Fréttablaðið - 30.11.2002, Qupperneq 34
Amma Eminem hefur í hyggju aðskrifa bók um fjölskyldulíf þeir-
ra. Hún telur að fólk muni hafa
mikinn áhuga á fjöl-
skyldu lífi þeirra,
en Marshall
Mathers III varð
rappari fjórtán ára
að aldri. Þrátt fyrir
að hún hafi átt í erf-
iðleikum með að
finna útgefanda
segir hún bókina
góða lesningu. Hún segir að í sögunni
sé að finna margar staðreyndir um
Eminem sem aðdáendur hans hafa
aldrei fengið að vita af. Hún neitar
því alfarið að hún sé að reyna að
græða á vinsældum barnabarns síns.
X-Files leikkonan Gillian And-erson hefur nú bæst í hóp
þeirra bandarísku leikara sem
reyna fyrir sér á
leiksviði í London.
Hún fer með aðal-
hlutverkið í leik-
ritinu „What the
Night Is for“. Þar
leikur hún gifta
konu sem ákveður
að eyða einni nótt
á hótelherbergi
með fyrrum elskhuga sínum. Sjón-
varpsþáttunum X-Files er nú lokið
en Mulder og Scully munu hittast
aftur á hvíta tjaldinu í væntan-
legri kvikmynd um ævintýri pars-
ins.
Ekkja Bítilsins George Harrisontjáði sig í fyrsta skipti um dauða
eiginmanns síns í fjölmiðlum á dög-
unum. Hún sagði að
honum hefði aldrei
fundist hann hafa
stjórn á sjúkdómi
sínum, að maður
sinn hefði verið
mjög trúaður og að
hann hefði sætt sig
við það hlutskipti
sem Guð ætlaði
honum.
Tónlistarmaðurinn Ryan Adams(ekki Bryan) er búinn að hljóðrita
harðkjarnarokkplötu sem hann hyg-
gst gefa út undir leyninafninu The
Finger. Platan heitir „We Are Fuck
You“ og verður gefin út í takmörkuðu
upplagi í Bandaríkjunum.
Leikkonan Zsa Zsa Gabor er áspítala eftir að hafa lent í bíl-
slysi á Sunset Boulevard í Los Ang-
eles á miðvikudagskvöldið. Gabor,
sem er 85 ára gömul, er vart með
meðvitund. Læknar segja hana þó á
batavegi. Hún braut handlegg við
áreksturinn og getur ekki talað.
Gabor er fædd í Ungverjalandi og
var á sínum tíma valin „Ungfrú
Ungverjaland“. Hún er frægust
fyrir hlutverk sín í myndunum
„Moulin Rouge“ frá 1952, Orson
Welles-myndinni „Touch of Evil“
frá ‘58 og „Lili“ frá ‘53.
34 30. nóvember 2002 LAUGARDAGUR
ONE HOUR PHOTO kl. 2.40
2, 4, 6, 8, 10 og 12
SWIMFAN kl. 2, 4, 6, 8, 10 og 12
Sýnd kl. 2, 5, 8, 11 og 12 - powersýning bi. 12 ára Sýnd í lúxus kl. 3, 6, 9 og 12
kl. 2 og 4Í SKÓM DREKANS
BLOOD WORK kl. 8
POSSESSION kl. 5.50, 8 og 10.10
Sýnd kl. 12, 2, 4, 6, 8 og 10
THE TUXEDO kl. 6, 8 og 10 VIT474 UNDERCOVER BROTHER 2 og 4
VIT
448
LILO OG STITCH/ísl.tal kl. 2 og 4 VIT429CHANGING LANES kl. 6, 8 og 10
VIT
479
Sýnd kl. 12, 4 og 8 VIT 469kl. 3, 5.45, 8 og 10.10HAFIÐ
kl. 5.50 og 10.15DAS EXPERIMEN
kl. 2 og 4LILO OG STITCH/ísl.tal
FRÉTTIR AF FÓLKI
Sýnd kl. 12, 2, 4 , 6, 8 og 10 VIT 468
MASTER OF D...
www.gunnimagg . i s
Trúlofunar- og
giftingarhringir
20% afsláttur í takmarkaðan tíma
Sumir telja að það sé erfitt að verabarn í dag sökum þess að nútíma
foreldrar séu stöðugt á hlaupum og
veraldleg gæði tröllríði landi og lýð.
Aðrir álíta að nú til dags sé auðvelt að
vera barn og þeir allra hörðustu trúa
að yngsta kynslóðin flatmagi kæru-
laus fyrir framan sjónvarpið án þess
að dýfa hendi ofan í kalt vatn.
En hvaða skoðanir skyldu börnin
hafa á hlutskipti sínu í þjóðfélaginu?
Þau Ragnhildur Melot, Óskar Freyr
Brynjarsson og Salvör Gullbrá Þór-
arinsdóttir svöruðu nokkrum spurn-
ingum um stöðu barna.
Er erfitt að vera barn í dag?
Salvör: „Já. Það er alltaf verið að
skipa manni að
gera hitt og þetta,
eins og fullorðna
fólkið sé bara að
skipa til að skipa.
Eiginlega er bæði
erfiðara og auð-
veldara að vera
barn í dag. Við
þurfum að vera
miklu meira í
skóla. Áður þurftu
krakkar kannski
að vera tvo
klukkutíma í skól-
anum. Í ofanálag
er búið að stytta
sumarfríið.“
R a g n h i l d u r :
„Ég held að það
hafi verið erfiðara
þegar amma og afi
voru ung. Ég held að þá hafi allt ver-
ið miklu strangara og krakkar þurft
að vinna miklu meira. Stundum voru
þau látin passa systkini sín, taka til
og mjólka kýr.“
Óskar: „Það er alltof mikið álag að
vera barn. Alltaf verið að hringja í
mann og svona. Maður þarf líka að
gera svo mikið. Til dæmis að vera
lengi í skólanum, það er meira að
segja búið að bæta við kennslustund
hjá mér. Ég held að það sé erfiðara að
vera barn í dag.“
Ráða foreldrar of miklu að ykkar
mati?
Salvör: „Já, alltof miklu. Maður
má ekki fá dýr því foreldrarnir segja
að þau séu með flær, enda þótt dýrin
séu ekki með þær! Foreldrarnir reka
mig líka oft til að læra, þó að kennar-
inn hafi ekki sett mér neitt fyrir! Svo
segja þau að ég verði að hætta að
leika úti klukkan sex, þó að lögin segi
að krakkar megi leika til klukkan
átta!“
Ragnhildur: „Þau ráða alveg
mátulega miklu.“
Óskar: „Foreldrar ráða of miklu.
Maður má ekki fara út þegar maður
er veikur. Maður má heldur ekki hjál-
pa til þegar þau eru að baka. Svo fær
maður ekki dýr því foreldrarnir eru í
litlu húsnæði!“
Finnst ykkur fullorðna fólkið vera
alviturt?
Salvör: „Nei. Það þykist samt vita
allt.“
Ragnhildur: „Fullorðið fólk þykist
stundum vera alviturt en er það samt
ekki.“
Óskar: „Sumt fólk er gáfað.“
Salka bætir við að George Bush sé
heimskari en strákarnir í bekknum
sínum. Óskar telur hann einnig vera
nokkuð tregan.
Hvers vegna finnst ykkur George
Bush vera heimskur?
Salka: „Hann heldur að það sé ein-
hver leikur að drepa fullt af fólki.“
Óskar: „George Bush veit ekkert
hvað hann er að gera, en trúir að það
sé svo létt verk að vera forseti.“
Eru stjórnmálamenn klárir?
Salvör: „Sumir eru rosalega gáf-
aðir og aðrir eru heimskir. Ég ætla
samt ekki að segja hverjir, kannski
lesa heimsku stjórnmálamennirnir
blöðin og verða móðgaðir.“
Ragnhildur: „Þeir eru misgáfað-
ir.“
Óskar: „Þeir eru alruglaðir fyrir
utan Ingibjörgu Sólrúnu og Jóhönnu
Sigurðardóttur.“
Finnst ykkur einræði fullorðinna vera
of mikið?
Salvör: „Það er misjafnt. Börnin
ættu náttúrlega að ráða einhverju.“
Ragnhildur: „Börnin ættu ekki að
ráða öllu því þau eru bara börn. En
þau gætu til dæmis ráðið dýrahaldi á
heimilum og þau ættu að eiga apa.“
Óskar: „Einræði fullorðinna er
allt of mikið. Ég myndi vilja ráða yfir
öllum sjoppum á landinu og kannski
bönkunum líka.“
Hefur Popp tíví slæm áhrif á ykkur,
líkt og sumir fullorðnir láta í veðri
vaka?
Salvör: „Ég hef bara áhuga á tón-
listinni og skemmtilegum myndbönd-
um. Sum myndbönd eru með konum í
brjóstahöldurum, en það hefur ekki
vond áhrif á mig.“
Ragnhildur: „Mér finnst Popp tíví
vera fín stöð og á henni eru spiluð
mörg góð lög en myndböndin eru
ekki neitt sérstök.“
Óskar: „Það er skemmtileg tónlist
á Popp tíví.“
Er mikið áreiti í
umhverfinu, eins
og til dæmis aug-
lýsingar sem fá
ykkur til að heimta
rándýra hluti?
Salvör: „Aug-
lýsingin um
vanillukók er mjög
fyndin en samt
langar mig alls
ekki að smakka
vanillukók. Það er
bara áreiti þegar
maður er að horfa
á Skjá einn og allt í
einu kemur aug-
lýsingahlé í miðj-
um spennandi
þætti.“
R a g n h i l d u r :
„Stundum eru auglýsingar með rán-
dýru dóti sem sýnist vera mjög flott
en er bara algjört drasl. Það er svolít-
ið svindl fyrir foreldrana þegar börn-
in eru búin að væla út dótið. Þá hafa
þeir óvart gefið börnunum sínum
eitthvert drasl.“
Óskar: „Auglýsingar eru stundum
áreiti, eins og þegar verið er að aug-
lýsa Legó. Þá langar mig í það. En um
daginn var verið að auglýsa kafbát og
maður vissi alveg að hann var drasl.“
George Bush
veit ekkert
Þrjú börn ræða hlutskipti sitt í þjóðfélaginu
ÓSKAR
„Ég myndi fjölga bíósýningum og hafa
ókeypis í bíó. Svo myndi ég láta alla hafa
jöfn laun.“
SALVÖR
„Ég myndi vilja að skólinn væri bara í tvo
klukkutíma á dag. Síðan yrðu leikir að
þeim liðnum fyrir þá sem vilja.“
Ragnhildur
„Stundum eru auglýsingar með rándýru
dóti sem sýnist vera mjög flott en er bara
algjört drasl.“
Þakdúkar og
vatnsvarnalög
➜ Þakdúkar og vatnsvarnalög á:
➜ Þök
➜ Þaksvalir
➜ Steyptar rennur
➜ Ný og gömul hús
Unnið við öll veðurskilyrði
Sjá heimasíðu www.fagtun.is
FAGTÚN
Brautarholti 8 sími 562 1370
Góð þjónusta ogfagleg ábyrgðundanfarin 20 ár