Fréttablaðið - 30.11.2002, Síða 12
12 30. nóvember 2002 LAUGARDAGUR
Hlutverk fjölmiðla í nútíma-samfélagi felst meðal annars
í því að upplýsa almenning í land-
inu um niðurstöður dómsmála.
Með vönduðum fréttaflutningi
veita fjölmiðlar dómstólum, sem
og Alþingi og stjórnvöldum, að-
hald um þær ákvarðanir og ráð-
stafanir, sem varða almenning og
er slík umfjöllun einungis af hinu
góða. Hefur oft verið talað um
fjölmiðla sem „fjórða valdið“ í
þjóðfélaginu. Svo að fjölmiðlar
standi undir því nafni verða þeir
hins vegar að vanda til frétta-
flutnings og einstakir blaða- og
fréttamenn að leggja metnað sinn
í að fjalla um hvert mál á skipu-
legan og markvissan hátt, þar sem
gætt sé óhlutdrægni í framsetn-
ingu. Þegar misbrestur verður á
þessu er ávallt vá fyrir dyrum.
Kynferðisbrotadómur
Miðvikudaginn 20. nóvember
síðastliðinn féll dómur í Héraðs-
dómi Reykjaness, þar sem 26 ára
karlmaður var dæmdur í 18 mán-
aða fangelsi fyrir kynferðisbrot
gegn tveimur stúlkum, sem fram-
in voru á árunum 1992-1996. Sá
sem þessi orð ritar var dómsfor-
maður í málinu og þekkir því vel
til málsatvika. Í niðurstöðum
dómsins voru færð rök fyrir því
að skilorðsbinda 15 mánuði af
refsingunni. Rökin voru fyrst og
fremst þau að brotin voru framin
þegar ákærði var á aldursbilinu
15-18 ára. Þá var litið til sakarfer-
ils ákærða, en hann hafði ekki
áður orðið uppvís að refsiverðri
háttsemi. Loks var höfð hliðsjón
af því að ákærði væri nú í sambúð
og ætti barn, fætt í júlí 2002. Þrátt
fyrir að ofangreindra atriða væri
skilmerkilega getið í niðurstöðum
dómsins virðist lítill áhugi hafa
verið meðal fjölmiðla að gera
réttilega grein fyrir öllum ástæð-
um skilorðsbindingar. Þess í stað
stukku þeir flestir á þá síðustu og
gerðu henni þau skil, sem kunn
eru meðal þjóðarinnar. Þá fór lítið
fyrir umfjöllun um þá staðreynd
að refsing var ákveðin 18 mánaða
fangelsi, en eins og þeir vita, sem
þekkja, þá er eitt að ákvarða refs-
ingu fyrir afbrot og annað að
ákvarða hvort rétt þyki að skil-
orðsbinda hana að einhverju leyti
eða öllu. Mátti víða sjá uppslætti í
þessum dúr: „Karlmaður dæmdur
í þriggja mánaða fangelsi fyrir
kynferðisbrot gegn þremur stúlk-
um.“ Er þetta sanngjörn og óhlut-
dræg umfjöllun af hálfu viðkom-
andi fjölmiðla?
Lambalærin í Bónus
Sama dag féll dómur í Héraðs-
dómi Reykjaness yfir 23 ára
gömlum karlmanni, sem sak-
felldur var fyrir þjófnaðarbrot
framin 19. september og 19. októ-
ber 2002, nytjastuld á tveimur
bifreiðum 19. og 20. október 2002
og akstur þeirra án ökuréttinda.
Ákærði átti að baki þó nokkurn
sakarferil, meðal annars fyrir
nytjastuld, tvö rán og ránstilraun
og hafði sætt 26 mánaða óskil-
orðsbundinni fangelsisrefsingu
með dómi 2. júlí 2001. Með hinum
nýju brotum rauf ákærði skilorð
reynslulausnar á 260 daga eftir-
stöðvum þeirrar refsingar og var
því sá hluti refsivistarinnar tek-
inn upp og dæmdur með hinum
nýju brotum. Að teknu tilliti til
játningar ákærða og fleiri atriða
þótti refsing hæfilega ákveðin
fangelsi í eitt ár, sem ekki þótti
fært að skilorðsbinda í ljósi sak-
arferils ákærða. Framangreindra
atriða var skilmerkilega getið í
nefndum héraðsdómi. Í umfjöll-
un um dóm þennan einblíndu
margir blaða- og fréttamenn á
eitt brotanna, sem varðaði þjófn-
að ákærða, í félagi við annan
mann, á fimm lambalærum 19.
september 2002 og drógu vísvit-
andi þá röngu ályktun af dómin-
um, ef marka má umfjöllun
þeirra, að ákærði hefði verið
dæmdur í eins árs fangelsi fyrir
þjófnað á lambakjöti. Hitt
gleymdist að brotin voru fleiri og
alvarlegri, að ákærði var um 22
ára gamall er hann framdi brotin
og að hann rauf með þeim skilorð
á 260 daga eftirstöðvum refsing-
ar fyrir mjög alvarleg auðgunar-
brot. Sjálfur er ég stúdent úr
máladeild, en þó veit ég að 260
dagar samsvara tæplega níu
mánuðum. Það er því ljóst og gat
engum dulist, sem dóminn las, að
hinn ákærði hlaut rúmlega þrigg-
ja mánaða fangelsisdóm fyrir hin
nýju brot. Engu að síður mátti sjá
uppslætti fjölmiðla í þessum dúr:
„Karlmaður dæmdur í eins árs
fangelsi fyrir þjófnað á lamba-
læri.“ Er þetta sanngjörn og
óhlutdræg umfjöllun af hálfu við-
komandi fjölmiðla?
Dómarnir bornir saman
Til að kóróna allt saman tóku
nokkrir fjölmiðlar til þess bragðs
að bera niðurstöður framan-
greindra tveggja dóma saman og
gættu þess sem fyrr að leyna fyr-
ir almenningi framangreindum,
mikilvægum staðreyndum í báð-
um málunum. Hér virðist sannast
á viðkomandi fjölmiðla orðtækið:
„Hafa skal það sem betur hljóm-
ar.“ Taki þeir til sín sem eiga.
Dómstólar og einstakir dómar-
ar hafa lítið haft sig í frammi í op-
inberri umfjöllun um einstaka
dóma. Eru fyrir því augljós rök og
þau helst að hver dómur tali sínu
máli. Tilefni þessa greinarkorns
er bréf til Fréttablaðsins, sem rit-
að var af Kristjáni Sig. Kristjáns-
syni og birt var 25. nóvember und-
ir fyrirsögninni: „Sleggjudómar.“
Ekki veit ég hvort Kristján hefur
komist yfir dóminn í kynferð-
isbrotamálinu. Ef
ekki er ég ánægð-
ur að heyra að
einum borgara
að minnsta
kosti hefur
tekist að sjá í
g e g n u m
þokukennd-
an frétta-
flutning af
málinu og hann greint, að til eru
fleiri hliðar á málinu en birst hafa
í fjölmiðlum. Birting bréfsins í
Fréttablaðinu varð til þess að ég
ákvað að velja þann miðil til að
koma gagnrýni minni á framfæri.
Fleiri orð verða ekki höfð af
minni hálfu um dómana tvo í fjöl-
miðlum. Að lokum vil ég þó árétta
að dómstólar eru ekki hafnir yfir
gagnrýni. Síður en svo. Almenn-
ingur hlýtur hins vegar að eiga
rétt á því að fjölmiðlar fjalli um
dómsmál af þeirri ábyrgð og
óhlutdrægni, sem krefjast verður
af þeim í lýðfrjálsu landi. Borgur-
unum er treystandi til að draga
sjálfir sínar ályktanir af niður-
stöðum dómsmála. Þar þarf ekki
„fjórða valdið“ til.
Kveikjan að
bréfi héraðsdómara
til Fréttablaðsins:
Umdeildir
dómar
Tveir dómar, sem féllu í Hér-
aðsdómi Reykjaness í síðustu
viku, vöktu mikla athygli. Ann-
ars vegar var um að ræða kyn-
ferðisbrotadóm og hins vegar
dóm fyrir þjófnaðarbrot. Um-
fjöllun fjölmiðla almennt varð
til þess að Jónas Jóhannsson
héraðsdómari skrifaði Frétta-
blaðinu bréf, sem birt er hér á
síðunni.
Í kynferðisbrotadómnum var
maður, fæddur 1976, dæmdur í
18 mánaða fangelsi fyrir kyn-
ferðisbrot gegn tveimur stúlk-
um. Fimmtán mánuðir voru
skilorðsbundnir í þrjú ár. Mað-
urinn var einnig dæmdur til að
greiða miskabætur. Við ákvörð-
un refsingarinnar var litið til
þess að maðurinn var 15 til 18
ára þegar brotin voru framin.
Enn fremur að hann er nú tæp-
lega 26 ára gamall og hefur ver-
ið í sambúð með konu um nokk-
urra ára skeið og á með henni
barn. Þá var einnig litið til þess
að maðurinn hefði ekki áður
orðið uppvís að refsiverðri hátt-
semi.
Í þjófnaðarmálinu var 23 ára
karlmaður dæmdur í eins árs
fangelsi. Maðurinn var dæmdur
fyrir að stela 5 lambalærum úr
versluninni Bónus við Smára-
torg. Einnig fyrir að hafa brot-
ist inn í bifreið og fyrir að hafa
stolið tveimur bílum. Að teknu
tilliti til játningar ákærða og
fleiri atriða þótti refsing hæfi-
lega ákveðin fangelsi í eitt ár.
Ekki þótti fært að skilorðs-
binda hana í ljósi sakarferils
ákærða, en með hinum nýju
brotum rauf hann skilorð
reynslulausnar á 260 daga
eftirstöðvum þeirrar refs-
ingar og var því sá hluti
refsivistarinnar tekinn
upp og dæmdur með
hinum nýju brotum. ■
HÉRAÐSDÓMUR REYKJANESS
Miðvikudaginn 20. nóvember síðastliðinn
féll dómur í Héraðsdómi Reykjaness, þar
sem 26 ára karlmaður var dæmdur í 18
mánaða fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn
tveimur stúlkum. Sama dag féll dómur í
Héraðsdómi Reykjaness yfir 23 ára göml-
um karlmanni, sem sakfelldur var fyrir
þjófnaðarbrot. Umfjöllun fjölmiðla um
þessi mál varð kveikjan að því að Jónas Jó-
hannsson héraðsdómari ritaði Fréttablað-
inu bréf til birtingar.
Til að kóróna allt saman
tóku nokkrir fjölmiðlar
til þess bragðs að bera saman
niðurstöður kynferðisbrota-
dóms og dóms þar sem maður
stal meðal annars fimm lamba-
lærum. Í bréfi Jónasar segir að
fjölmiðlar hafi gætt þess að
leyna fyrir almenningi mikil-
vægum staðreyndum í báðum
málunum.
Er þetta sanngjörn og
óhlutdræg umfjöllun?
Í bréfi til Fréttablaðsins gerir Jónas Jóhannsson, héraðsdómari við Héraðsdóm Reykjaness,
athugasemdir við fréttaflutning fjölmiðla. Jónas dæmdi í máli 26 ára gamals karlmanns sem
var sakfelldur fyrir kynferðisbrot gegn tveimur stúlkum í síðustu viku.
,,
Í niðurstöðum
dómsins voru færð rök
fyrir því að skilorðsbinda 15
mánuði af refsingunni.
Jónas segir að lítill
áhugi hafi verið
meðal fjölmiðla á að
gera réttilega grein
fyrir öllum ástæðum
skilorðsbindingar.
,,