Morgunblaðið - 20.12.2019, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 20.12.2019, Blaðsíða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. DESEMBER 2019 Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is H run loðnuveiða hér við land má mjög líklega rekja til breytinga á um- hverfisaðstæðum í haf- inu. Þetta segir Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur. Sem kunnugt er fannst engin loðna við Íslandsmiðum á þessu ári og litl- ar líkur virðast á loðnugöngum á því næsta. Í samræmi við aflareglu strandríkja lagði Hafrannsókna- stofnun til nú í haust, í samræmi við fyrrgreinda reglu, að engar loðnu- veiðar yrðu leyfðar á yfirstandandi fiskveiðiári. Sú ákvörðun verður endurskoðuð gefi mælingar á stærð veiðistofnsins ástæðu til. Samkvæmt bergmálsmælingum nýlega er hrygningarstofn loðnu nú metinn 186 þúsund tonn. Ráðgjöf um aflamark byggist á því að 95% líkur séu á að hrygningarstofninn í mars næstkomandi verði yfir 150 þúsund tonnum og samkvæmt fram- reikningum munu markmið aflaregl- unnar ekki nást. Ísþekjan á undanhaldi Um ástæður loðnubrests nú beinast sjónir manna meðal annars að hlýn- un sjávar fyrir norðan og vestan landið. „Hlýnunin á sér tvær orsak- ir,“ segir Einar Sveinbjörnsson. „Annars vegar kemur til innflæði hlýsjávar úr suðri fyrir vestan land og inn á norður- mið. Hluti þessa er vegna svokall- aðrar AMO- sveiflu. Sú kemur á 70-80 á ára fresti, en hún skipti yfir í já- kvæðan fasa laust fyrir aldamót og hefur svo verið síð- an. Áþekk breyting varð hér við land upp úr 1920.“ Hin skýringin á breytingum í loðnunni – og ef til vill sú veigameiri – er sú að minna er um hafís úr norðri samfara því að ísþekjan í N- Ísahafinu hefur skroppið saman. „Áður var landfastur ís við Austur- Grænland úti fyrir Vestfjörðum að sumrinu og fram á haust. Á síðari ár- um hefur ísjaðarinn hörfað langt norður með ströndinni þegar minnst er um hafís. Fyrir vikið er útbreiðsla kalds pólsjávar hér við land minni en var,“ segir Einar. „Ungloðnan heldur sig í og við pólsjóinn, á síðustu árum í mestum mæli við Austur-Grænland. Full- orðna loðnan fer stöðugt norðar í æt- isleit. Sú spurning er áleitin hvort þessi löngu ferðalög loðnunnar eftir æti séu henni um megn. Orkufrek um of og langt að fara á bestu hrygn- ingarslóðina á grunninu í Faxaflóa og Breiðafirði í áliðnum mars þegar vorblóminn í yfirborðssjónum byrjar að sýna sig eftir veturinn. Þessu má raunar líkja við sjófugla. Þó að þeir fljúgi langt eftir síli sjá allir að ef æt- isleiðangrarnir eru stuttir aukast lík- ur á að koma ungum á legg.“ Hugsanlegur nýliðunarbrestur Fyrrgreind þróun segir Einar Svein- björnsson að sé um margt svipuð því sem hefur verið raunin í Barentshafi, eins og fram kom í viðtali við Birki Bárðarson fiskifræðing í samtali við Morgunblaðið á dögunum. „Það er margt sameiginlegt í vistkerfunum í Barentshafi og við Ísland og á báð- um hafsvæðunum er loðnan í lægð. Í þessum loðnustofnum er hugsanlega einhvers konar nýliðunarbrestur og ekki ómögulegt að sú hlýnun sem hefur orðið í sjónum síðustu ár hafi haft áhrif,“ sagði Birkir í viðtalinu. Þar kom einnig fram að engar vís- bendingar séu um, hvorki við strendur Noregs og Íslands, að gengið hafi verið of nærri loðnu- stofnunum með veiði. Á báðum stöð- um gangi ráðgjöfin út á að skilja nóg eftir til hrygningar og ráðgjöf hafi verið fylgt. Loðnan er í svokölluðu þriðja fæðuþrepi vistkerfis sjávar. Neðar eru svifþörungarnir og dýrasvifið. Þorskfiskar, selir, sumir hvalir, og sjófuglar þurfa allir fæðu úr þessu þriðja þrepi. Þar er líka sandsíli og rækja. Sérstaklega er loðnan mik- ilvæg og meginfæðutegund þorsks sérstaklega mánuðina fyrir hrygn- ingu hans. Þessi veruleiki kann líka að hafa áhrif, segja vísindamenn. Óvissan um súrnun hafsins „Stundum er sagt að loftslagsbreyt- ingar hafi síður haft neikvæð áhrif hér á landi en gerist í öðrum heims- hlutum. Þetta er mikil einföldun,“ segir Einar Sveinbjörnsson. „Við höfum lært að aðlagast sveiflum í náttúrunni og þar með hafinu en er- um sérlega viðkvæm fyrir varan- legum breytingum og þegar röskun verður á viðkvæmri fæðukeðju hafs- ins. Mörgum spurningum er ósvarað enn og kenningar á lofti. Mest óviss- an er ef vil um súrnun hafsins og áhrif hennar einmitt á lífríkið í sjón- um sem við erum efnahagslega háð eins og gefur að skilja. Öflugar haf- rannsóknir eru Íslendingum því afar mikilvægar.“ Lítið um loðnu og eru umhverfisbreytingar líklegur áhrifaþáttur. Fullorðna loðnan fer stöðugt norðar. Röskun í fæðiskeðju hafsins. Morgunblaðið/Eggert Silfurflotinn er annað nafn yfir hafísinn, sem þjóðskáldið Matthías Jochumsson kallaði „landsins forna fjanda“ í einu hinna frægu kvæða sinna. Morgunblaðið/Ómar Einar Sveinbjörnsson Landað úr grænlensku loðnuskipi í Helguvíkurhöfn á Reykjanesi. Þessi agnarsmái fiskur hefur veiðst vel á Íslandsmiðum á undanförnum árum en nú hefur breyting orðið á. Hlýnun sjávar fælir loðnuna frá VIÐ S ENDUM ÞÉR OKKAR BESTU JÓLA- OG NÝARSKVEÐJUR ÞÖKKUM FYRIR VIÐSKIPTIN Á Á RIN U Miðhraun 2 · 210 Garðabær · Sími 587 1300 · kapp@kapp.is · www.kapp.is 664 131024 tímaþjónusta VESTMANNAEYJUM

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.