Fréttablaðið - 30.11.2002, Blaðsíða 44
44 30. nóvember 2002 LAUGARDAGUR
TÓNLEIKAR Jóhanna Guðrún er mik-
ið jólabarn og segist löngu vera
komin í jólaskapið. Það er kannski
ekki undarlegt í ljósi þess að ný-
verið hljóðritaði hún sín uppá-
haldsjólalög.
„Eitt af mínum uppáhaldsjóla-
lögum heitir „Óskastund“ og er
frá Singapore,“ svarar Jóhanna
Guðrún, þrælsjóuð í viðtalstækn-
inni, þegar blaðamaður spurði um
lögin sem kæmu henni í jólaskap-
ið. „Svo er það náttúrulega „Ó,
helga nótt“, „Litla Jólabarn“ og
þessi gömlu góðu.“
Jóhönnu fannst gaman að gera
jólaplötu og segir það hafa verið
mikla upplifun. „Ég gæti líka trú-
að því að þessi plata lifi lengur þó
að hún sé ekki spiluð allan ársins
hring eins og hinar. Fólk fær ekki
eins fljótt leið á þessari af því að
hún er bara spiluð um jólin.“
Hún segist ekkert stressuð fyr-
ir morgundaginn þrátt fyrir að
þetta séu hennar fyrstu stórtón-
leikar og verði tvennir sama dag.
„Ég er eiginlega aldrei stressuð
yfir því að fara á svið. Það er ekk-
ert sem getur gerst til þess að
stressa sig út af. Ef röddin brest-
ur, þá bara brestur hún. Ég verð
örugglega þreytt en þetta verður
samt ekkert mál. Það er mín fíkn
að syngja.“
Ásamt Jóhönnu kemur fram
ung stúlka að nafni Halldóra sem
varð í öðru sæti í söngkeppni á
Ítalíu í síðustu viku. Ekki er ólík-
legt að jólasveinarnir stelist í bæ-
inn snemma til þess að styrkja
gott málefni.
Fyrri tónleikarnir hefjast kl.15
og þeir seinni þremur tímum síð-
ar. Aðgangseyrir er 1.500 kr. og
rennur allur ágóði til Samtaka
langveikra barna. Miðar fást í
verslunum Hagkaupa. ■
Söngkonan Jóhanna Guðrún Jónsdóttir
heldur á morgun tvenna jólatónleika í Aust-
urbæ til styrktar langveikum börnum. Hún
er mikið jólabarn og gaf nýverið út sína
fyrstu jólaplötu.
Persómam
„Að syngja er mín fíkn“
www.urvalutsyn.is
Lágmúla 4: 585 4000 • Hlí›asmára: 585 4100
Keflavík: 420 6000 • Akureyri: 460 0600 • Selfossi: 482 1666
og hjá umbo›smönnum um land allt
Úrval-Úts‡n
Frábær 10 daga fer›. Gist er á Hotel
Shandrani me› hálfu fæ›i og skí›apassinn
er innifalinn. Flogi› er í beinu leiguflugi til Verona.
*Innifali›: Flug, flugvallarskattar, gisting í 10 nætur me› hálfu fæ›i á Hotel Shandrani,
lyftukort, akstur til og frá flugvelli erlendis. Fararstjóri er Örn Kjærnested.
15. janúar - Ein me› öllu
Sí›ustu sætin í frábæra vikufer› á skí›i í Ítölsku
ölpunum, Selva Val Gardena e›a Madonna di Campiglio.
*Innifali›: Flug, flugvallarskattar, gisting í viku, akstur til
og frá flugvelli erlendis og íslensk fararstjórn.
1. febrúar - Vikufer›
Flug og bíll
1. febrúar í viku
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
U
RV
1
95
12
11
/2
00
2
3. janúar - 12 dagar
Sí›ustu sætin
45.980 kr.*
Ver›:
112.480 kr.*
á mann í tvíb‡li
Ver› á mann
46.100 kr.*
á mann, m.v. 4 í bíl
53.300 kr. á mann,
m.v. 2 í bíl.
Ver›dæmi:
83.880 kr.*
á mann í tvíb‡li á Garni Miara.
*Innifali›: Flug og flugvallarskattar.
á skí›i í vetur
Sértilbo› fyrir námsmenn 3. janúar til Ítalíu.
Námsmenn athugi›
19.900 kr.
Ver› á mann a›ra lei›ina (flug og flugvallarskattar).
*Innifali›: Flug, flugvallarskattar og bílaleigubíll í viku.
Ód‡r flugsæti til Verona.
10
dagar
Íslensku tónlistarverð-
launin 2002:
Leaves fá
fjórar tilnefn-
ingar
VERÐLAUN Tilnefningar til íslensku
tónlistarverðlaunanna árið 2002
voru kynntar í forsal Borgarleik-
hússins í gær. Það kemur helst á
óvart hversu dreifðar þær eru í
ár. Hljómsveitirnar Sigur Rós og
Leaves fá fjórar tilnefningar hvor
auk Bubba Morthens. Allir keppa
þeir í sömu flokkunum fjórum
fyrir „plötu ársins“, „lag ársins“,
„söngvara ársins“ og „flytjanda
ársins“. Athygli vekur að ótvíræð-
ir sigurvegarar verðlaunanna í
fyrra, XXX Rottweilerhundar, fá
enga tilnefningu í ár fyrir aðra
plötu sína „Þú skuldar“.
Hljómsveitin Írafár fær þrjár
tilnefningar. Þrír nýliðar keppa
um „plötu ársins“. Það eru Ske,
Leaves og Móri, fyrsti glæparapp-
ari landsins, sem keppa við Sigur
Rós, Bubba og KK. ■
HELSTU TILNEFNINGAR FYRIR
ÍSLENSKU TÓNLISTARVERÐLAUNIN
2002:
SÍGILD TÓNLIST
FLYTJANDI ÁRSINS
Caput
Hamrahlíðarkórinn og Þorgerður Ingólfs.
Kammersveit Reykjavíkur
Kolbeinn Bjarnason
Sinfóníuhljómsveit Íslands
DJASS
DJASSFLYTJANDI ÁRSINS
Jóel Pálsson
Davíð Þór Jónsson
Óskar Guðjóns/ Skúli Sv.
Björn Thoroddsen
Tómas R. Einarsson
POPP
BJARTASTA VONIN
Hera
Singapore Sling
Búdrýgindi
Santiago
Worm is green
Afkvæmi guðanna
Þórunn Antonía
FLYTJANDI ÁRSINS
Apparat Organ Quartet
Bubbi
Ensími
Leaves
Múm
Sigur Rós
SÖNGVARI ÁRSINS
Arnar Guðjónsson (Leaves)
Björn Jörundur Friðbjörnsson (Nýdönsk)
Bubbi
Egill Ólafsson (Stuðmenn)
Jón Þór Birgisson (Sigur Rós)
Páll Rósinkranz
SÖNGKONA ÁRSINS
Birgitta Haukdal (Írafár)
Hera Hjartardóttir
Margrét Eir Hjartardóttir
Ragnhildur Gísladóttir (Stuðmenn)
Urður Hákonardóttir (Gus Gus)
Þórunn Antonía
LAG ÁRSINS
Leaves - Catch
Sigur Rós - Lag nr.4
Írafár - Ég sjálf
Ske - Julietta 2
Sálin - Þú fullkomnar mig
Bubbi - Við Gróttu
PLATA ÁRSINS
Bubbi Morthens - Sól að morgni
KK - Paradís
Leaves - Breathe
Móri - Móri
Sigur Rós - ( )
Ske - Life, Death, Happiness & Stuff
JÓHANNA GUÐRÚN
Jóhanna Guðrún syngur á morgun á
tvennum tónleikum til styrktar lang-
veikum börnum í Austurbæ (fyrrum
Austurbæjarbíó við Snorrabraut).
Leikfélag
Mosfellsbæjar
Beðið eftir
Go.com air
í Bæjarleikhúsinu
við Þverholt
síðasta sýning
í kvöld 30/11 kl. 20
Miðapantanir í síma 566 7788
Miðasala opnuð 2 tímum fyrir sýningu
Kíktu á www.leiklist.is
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T