Fréttablaðið - 30.11.2002, Blaðsíða 23

Fréttablaðið - 30.11.2002, Blaðsíða 23
Við erum hætt að nota rauða vaxið utan um Brauðostinn. Það var vissulega góð vörn á sínum tíma en með fullkomnari pökkunar- og geymslu- aðferðum er það óþarfi. Aukin hagkvæmni skilar sér einnig í lækkuðu útsöluverði. Brauðostur er hollur, bragðgóður og ákaflega notadrjúgur. Við erum vaxin upp úr vaxinu! 23LAUGARDAGUR 30. nóvember 2002 Ég hef hitt svo fáa fræga og getalls ekki gortað mig af slíkum afrekum. Það er svo afstætt hvað mönnum finnst um það. En ef þú ert að fiska eftir frægum Íslend- ingum þá get ég upplýst hér og nú að ég þekki Hafliða Arngrímsson, dramatúrg í Borgarleikhúsinu, en mér finnst hann mjög frægur,“ segir Finnur Arnar Arnarson, myndlistarmaður og leiktjalda- hönnuður. Finnur Arnar segist oft hafa verið í útlöndum og hitt frægt leikhúsfólk sem honum hafi þótt mikið til um að hitta. „Öðrum kann að finnast það hjóm eitt og myndu vísast ekki vita um hvern ég væri að tala ef ég nefndi ein- hvern. En að ég hafi fengið í hnén af æsingi yfir einhverjum sem ég hef hitt, þess minnist ég ekki.“ Finnur undanskilur ekki alla heimsfrægu leikarana sem hann vinnur með á hverjum degi. „Nei, fjarri lagi. Ég er alveg sallarólegur þegar ég hitti þá í vinnunni. Meira að segja hann Balti kemur ekki blóðinu á hreyfingu.“ ■ Meira að segja Balti kemur blóðinu ekki á hreyfingu FINNUR ARNAR ARNARSON Hann segist ekki fá í hnén þegar hann hittir vinnufé- lagana í leik- húsinu. Finnur Arnar hefur verið bless- unarlega laus við að hitta þá frægu en undanskilur þó þá sem eru frægir í hans augum. Ég hitti eitt sinn George Busheldri, þáverandi Bandaríkja- forseta, í móttöku á Hótel Sögu. Ég býst við að hann sé frægastur allra sem ég hef hitt,“ segir Jóna Dóra Karlsdóttir, forseti bæjar- stjórnar í Hafnarfirði. Jóna Dóra er ekki viss um hvenær það var en líklega hefur Guðmundur Árni Stefánsson, maður hennar, verið annað hvort bæjarstjóri eða heil- brigðisráðherra á þeim tíma. „Ég gerði nú ekki annað en taka í höndina á honum og muldra eitt- hvað; meira var það ekki. Ég var hins vegar í London þegar ég var ung og ólofuð að vinna á hóteli í Richmond. Í húsinu á móti bjuggu þá Rod Stewart og Ron Wood og við sáum þá daglega á ferli. Við vinkonurnar vissum aldrei hvað fór fram í þessu húsi því það var þvílíkt rennsli af fólki þarna út og inn. Stundum var svo mikið um að vera að við máttum ekkert vera að því að búa um rúm heldur lágum við úti í glugga og fylgdumst með.“ Jóna Dóra man einnig eftir at- viki á Heathrow-flugvelli í London en þá var hún þar stödd á leið heim. „Ég veitti því athygli hvar stóð maður í bleikum jakka og fannst ég kannast við hann. Þegar betur var að gáð sá ég að þetta var knattspyrnumaðurinn Bobby Moore, sem lengi var fyr- irliði enska landsliðsins. Hann dó skömmu síðar úr krabbameini. Ég hefði örugglega ekki tekið eft- ir honum ef hann hefði ekki klæðst þessum skelfilega bleika jakka.“ Jóna Dóra segir að ekki megi gleyma öllu kóngafólkinu sem hún hefur setið veislur með. „Það er kannski ekki svo frægt miðað við Bush og Rod Stewart.“ ■ Bjó í næsta húsi við Rod Stewart JÓNA DÓRA KARLSDÓTTIR Hún vann á hóteli í London og bjó þá í næsta húsi við Rod Stewart og Ron Wood. Auk þess hefur Jóna Dóra hitt Bush eldri fyrrum Bandaríkjaforseta og kónga- fólk bæði ungt og gamalt. GEORGE BUSH Jóna Dóra hitti þáverandi Bandaríkja- forseta í móttöku á Hótel Sögu. og orðin leið á slíku spjalli í flugvél- um sem alltaf er á sama veg. Ég steinsofnaði strax eftir mat- inn og hálflá á öxl sessunautar míns, eflaust gapandi og slefandi það sem eftir var ferðarinnar. Þeg- ar við lentum í Keflavík var hann fyrstur út úr vélinni og ég næst á eftir honum. Þá sé ég að það er ein- hver viðbúnaður við tollhliðið, þar er fullt af blaðaljósmyndurum og Hemmi Gunn er þar fremstur í flokki með stóran blómvönd. Þá datt mér í hug að eflaust væri ver- ið að velja milljónasta farþegann eða eitthvað viðlíka! Ég ætlaði nú ekki að láta sætisfélagann verða á undan mér og hreppa vinninginn, svo ég skaut fram hökunni, æddi heldur stórstíg fram úr honum og kinkaði kolli niður til hans í leið- inni. En þegar ég kom að móttöku- nefndinni þá þustu allir framhjá mér og í flasið á Gary. Ég spurði tollarann forviða hvað væri eigin- lega um að vera og þá sagði hann mér að hópurinn væri að taka á móti Gary Kasparov, heimsmeist- ara í skák, sem væri að koma til landsins. Ég var heldur kindarleg þetta sama kvöld þegar ég sá sjálfa mig í fréttatímum beggja sjónvarps- stöðva þar sem ég stikaði fram úr Kasparov á síðustu metrunum í von um stóra vinninginn...“ ■ MARGRÉT SVERRISDÓTTIR Hún ætlaði alls ekki að láta þann litla hafa af sér verðlaun- in og skaut því fram hökunni til að komast framhjá honum. FRÉTTAB LAÐ IÐ /RÓ B ERT

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.