Fréttablaðið - 30.11.2002, Blaðsíða 1
BARNASPEKI
Alltof mikið
álag að
vera barn
bls. 34
Þverholti 9, 105 Reykjavík — sími 515 7500 Laugardagurinn 30. nóvember 2002
Tónlist 32
Leikhús 32
Myndlist 32
Bíó 34
Íþróttir 10
Sjónvarp 36
KVÖLDIÐ Í KVÖLD
JÓLATRÉ Jólaljósin
verða tendruð á
Hamborgartrénu
á Miðbakka
Reykjavíkurhafn-
ar í dag. Þetta er
í 37. sinn sem ljós
verða tendruð á
Hamborgartrénu.
Gefandi trésins er
Hamborgarhöfn en það er þakk-
lætisvottur til íslenskra sjómanna.
Ljósin verða tendruð klukkan
17:30 og syngur barna- og ung-
lingakór Dómkirkjunnar jólalög
við athöfnina.
Ljósin tendruð
STJÓRNMÁL Sjálfstæðismenn ganga
frá niðurröðun á framboðslista sína
í þremur kjördæmum í dag, í Suð-
vesturkjördæmi, Norðausturkjör-
dæmi og Suðurkjördæmi. Þar með
ræðst að líkindum pólitísk framtíð
Kristjáns Pálssonar innan Sjálf-
stæðisflokksins. Kjördæmisþing
afgreiðir tillögu þar sem Kristjáni
er ekki ætlað sæti. Þá stillir Sam-
fylkingin í dag upp á framboðslista
sinn í Norðvesturkjördæmi.
Gengið frá listum
FRUMSÝNINGAR Möguleikhúsið við
Hlemm frumsýnir í dag Jólarósir
Snuðru og Tuðru í leikgerð Péturs
Eggerz. Sýningin hefst klukkan
14:00. Þá frumsýnir Möguleikhúsið
klukkan 16:00 í dag leikritið Hvar
er Stekkjastaur? eftir Pétur Eggerz
en hann stýrir báðum sýningunum.
Jól í leikhúsi
FRÆGÐ
Bowie bauð
góðan dag
LAUGARDAGUR
241. tölublað – 2. árgangur
bls. 22
NAFNIÐ
Gamla skellti
hurðum
bls. 16
REYKJAVÍK Suðaustan
10-15 og rigning. Hiti verður
á bilinu 5 til 10 stig.
VEÐRIÐ Í DAG
VINDUR ÚRKOMA HITI
Ísafjörður 10-15 Rigning 9
Akureyri 8-13 Rigning 7
Egilsstaðir 8-13 Skýjað 6
Vestmannaeyjar 3-8 Skúrir 9
➜
➜
➜
➜
+
+
+
+
STJÓRNMÁL „Þessar hótanir hafa
bæði verið undir rós og ekki, í
síma og úti á götu,“ segir Ellert
Eiríksson, formaður kjörnefndar
sjálfstæðismanna í Suðurkjör-
dæmi, en fjölskylda hans hefur
orðið fyrir verulegu ónæði vegna
þróunar framboðsmála flokksins í
kjördæminu. „Þeir geta djöflast í
mér eins og þeir vilja en ég vil
halda konu minni og dóttur fyrir
utan þetta. Konan kveinkaði sér
og var að kikna undan þessu,“ seg-
ir Ellert.
Kristján Pálsson alþingismað-
ur, sem ekki var stillt upp á lista
sjálfstæðismanna í Suðurkjör-
dæmi, segir hótanirnar ekki frá
sér komnar og hann harmi þær.
Ljóst er því að það eru stuðnings-
menn hans sem hafa þær í fram-
mi:
„Það er verið að skamma konu
mína og dóttur fyrir misgjörðir
sem hafa ekki átt sér stað. Við í
uppstillingarnefndinni erum ekki
vísvitandi að koma manni fyrir
kattarnef eins og ætla mætti af
hótununum. Þetta er ómaklegt,“
segir Ellert. ■
Ellert Eiríksson um hótanir vegna framboðsmála:
Konan var að kikna
FRAMBOÐ Valgerður Sverrisdóttir,
iðnaðar- og viðskiptaráðherra, og
Jón Kristjánsson,
heilbrigðis- og
tryggingamálaráð-
herra, munu takast
á um fyrsta sætið á
lista Framsóknar-
flokksins í Norð-
austurkjördæmi.
Valið verður í 10
efstu sætin á aukakjördæmisþingi
11. janúar næstkomandi og verður
kosið um öll sætin í einu.
„Ég býð mig fram til að leiða
lista Framsóknarflokksins og
skipa 1. sætið,“ segir Valgerður og
bætir við að hún leggi verk sín
óhikað undir dóm kjósenda. Það
gerir Jón Kristjánsson líka en
hann var fyrri til að gera tilkall til
1.sætisins.
Aðrir blanda sér ekki í slaginn
um toppsætið. Viðmælendur blaðs-
ins eru fleiri á því að Valgerður
hafi betur í slagnum, hún hafi mun
stærra kjördæmi á bakvið sig en
Jón, ef litið er til eldri kjördæma-
skipunar en baráttan ku háð á þeim
nótum. Þó sækir Valgerður líka
fylgi í gamla Austurlandskjör-
dæmi, getur þar flaggað byggingu
álvers með tilheyrandi uppbygg-
ingu. Á móti segja fylgismenn Jóns
að hann sé traustur fram úr hófi,
hafi landað með ágætum öllum
þeim erfiðu málum sem á hans
borð hafa borist og geti ekki síður
sótt fylgi í vígi Valgerðar.
Spennan er ekki síðri þegar
kemur að 3. sætinu. Þrjú hafa þeg-
ar gert tilkall til þess og sækja
það stíft en þau eru Þórarinn Egill
Sveinsson, formaður kjördæmis-
sambands flokksins í Norðaustur-
kjördæmi, Daníel Árnason og
Dagný Jónsdóttir, formaður Sam-
bands ungra framsóknarmanna. Á
góðum degi ætti þriðja sætið að
vera þingsæti og því mikið í húfi.
Aðrir sem þegar hafa stimplað
sig inn fyrir aukakjördæmisþing-
ið eru Birkir Jón Jónsson, aðstoð-
armaður félagsmálaráðherra,
Skafti Ingimarsson, formaður
ungra framsóknarmanna á Akur-
eyri, Arngrímur Viðar Ásgeirsson
og Katrín Ásgrímsdóttir, systir
Halldórs Ásgrímssonar formanns
Framsóknarflokksins. Ekkert
þessara hefur sett stefnuna ofar
en 4. sætið.
Fleiri nöfn gætu bæst við en
framboðsfrestur rennur út á
morgun.
the@frettabladid.is
Ráðherrar takast
á um toppsætið
HALLDÓR ÁSGRÍMSSON Ef það er gott og nauðsynlegt fyrir aðrar Evrópuþjóðir, hvað veldur því að það er ekki gott fyrir Ísland, spurði
formaðurinn við upphaf miðstjórnarfundar Framsóknarflokksins í gær. Hann vísaði til umræðna um hugsanlega Evrópusambandsaðild Ís-
lendinga og sagði rangt að útiloka aðild um aldur og ævi. Nánar á bls. 2.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T
Á góðum
degi ætti
þriðja sætið
að vera þing-
sæti og því
mikið í húfi.
NOKKRAR STAÐREYNDIR UM
MEÐALLESTUR FÓLKS Á ALDRINUM 12 TIL 80 ÁRA
Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU ER 69,6% SAMKVÆMT
FJÖLMIÐLAKÖNNUN GALLUP Í OKTÓBER 2002.
Fr
é
tt
a
b
la
ð
ið
M
o
rg
u
n
b
la
ð
ið
Meðallestur vikunnar
meðal 25 til 49 ára
samkvæmt
fjölmiðlakönnun
Gallup frá
október 2002
29%
D
V
80.000 eintök
70% fólks les blaðið
Hvaða blöð
lesa 25 til 49
ára íbúar á
höfuðborgar-
svæðinu?
62%
72%
debenhams
S M Á R A L I N D
fia› er einfalt
Gjafabréf gle›ja
FRÉTTASKÝRING
Dómsmál:
Dómari tjáir sig
um umdeilda dóma
▲
bls. 12
Baráttan um efstu sætin á lista Framsóknarflokksins í Norðausturkjör-
dæmi er í fullum gangi. Tveir ráðherrar bítast um toppsætið. Baráttan
um 3. sætið verður ekki síður spennandi en þar eru að minnsta kosti
þrír kallaðir. Systir flokksformannsins blandar sér í slaginn.
REYKJAVÍKURFLUGVÖLLUR
Aðstandendur hyggjast vísa málinu
til ríkissaksóknara.
Rannsókn Skerja-
fjarðarslyssins:
Rannsókn
hætt
LÖGREGLUMÁL „Þetta kemur mér
ekki á óvart. Niðurstaðan er reg-
inhneyksli og segir allt sem segja
þarf um gæði rannsóknar lögregl-
unnar. Ég efast mjög um þau,“
sagði Friðrik Þór Guðmundsson
um þá ákvörðun lögreglu að hætta
lögreglurannsókn í tengslum við
flugslysið í Skerjafirði 7.ágúst
2000. Flugmaður vélarinnar og
fimm farþegar létust. Rannsókn-
argögn gefa að mati lögreglu ekki
tilefni til frekari aðgerða og er
málið því fellt niður. Friðrik Þór
krafðist opinberrar rannsóknar,
þar sem hann taldi að flugrekandi
hefði brotið lög og reglur og það
hefði átt sinn þátt í slysinu.
„Við munum áfrýja þessari
ákvörðun til ríkissaksóknara. Við
erum 100% viss um að alvarleg
lögbrot voru framin og ætlum að
sannfæra saksóknara um að svo
hafi verið,“ sagði Friðrik Þór Guð-
mundsson. ■
bls. 20
HALLGRÍMUR:
Hinir
landlausu
MIKAEL:
100 árum
of seinn
bls. 20