Morgunblaðið - 20.12.2019, Side 20

Morgunblaðið - 20.12.2019, Side 20
20 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. DESEMBER 2019 Gunnlaugur Snær Ólafsson gso@mbl.is Þ að hefur verið nóg um að vera hjá Landhelgisgæslunni á árinu sem er að líða, að sögn Georgs Kr. Lárus- sonar, forstjóra Landhelgisgæsl- unnar, sem segir jafnframt alla við- bragðsaðila hafa mátt þola mikið álag „þegar umfangsmikil verkefni eru annars vegar. Því skiptir öllu að það séu valdir menn og konur í hverju rúmi“. „Eins og svo gjarnan er hjá Landhelgis- gæslunni hefur árið verið annasamt á öllum vígstöðvum. […] Landhelgisgæslan er svo heppin að búa yfir öflugu og vel þjálfuðu starfsfólki sem þarf að glíma við hin ýmsu mál og þarf að vera til taks þegar mikið ligg- ur við. Það sýndi sig enn og aftur á dögunum þegar óveðrið geisaði um allt land. TF-LIF var flogið til Akureyrar þar sem hún var til taks auk þess sem varðskipið Þór sinnti hin- um ýmsu verkefnum á Norðurlandi eins og séraðgerða- og sprengjueyðingardeild stofn- unarinnar. Á bak við skipulagningu og sam- skipti voru svo varðstjórar í stjórnstöð og starfsmenn aðgerðasviðs. Allir sem að þessu komu stóðu sig óaðfinnan- lega.“ Þá hafa „hefðbundin Land- helgisgæsluverkefni verið fyr- irferðarmikil eins og alltaf er. Það er óhætt að segja að árið hafi verið viðburðaríkt,“ segir Georg. Þyrluútköllum fækkaði þó milli ára, en 2018 var lík- lega einstakt ár í þeim efnum enda var það metár ef litið er til fjölda út- kalla. Það ár voru heildarútköll flugdeildar Landhelgisgæslunnar 278. Þrekvirki á Norðurlandi Óveðrið sem gekk yfir landið 11. og 12. des- ember fór líklega ekki fram hjá mörgum landsmönnum og urðu víða skemmdir auk þess sem sumir landshlutar urðu rafmagns- lausir í marga daga. Þá er víða enn rafmagns- dreifikerfi í viðkvæmri stöðu og hafa ráða- menn meðal annars sagt veikleika hafa afhjúpast í óveðrinu. Forstjórinn segir Land- helgisgæslunni hafi gengið vel að takast á við þær aðstæður sem sköpuðust. „Áhöfnin á Þór og sérfræðingar unnu þrek- virki þegar tókst að sjá Dalvík og nærliggj- andi byggðarlögum fyrir rafmagni. Þetta var í fyrsta skipti sem varðskipið Þór var nýtt sem hreyfanleg rafstöð. Við hönnun skipsins var horft til þess að mögulegt yrði að senda raf- magn í land þar sem þörf væri á vegna raf- magnsleysis. Það var einstaklega ánægjulegt að geta aðstoðað íbúa með þessum hætti og sýnir vel hve miklu máli skiptir að varðskipin séu vel tækjum búin til að takast á við alls- kyns verkefni,“ segir Georg. Forstjórinn segir margar hendur hafa kom- ið að málum þegar óveðrið skall á og að sam- vinna starfsmanna Landhelgisgæslunnar og annarra viðbragðsaðila hafi verið til fyrir- myndar. „Áhöfnin á varðskipinu Þór stóð í ströngu alla vikuna sem og áhöfnin á TF-LIF sem var til taks fyrir norðan daga og nætur. Starfsmenn varnarmálasviðs brugðust hratt og örugglega við þegar óskað var eftir C 130 Herkúles flugvél frá danska flughernum sem flutti starfsmenn séraðgerðasviðs og björg- unarsveitarfólk á Akureyri. Landhelgisgæslan er Dönum afar þakklát fyrir hversu hratt þeir brugðust við. Um leið og við óskuðum eftir aðstoð sneru þeir flug- vélinni við sem var á leið til Grænlands með jólavarning. Það er ómetanlegt að eiga þess kost að geta leita til nágrannaþjóðanna þegar mikið liggur við. Allir voru boðnir og búnir að hjálpa okkur. Norðmenn voru einnig tilbúnir að senda flugvél frá Noregi en svo vel vildi til að danska vélin var hér við land.“ Það voru starfsmenn séraðgerða- og sprengjueyðingardeildar sem fóru með dönsku vélinni og tóku þeir að sér skipulagn- ingu öryggismála vegna leitarinnar að drengnum sem féll í Núpá. Var sú skipulagn- ing gerð í samvinnu við lögreglu og aðra við- bragðsaðila, en stjórnun á leitinni var flókin, að sögn Georgs. Það var síðan áhöfnin á TF- LIF sem kom auga á unga piltinn sem féll í ána. Var það einnig hlutverk þyrlunnar að fljúga með sérfræðing Landsnets í þeim til- gangi að kortleggja skemmdir á rafmagns- línum. „Það er á svona stundum sem það sést glögglega hversu vel viðbragðsaðilar á Íslandi vinna saman og eru mikið fagfólk. Björgunar- sveitir, slökkvilið, lögregla, Landhelgisgæslan og aðrir. Allir stóðu sig frábærlega og eiga hrós skilið fyrir aðkomu sína,“ segir hann. Ekkert skip við eftirlit Er forstjórinn er spurður hvort nokkurt skip hafi sinnt eftirliti á meðan varðskipið Þór hafi séð Dalvík fyrir rafmagni, seg- ir Georg svo ekki vera og að takmörkuð fjárframlög hafi orðið til þess að ekkert skip gæslunnar hafi verið á sjó hluta þess tíma sem Þór var við bryggju fyrir norðan. „Landhelgisgæslan gerir út tvö varðskip og tvær áhafnir. Það þýðir að yfir vetrarmán- uðina er siglingaáætlun Landhelgisgæslunnar þannig að annað skipið er þrjár vikur á sjó á meðan hitt er þrjár vikur í höfn. Æskilegast væri að hafa þrjár áhafnir til að geta haft tvö skip á sjó stóran hluta ársins en það kostar fjármuni sem við eigum ekki. Fyrstu dagana á meðan varðskipið Þór var bundið við bryggju á Dalvík var fasta áhöfnin á Tý í fríi. Ráðstafanir voru gerðar til þess að manna Tý ef mikið hefði legið við. Þarfagreining og áhættumat Landhelgis- gæslunnar gerir ráð fyrir að ætíð séu tvö varðskip á sjó hverju sinni með sambærilega getu og Þór, það er skip með yfir 100 tonna toggetu, vel búið til björgunar- og slökkvi- starfa og af þeirri stærð að það geti athafnað sig í þeim veðrum og því sjólagi sem við búum við á Íslandi. Eins og staðan er í dag er annað varðskipið á sjó hverju sinni en æskilegast væri að þau væru tvö á sjó stærstan hluta ársins. Til þess að svo gæti orðið þyrfti að hafa þrjú varðskip í rekstri auk þriggja áhafna. Í dag eru tvö varðskip í rekstri og tvær áhafnir. Eins væri mögulegt að auka út- haldsdaga með tveimur skipum ef við hefðum þrjár til fjórar áhafnir.“ „Stjórnvöld búið vel að Landhelgisgæslunni“ Hins vegar bendir Georg á að dómsmála- ráðherra hafi fengið verkfræði- og ráðgjafar- fyrirtækið NAVIS til að gera þarfagreiningu á varðskipaflota Landhelgisgæslunnar og tel- ur forstjórinn þetta fyrsta skrefið í endurnýj- un flotans. „Þá fögnum við því að heimild hafi verði veitt til að selja varðskipin Ægi og Tý. Skipin hafa staðið fyrir sínu í gegnum tíðina en eru komin til ára sinna. Ægir hefur ekki verið í hefðbundnum rekstri í rúm fjögur ár og ekki er til fjármagn til að koma skipinu í nothæft ástand. Á næstu árum er því fyrirséð að endurnýja þarf varðskipaflota Landhelgis- gæslunnar.“ Breytingar á skipaumferð og þróun á haf- inu umhverfis landið undanfarin ár hefur breytt starfsumhverfi Landhelgisgæslunnar talsvert, að sögn Georgs. Skemmtiferðaskipin sem hingað koma séu orðin fleiri, auk þess sem bæði flutningaskipin og fiskiskipin hafa orðið stærri. Bætist við að umferð um haf- svæðin umhverfis Ísland hefur aukist og „siglingaleið stórskipa yfir Atlantshafið liggur oft á tíðum innan íslensks hafsvæðis þar sem sjófarendur nýta sér veðurupplýsingar til að krækja fyrir lægðagang í Norður-Atlants- hafi“. Georg tekur sérstaklega fram að það sé „Árið anna- samt á öllum vígstöðvum“ Hjá Landhelgisgæslunni er viðburðaríkt ár að baki og hefur mikið álag verið á starfsmönnum stofnunarinnar. Forstjórinn hrósar öllum viðbragðsaðilum fyrir fagmennsku þeirra, en bendir jafn- framt á að fjárfestinga er þörf til þess að gæslan hafi þá við- bragðsgetu sem þörf er á. Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar, segir mikil tækifæri í mannlausum loftförum, en þau hafa sínar takmarkanir. „Það er á svona stundum sem það sést glögglega hversu vel viðbragðsaðilar á Íslandi vinna saman.“ Starfsmönnum gæslunnar þykir ekkert tiltökumál að síga úr þyrlu í varðskip.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.