Fréttablaðið - 30.11.2002, Blaðsíða 22

Fréttablaðið - 30.11.2002, Blaðsíða 22
22 30. nóvember 2002 LAUGARDAGUR Frægðin er mörgum eftirsóknarverð og færri fáað njóta hennar en vilja. Við sem aldrei náumsvo langt að komast í tæri við frægðina eigum þó alltaf þann möguleika að geta, yfirleitt fyrirvaralaust, barið þá frægu augum Jafnvel gefst okkur stundum færi á að heilsa og eiga við þá orð. Stuðmenn sungu um mann sem var ofboðslega frægur og var enginn venjulegur maður. Mannræfill- inn sem varð þess aðnjótandi að taka í höndina á hon- um hrökk gjörsamlega í kút og hélt að hann myndi fríka út. Það gekk svo langt að hann hélt að hann væri að dreyma þetta allt saman. Viðmælendur okkar lentu ekki í neinu viðlíka. Þeir héldu allir ró sinni og höfðu í mesta lagi létt gaman af. Einn svaf með þann fræga við hliðina á sér, annar fór með honum í gleðskap og sá þriðji bjó í næsta húsi og fylgdist með frægðinni út um gluggann. Það er ekki á hverjum degi sem frægar stjörnur verða á vegi manns og hvort sem við viljum viður- kenna það eða ekki þá höfum við lúmskt gaman af. Ofboðslega frægur - enginn venjulegur maður Frægðin er afstæð. Þeim frægu þykir vafalaust lítið til koma þegar þeir hitta aðra fræga. En við sem búum fjarri öllum stjörnunum höfum lúmskt gaman af. Ragnheiður Smáradóttir er réttliðlega tvítug og á vafalaust eftir að hitta marga fræga á lífs- leiðinni. Hún segist alls ekkert hafa á móti því að hitta þá ríku og frægu en komst aðeins í snertingu við það í Kaliforníu þegar hún var þar fyrir fáum árum. „Ég var í gleðskap með vinum mínum sem haldið var úti í garði af tilefni Memorial Day. Þar var einn gest- anna sem bauð okkur í partí á Ven- ice Beach í upptökustúdíó sem var í eigu Perry Farrell. Mér hefur alltaf þótt mikið til hans koma en átti alls ekki von á að hitta hann þar. Þegar við komum á staðinn tók hann á móti gestunum og bauð okk- ur inn.“ Fyrir þá sem ekki vita hver Perry Farrell er þá syngur hann með hljómsveitinni Jane´s Addict- ion sem Ragnheiður segir vera mjög þekkta ytra en margir hérna þekki þessa hljómsveit einnig. „Hann var mjög almennilegur, spjallaði heilmikið og spurði um Ísland. Í framhaldi heimsóknar- innar bauð hann okkur í klúbb þar sem hann hafði alla efri hæðina fyrir sjálfan sig og gesti. Það stóð til að hann færi með okkur á skemmtistaðinn Viper Room, en þar eru allar frægu stjörnurnar að skemmta sér. Áður en af því varð fórum við heim. Hálft í hvoru sé ég eftir að hafa ekki beðið eftir því að fara með honum.“ ■ Hitti Perry Farrell Ragnheiður Smáradóttir fylgist vel með nýjustu straumum í tónlist. Perry Farrell hafði hún mikið hlustað á þegar hún hitti hann fyrir tilviljun í Kali- forníu. Hann ræddi við hana um Ísland og var forvitinn um land og þjóð. PERRY FARRELL Syngur með hljómsveitinni Jane¥s Addiction. RAGNHEIÐUR SMÁRADÓTTIR Hún sér heilmikið eftir að hafa ekki farið með Perry Farrell á skemmti- staðinn Viper Room þar sem hinir frægu skemmta sér. Ég held að ég hafi ekki hittfrægari mann en David Bowie. Það atvikaðist þannig að ég var í Kaupmannahöfn og þar var hann líka að spila með hljómsveit sem hét Tin Machine. Danska pressan hékk öll fyrir utan hótelið sem hann bjó á í þeirri von að komast í snertingu við goðið. Eitthvað var ég að voma þarna líka. Ég bjó sjálfur á Sheraton og var á leið í lyftunni niður í anddyri. Lyftan stöðvaðist á einhverri hæðinni og inn gengu tveir menn. Ég áttaði mig ekki strax en fljótlega varð ég þess áskynja að þarna var hann kominn, sjálfur kappinn. Hann sagði á mjög fágaðri ensku „Good morning“ og ég tók undir. Kristjáni varð nokkuð um því hann átti alls ekki von á að David Bowie byggi á sama hóteli. Með honum var lífvörður, mikill ásýnd- um. „Mér varð svo mikið um að hann var horfinn út úr lyftunni áður en ég svo mikið sem gat hugsað um það hvort ég ætti að segja eitthvað meira.“ Kristján hefur einnig rætt við Oskar Lafontaine, kanslaraefni þýskra jafnaðarmanna, og talaði lengi við hann en skömmu síðar tapaði hann illa í kosningum. „Þeg- ar ég hitti síðan samlanda hans, Schröder var ég mjög efins um hvort ég ætti að ræða við hann af ótta við að hann tapaði einnig. En það gerðist sem betur fer ekki.“ ■ KRISTJÁN KRISTJÁNSSON Oskar Lafontaine, kanslaraefni jafnaðarmanna, tapaði kosningunni rétt á eftir spjall við Kristján. Bauð „góðan dag“ á fágaðri ensku Kristján Kristjánsson skaut dönsku pressunni ref fyrir rass og hitti sjálfan David Bowie. En honum varð svo mikið um að áður en hann vissi af var kappinn horfinn. DAVID BOWIE Bowie bjó á sama hóteli og Kristján, sem hitti hann í lyftunni. Margrét Sverrisdóttir segist allsekki verða andaktug yfir því að hitta fræga fólkið og í fljótu bragði man hún ekki eftir að hafa hitt neinn slíkan. Eftir litla um- hugsun minnist hún þó skemmti- legs atviks tengdu frægum manni. „Ég man ekki hvenær það var en líklega árið 1996 eða 1997. Ég var á leið heim af fundi í Brussel og sat fremst á Saga Class. Við hliðina á mér sat dökkhærður, myndarlegur maður, heldur lágvaxnari en ég. Mér fannst hann dálítið kunnugleg- ur en það er rétt að geta þess að ég er sérlega ómannglögg, sem er ekki gott ef maður er í pólitík.“ Hún rifjar upp að þegar matur- inn hafi verið borinn fram hafi þau tekið tal saman. „Ég sagðist heita Margrét og væri á heimleið, en hann kvaðst vera frá Rússlandi og heita Gary. Þá sagði ég að varla væri Gary algengt nafn í Rúss- landi? Ekki man ég glöggt okkar orðaskipti, en þó kom fram hjá hon- um að hann ynni við eitthvað tengt skák, en ég var ekkert mikið með hugann við samtalið og gott ef ég sagði ekki að varla væri það gróða- vænlegur bransi! Ég hafði lítinn áhuga á löngum samræðum við ókunnugan mann, var dauðþreytt Sagðist vinna eitthvað við skák Margrét Sverrisdóttir, fram- kvæmdastjóri Frjálslynda flokksins, er ekki mannglögg manneskja. Því fór það al- veg fram hjá henni að sessunautur hennar væri heimsmeistari í skák. GARY KASPAROV Margrét þekkti ekki Kasparov þegar hún lenti við hliðina á honum í flugvél. FRÉTTAB LAÐ IÐ /RÓ B ERT FR ÉT TA B LA Ð IÐ /R Ó B ER T

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.