Fréttablaðið - 19.12.2002, Blaðsíða 8
8 19. desember 2002 FIMMTUDAGUR
WASHINGTON, AP Trent Lott, leiðtogi
repúblikana í öldungadeild Banda-
ríkjanna, ætlar ekki að gefast upp
fyrr en í fulla hnefana. Hann segist
sannfærður um að fá stuðning
nægilega margra flokksbræðra
sinna í öldungadeildinni til þess að
vera leiðtogi þeirra áfram, þrátt
fyrir að ummæli hans nýverið hafi
valdið fjaðrafoki.
„Ég er sonur verkamanns í
skipasmíðastöð í Pascagoula í
Mississippi,“ sagði Lott á þriðju-
daginn. „Ég hef þurft að berjast
alla ævi, og ég hætti því ekki
núna.“
Vandræði þingmannsins má
rekja til ummæla hans í veislu 5.
desember. Verið var að halda upp á
hundrað ára afmæli öldunga-
deildarþingmannsins Strom Thur-
mond, sem bauð sig fram til for-
seta árið 1948.
Lott sagði í veislunni að Banda-
ríkin væru betur sett nú ef Thur-
mond hefði þá borið sigur úr být-
um. Gallinn er bara sá að Thur-
mond þessi barðist á sínum tíma
hatrammlega gegn því að svartir
Bandaríkjamenn fengju sömu rétt-
indi og hvítir.
George W. Bush Bandaríkjafor-
seti skammaði Lott á mánudaginn
fyrir ummælin, en virtist þá ekki
ætla að aðhafast frekar. Margt
bendir hins vegar til þess að um-
ræðan í þjóðfélaginu sé farin að
skaða Repúblikanaflokkinn það
mikið að Bush sjái sér ekki annað
fært en að láta Lott víkja.
Leiðtogi repúblikana í öldungadeild Bandaríkjanna:
Berst fyrir
pólitísku lífi sínu
TRENT LOTT OG DON NICKLES
Trent Lott fylgist þarna með flokksbróður sínum, Don Nickles, tala við blaðamenn. Nickles
var fyrsti repúblikaninn á þingi sem sagðist telja rétt að Lott yrði ekki lengur leiðtogi
meirihlutans í öldungadeildinni.
BORGARMÁL Símon Hallsson borg-
arendurskoðandi er ósáttur við þá
fyrirætlan borgaryfirvalda að
leggja Borgarendurskoðun niður
28. febrúar og segja öllum starfs-
mönnum hennar upp störfum.
Borgarstjóri og forseti borgar-
stjórnar lögðu fram tillögu þessa
efnis á fundi borgarráðs í fyrra-
dag og var henni vísað til af-
greiðslu borgarstjórnar. Sam-
kvæmt tillögunni verður stofnuð
ný deild, innri endurskoðunar-
deild, sem verður beint undir
borgarstjóra í nýju skipuriti.
Símon segir að Borgarendur-
skoðun hafi sinnt innra eftirliti og
líkt og Hjörleifur B. Kvaran borg-
arlögmaður telji hann ekki
ástæðu til að leggja stofnunina
niður.
Öllum átta starfsmönnum
Borgarendurskoðunar verður
sagt upp 1. janúar og störf í hinni
nýju innri endurskoðunardeild
auglýst laus til umsóknar miðað
við að starfsemi hefjist 1. mars.
Símon segir að ekki sé gert ráð
fyrir að ráða nema fjögur til fimm
stöðugildi.
„Ég tel að það sé ekki nægjan-
legur mannafli miðað við þær
kröfur sem gerðar eru í reglunum
um innri endurskoðunardeildina.
Ég tel að það þurfi að ráða að
minnsta kosti jafnmarga og starfa
hjá Borgarendurskoðun í dag.“
Hann vildi ekkert um það segja
hvort hann hygðist sækja um
starf hjá hinni nýju deild í byrjun
nýs árs. ■
Starfsmönnum Borgarendurskoðunar sagt upp:
Borgarendurskoðandi
er ósáttur við breytingar
RÁÐHÚS REYKJAVÍKUR
Símon Hallsson borgarendurskoðandi
segir að Borgarendurskoðun hafi sinnt
innra eftirliti og líkt og Hjörleifur B. Kvaran
borgarlögmaður telji hann ekki ástæðu til
að leggja niður stofnunina.
KVIKMYNDIR Júlíus Kemp, fram-
leiðandi kvikmyndarinnar Mað-
ur eins og ég, hefur ákveðið að
ganga til samninga við kvik-
myndagerðarfólk
sem vann að
myndinni og gera
upp hluta af kröf-
um sem starfs-
fólkið telur sig
eiga inni vegna
bónusgreiðslna
sem áttu að koma
til útborgunar
þegar áhorfenda-
fjöldinn væri
kominn upp í 20 þúsund manns.
Samkvæmt útreikningum Júlí-
usar vantaði 481 áhorfanda til að
tölunni yrði náð þegar sýningum
var hætt. Starfsfólk staðhæfir á
móti að rúmlega 20 þúsund
manns hafi séð myndina og er
þar stutt af endurskoðunarskrif-
stofunni PWHC sem heldur utan
um aðsóknartölur að kvikmynd-
um sem hér eru sýndar:
„Tala þeirra er fundin út með
því að bæta við frumsýningar-
gestum og boðsmiðum. Þá var
hluti af aðsókn á landsbyggðinni
áætlaður,“ segir Júlíus. „Deilan
er að leysast og ég ætla nú að
reyna að ná samningum við
starfsfólkið í ljósi þess hversu
nálægt við komumst því marki
sem stefnt var að í samningum.
Ef menn vilja ekki semja þá
verð ég að fara fyrir dómstóla
með málið,“ segir Júlíus Kemp.
Fjórir aðilar telja sig eiga
bónus inni hjá Júlíusi Kemp í
ljósi meintrar aðsóknar að Mað-
ur eins og ég. Einn helsti kröfu-
hafinn er aðstoðarleikstjórinn,
Árni Ólafur Ásgeirsson, sem nú
er staddur í Danmörku við kvik-
myndagerð. Þá á Jón Gnarr, sem
fór með aðalhlutverkið í mynd-
inni, inni umtalsverða fjármuni
verði niðurstaðan sú að yfir 20
þúsund manns hafi séð myndina:
„Jón Gnarr hefur ekki rukkað
mig um þetta en ég ræði við
hann eins og aðra sem að mynd-
inni komu. Þetta leysist,“ segir
Júlíus Kemp.
eir@frettabladid.is
Júlíus Kemp
leysir málin
Gengur til samninga við kvikmyndagerðarfólk sem stóð að Maður eins
og ég. Stendur fast á að myndin hafi ekki náð 20 þúsund áhorfendum.
Fer fyrir dómstóla vilji fólk ekki semja.
MAÐUR EINS OG ÉG
Júlíus Kemp ræðir við starfsfólk – vill semja.
„Jón Gnarr
hefur ekki
rukkað mig
um þetta en
ég ræði við
hann eins og
aðra sem að
myndinni
komu.“
ORÐRÉTT
HVAÐA EINOKUN?
„Við keppum á þessum markaði
með því að reyna að standa okkur
betur en aðrir gagnvart við-
skiptavinum...“
Guðjón Arngrímsson, upplýsingafulltrúi
Flugleiða, um nýja samkeppni í flugi. Mbl.
18. desember.
SJÓVEIKI
„Nú er skipið hins vegar í höfn
og því réttur tími til að snúa sér
að öðrum verkefnum.“
Hjalti Jónsson, framkvæmdastjóri DV, þeg-
ar hann yfirgaf skútuna. DV, 18. des.
AUMINGJA LESANDINN
„Rödd hins roskna sögumanns yf-
irþyrmandi og jafnvel eins og
ókleifur múr milli lesenda og
söguhetjunnar, hins unga Jóns
Baldvins.“
Úr gagnrýni Ármanns Jakobssonar á jóla-
bókina um Jón Baldvin. DV, 18. des.
21 árs Reykvíkingur:
Ákærður
vegna
dótabyssu
DÓMSTÓLAR „Þessi byssa er úr
plasti og fengin í Leikbæ. Hún er
með gúmmítúttum og drífur þrjá
til sex metra,“ segir 21 árs Reyk-
víkingur sem hefur verið ákærð-
ur af saksóknara Lögreglunnar í
Reykjavík fyrir brot á vopnalög-
um og umferðarbrot fyrir að
skjóta að vegfarendum með leik-
fangabyssu.
Í ákærunni er tilgreint að
skyttan hafi í mars síðastliðnum
skotið að fólki í miðbæ Reykja-
víkur. Þá er hann ákærður fyrir
að hafa réttindalaus ekið bifreið
á sömu slóðum. Hann mætti fyrir
Héraðsdóm Reykjavíkur í gær til
að svara til saka.
„Ég viðurkenndi að hafa
hleypt af leikfangabyssunni en
þetta átti að vera grín. Margir
þeirra sem ég skaut tóku því létt.
Dómarinn vildi fá að sjá byssuna.
Saksóknari var bara með mynd
af henni þannig að málinu var
frestað fram í janúar. Ég hef
áhyggjur af því að verða dæmdur
fyrir vopnaburðinn. Kannski
lendi ég í fangelsi út af dóta-
byssu,“ segir hinn ákærði. ■
Fiskimjöls- og
lýsisframleiðsla:
Nauðsynlegt
að fækka
verksmiðjum
FISKIMJÖLSVERKSMIÐJUR „Fram und-
an er tími endurskipulagningar
og hagræðingar í fiskimjölsiðn-
aðinum og þegar upp er staðið
verður það tvímælalaust til
hagsbóta fyrir alla aðila,“ segir
Kristinn V. Jóhannsson, stjórn-
arformaður Síldarvinnslunnar
hf.
Hann segir að fjárfest hafi
verið meira í fiskimjöls- og lýs-
isframleiðslu en nokkurri annar-
ri grein í íslenskum sjávarútvegi
síðasta áratug. 21 fiskimjöls-
verksmiðja er nú starfandi á Ís-
landi með afkastagetu upp á
1.000 tonn eða meira á sólar-
hring. Ársafkastageta þeirra er
því 6 til 7 milljónir tonna á ári,
en þær eru að vinna úr um það
bil einni og hálfri milljón tonna.
Meðalnýtingin er innan við 25%.
„Það er að sjálfsögðu óvið-
unandi til lengdar,“ segir Krist-
inn og bendir á að í Færeyjum er
aðeins ein verksmiðja, sem tók á
móti ríflega 200 þúsund tonnum,
og var nýting hennar um 43%.
Þá eru 11 verksmiðjur í Noregi
og 4 í Danmörku. Hver um sig
tók á móti einni og hálfri milljón
tonna. Í báðum þessum löndum
hefur farið fram gagnger endur-
skipulagning í þessari grein.
Kristinn segir ekki vafa leika á
að verksmiðjum muni fækka að
endurskipulagningu lokinni. ■
Harmleikur á Indlandi:
Drukknir
fílar drápu
fólk
GAUHATI, AP Óð fílahjörð varð sex
manns að bana norðaustanvert á
Indlandi í síðustu viku. Þeir
eyðilögðu líka dýrmæta uppskeru
og aðrar eignir fyrir fólki á þess-
um slóðum.
Fílarnir höfðu komist í hrís-
grjónabjór, sem starfsfólk á
teplantekru hafði búið til handa
sér.
Fílum hefur fjölgað mjög á
þessum slóðum undanfarið, sem
er slæmt vegna þess að skóglendi
hefur minnkað. Bændur hafa
sumir hverjir gripið til þess ráðs
að drepa fíla til þess að fækka
þeim. ■
BLÁHORNIÐ
Eigendur Bláhornsins eru hjón á eftirlaun-
um. Þau búa í einu þeirra fimm húsa
Blesugrófar sem færast til Reykjavíkur við
nýákveðna tilfærslu bæjarmarkanna.
Skipulag:
Bláhorninu
ekki þyrmt
SKIPULAGSMÁL Skipulagsyfirvöld í
Kópavogi hafna beiðni eigenda
söluturnsins Bláhornsins við
Smiðjuveg um að breyta fyrir-
huguðu deiliskipulagi þannig að
hægt verði að þyrma Bláhorninu.
Einnig er hafnað beiðni um að yf-
irvöld finni Bláhorninu ella nýjan
stað í nágrenninu.
Byggja á nýjan veg á mótum
Smiðjuvegar og Reykjanesbraut-
ar. Hringtorg sem á að vera á
gatnamótunum gerir að verkum
að ekki er lengur rými fyrir
Bláhornið.
Kópavogsbær veitti bráða-
birgðaleyfi til eins árs fyrir
rekstri Bláhornsins fyrir sautján
árum. Skilyrði var að húsið yrði
ekki reist á steyptum grunni
þannig að auðveldara yrði að
fjarlægja það ef þörf krefðist.
Ekki var gefið út nýtt leyfi held-
ur virðist reksturinn hafa haldið
áfram með þegjandi samkomu-
lagi bæjaryfirvalda.
Eigendur Bláhornsins segjast
í erindi til Kópavogsbæjar alla
tíð hafa greitt fasteignagjöld og
greiddu skipulagsgjald við upp-
haf starfseminnar. Sjö til átta
manns hafi lifibrauð af rekstrin-
um. Eigendurnir telja sig eiga
rétt á bótum og munu ætla að
leita réttar síns. ■