Morgunblaðið - 20.12.2019, Page 29

Morgunblaðið - 20.12.2019, Page 29
FÖSTUDAGUR 20. DESEMBER 2019 MORGUNBLAÐIÐ 29 Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is U ppsjávarskipin sem eru í smíðum og frystitogari Nesfisks eru stór skip og lætur nærri að upp- sjávarskipin kosti hvort um sig um 4,5 milljarða króna og skip Nesfisks kostar litlu minna. Skip Samherja og Síldarvinnsl- unnar eru smíðuð hjá dönsku skipasmíðastöðinni Karstensens Skibsværft A/S. Skipin verða vel búin í alla staði, bæði hvað varðar veiðar og meðferð á afla, vinnuað- stöðu og aðbúnað áhafnar. Burðar- geta skipanna verður um 3.000 tonn af kældum afurðum. Skipin verða 88 metrar á lengd og 16,6 metrar á breidd. Börkur númer fimm Skip Samherja á að leysa Vilhelm Þorsteinsson EA 11 af hólmi, en hann var seldur til Rússlands fyrir ári. Nýr Vilhelm var væntanlegur um mitt næsta ár, en nú er útlit fyrir að skipinu seinki og það komi ekki fyrr en í lok ágústmánaðar. Hjá Karstensens er einnig verið að smíða nýjan Börk fyrir Síldar- vinnsluna í Neskaupstað. Hann verður systurskip Vilhelms og er gert ráð fyrir að skipið komi í byrjun árs 2021. Nýr Börkur kem- ur í stað eldra skips með sama nafni, sem verið hefur í eigu Síld- arvinnslunnar frá árinu 2014. Ný- smíðin verður fimmta skipið í eigu fyrirtækisins sem ber þetta nafn. Karstensens er með höfuð- stöðvar í Skagen í Danmörku, en auk þess rekur fyrirtækið skips- krokkamíðastöð í Gdynia í Pól- landi. Skrokkar skipanna verði smíðaðir í Póllandi, en skipin síðan dregin til Danmerkur þar sem þau verða fullkláruð. Nýr Baldvin smíðaður á Spáni Í haust var skrifað undir samninga um smíði á nýjum Baldvin Njáls- syni GK fyrir Nesfisk í Garði. Um flakafrystitogara verður að ræða, rúmlega 66 metra langt, 16 metrar á breidd og fullkomið skip í alla staði. Skipið verður smíðað hjá Ar- mon skipasmíðastöðinni í Vigo á Spáni og er væntanlegt hingað til lands seinni hluta árs 2021. Eldri Baldvin Njálsson GK er einnig frystitogari, smíðaður 1990, einnig í Vigo og bar áður nöfnin Rán HF og OttoWathne NS. Þá var stór frystitogari væntan- legur til Brims hf. á árinu, en samkvæmt tilkynningu fyrirtækis- ins til Kauphallarinnar í lok októ- ber ákvað Brim að ganga til samningaviðræðna við Arctic Prime Fisheries Aps., Qaqortog á Grænlandi, um kaup á þessari ný- smíði félagsins á Spáni. Gert var ráð fyrir að niðurstöður viðræðna lægju fyrir í síðasta lagi í lok þessa mánaðar. Þegar greint var frá smíðasamn- ingnum sumarið 2017 kom fram að samningsverðið væri rúmlega 44 milljón evrur eða sem nemur nú rúmlega sex milljörðum krónum. Um er að ræða stóran og afkasta- mikinn flakafrystitogara, 81,30 metra langan og 17 metra breiðan. Þá hefur Brim hf. boðað stór- tækar breytingar í fiskiðjuveri fyrirtækisins á Norðurgarði og undirritað samning við Marel um kaup og uppsetningu á hátækni vinnslubúnaði og hugbúnaði fyrir bolfiskvinnslu á Norðurgarði í Reykjavík. Áætlað er að nýja vinnslukerfið verði sett upp um mitt ár 2020. Uppbygging í landi Samherji tekur á útmánuðum í notkun fullkomið fiskiðjuver á Dal- vík, sem verður meðal þeirra full- komnustu í þessari grein. Fram kom, er samningar voru undirrit- aðir um lóðina á hafnarsvæðinu á Dalvík fyrir röskum tveimur árum, að áætluð fjárfesting í húsnæði og búnaði næmi um 3,5 milljörðum. Í byrjun þessa árs hófst fisk- vinnsla í nýju 2.700 fermetra full- komnu húsi G.RUN á Grundar- firði. Annars staðar í þessari samantekt er vikið að uppbygg- ingu og breytingum hjá Skinney- Þinganesi. Stór skip og fullkominn búnaður Verið er að smíða upp- sjávarskip fyrir Sam- herja og Síldarvinnsluna og í haust var samið um smíði á frystitogara fyrir Nesfisk í Garði. Óljóst er hins vegar hvað verður um frystiskip sem verið hefur í smíðum fyrir Brim hf. á Spáni. Tölvumynd/Skipasýn Tölvumynd/Af heimasíðu Síldarvinnslunnar Ljósmynd/Karstensens Nýr Vilhelm Þorsteinsson er umlukinn vinnupöllum í stöð Karstensens í Póllandi, tilsniðið efni bíður í hrönnum. Morgunblaðið/Sigurður Bogi Samherji tekur fullkomið fiskiðjuver í notkun á útmánuðum. Nýr Baldvin Njálsson GK 400 verður smíðaður í Vigo á Spáni fyrir Nesfisk í Garði og kemur í stað eldra skips með sama nafni. Nýr Börkur er væntanlegur til landsins eftir rúmlega eitt ár og verður systur- skip Vilhelms Þorsteinssonar EA 11 sem kemur í ágúst á næsta ári.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.