EMSA. Forstjór-
inn kveðst sjá ýmsa kosti við slíkan búnað er
hann er spurður hvort líklegt sé að Landhelg-
isgæslan muni leita leiða til þess að auka
notkun dróna.
„Reynslan af drónanum var almennt góð og
gaf okkur góða sýn á það hvernig hægt er að
nýta slík tæki,“ segir hann og rifjar upp að
hann hafi verið nýttur við löggæslu, leit og
björgun og mengunareftirlit á hafinu um-
hverfis Ísland. „Dróninn kom meðal annars
auga á meint brottkast, fann bát sem stjórn-
stöð Landhelgisgæslunnar náði ekki sam-
bandi við og farið var að hafa áhyggjur af. Þá
auðkenndi hann sömuleiðis óþekkt skip og
báta í lögsögunni. Það er ljóst að drónar hafa
að einhverju leyti kosti fram yfir mönnuð loft-
för en líka galla. Þeir hafa mikið flugþol en
eru viðkvæmari fyrir veðrum en mönnuð loft-
för. Í framtíðinni er líklegt að Landhelgis-
gæslan komi til með að eignast slíkt tæki en
við erum ekki á þeim stað ennþá.“
Georg segir þó prófunum með drónatækni
hvergi nærri lokið enda fylgja fjölbreytt tæki-
færi tækninni og hefur stofnunin áhuga á að
fá þyrludóna frá EMSA sem gerður yrði út
frá varðskipunum. Það ferli er þó skammt á
veg komið, að sögn hans. „Áhöfn varðskipsins
gæti sent slíkt loftfar á undan sér þegar
kæmi að leit, björgun og eftirliti á hafinu. Það
skiptir máli fyrir Landhelgisgæsluna að vera
framsýn og opin fyrir þeim tæknimöguleikum
sem í boði eru enda eru möguleikarnir svo
sannarlega til staðar.“
Verkefni gæslunnar á árinu voru ekki ein-
angruð við viðburði hér innanlands á árinu og
hefur alþjóðlegt samstarf stofnunarinnar auk-
ist til muna, að sögn forstjórans. Landhelg-
isgæslan tók í apríl við formennsku í Arctic
Coast Guard Forum, samtökum strandgæslu-
stofnana á norðurslóðum, og mun hún gegna
hlutverkinu í tvö ár. Strandgæslur allra átta
aðildarríkja að norðurskautsráðinu (Banda-
ríkin, Danmörk, Finnland, Ísland, Kanada,
Noregur, Rússland og Svíþjóð) eru aðilar að
samtökunum.
Stór æfing á Íslandi í vor
„Á meðan Landhelgisgæslan gegnir for-
mennsku verður sértök áhersla lögð á að efla
samstarf [aðildar]ríkjanna átta enn frekar
þegar kemur að leit og björgun auk þess sem
mengunarvarnir og umhverfismál verða sett á
oddinn,“ segir Georg. Auk þess er stefnt að
umfangsmikilli æfingu samtakanna á Íslandi
á vorið 2021.
„Í október hittust sérfræðingar þeirra átta
ríkja sem aðild eiga að samtökunum og báru
saman bækur sínar. Þetta er sérlega mikil-
vægur vettvangur því ef slys eða óhöpp verða
á hafsvæði norðurslóða geta margir dagar lið-
ið áður en hjálp berst. Við slíkar aðstæður
skiptir samvinna sköpum til að tryggja öryggi
fólks og umhverfis. Alþjóðlega leitar- og
björgunarsvæðið sem Landhelgisgæslan,
fyrir hönd Íslands, er ábyrg fyrir er 1,9 millj-
ónir ferkílómetra og þá er gott að geta leitað
til nágrannaþjóða ef mikið liggur við. Það gef-
ur auga leið að með aukinni skipaumferð um-
hverfis landið er afar mikilvægt að vera við
öllu búinn og eiga þess kost að óska eftir að-
stoð ef þannig ber undir,“ útskýrir Georg.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Mannskapurinn er undir allt
búinn og veigra sér ekki við að
stökkva í sjóinn þótt kalt sé.
Það er allt gert til þess að sinna björgun á sjó af fagmennsku
og skila æfingar mikilvægri reynslu og þekkingu.
TF-GRO var í lykilhlutverki á æfingu
Landhelgisgæslunnar skammt utan
Grindavíkur 28. nóvember síðastliðinn.