Fréttablaðið - 19.12.2002, Blaðsíða 48
Desember er skondinn tími. Þaðer í raun ótrúlegt að fólki skuli á
hverju ári detta í hug að verja jafn-
miklum tíma og peningum til undir-
búnings hátíð sem ekki er einstök
heldur haldin á hverju einasta ári.
Líklega um það bil jafnmiklum tíma
og peningum og varið er í fermingar
og fimmtugsafmæli, sem þó eru ekki
nema einu sinni á lífsleið hvers og
eins. Og fólk hefur tilhneigingu til að
mikla fyrir sér fermingar og fimm-
tugsafmæli, og svo sem jólin líka, en
þó ekki nærri eins. Og alltaf skulu
þau haldin á hverju ári með sömu
látunum. Sem betur fer, því þau eru
svo skemmtileg.
FYRIR nokkrum árum fór rafmagn-
ið í mínu hverfi þegar jólaöndin, sem
elduð var samkvæmt afskaplega
fastri venju í fjölskyldunni, var í
ofninum. Rafmagnið kom ekki aftur
fyrr en um miðja nótt og þá var fjöl-
skyldan fyrir löngu búin að borða
hangikjöt og laufabrauð með köldu
rauðkáli. Og það voru alveg jafnmik-
il jól. Þessu óhappi var reyndar snúið
upp í sið og síðan höfum við haft hið
þjóðlega hangikjöt á borðum hvert
aðfangadagskvöld, ekki þó með ein-
tómu laufabrauði og köldu meðlæti.
Nokkrum árum seinna varð ég fyrir
því að veikjast af lungnabólgu
skömmu fyrir jól. Það var dýrmæt
reynsla. Það var nefnilega svo und-
arlegt að jólin komu líka þá. Jafnvel
þótt undirbúningurinn hefði ekki
verið nema brot af þeim vanalega.
ÞEGAR allt kemur til alls eru það
nefnilega allt aðrir hlutir sem skipta
máli á jólum. Engir dagar eru eins
og jólahátíðardagarnir. Helgin yfir
aðfangadagskvöldi gefur hverjum og
einum einhverja fyllingu sem er
ólýsanleg og ómetanleg líka. Um
þetta geta þeir vitnað sem hafa dval-
ið á öðrum menningarsvæðum um
jólin, svæðum þar sem þessi hátíð er
ekki tekin eins alvarlega og hér. Og
jólanóttin með bók, jóladagurinn þar
sem sofið er fram eftir og svo haldið
áfram að lesa og narta í góðgætið.
Samvistir við ættingja sem maður
hittir jafnvel miklu sjaldnar en mað-
ur vildi. Það eru þessir hlutir sem
gefa jólunum gildi.
SAMT höldum við áfram í stressinu.
Æðum aftur og fram um bæinn og
æsum okkur upp. Kannski til að
skerpa andstæðuna við hinn algera
frið sem svo tekur völdin – í örfáa
daga.
!
"
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 515 75 00, fax: 515 75 16 Ritstjórn: 515 75 05, fax: 515 75 06, ritstjorn@frettabladid.is
Auglýsinga- og markaðsdeild: 515 75 15 - fax 515 75 16, auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 75 00, dreifing@frettabladid.is
VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 515 7500
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
D
EB
1
97
48
12
/2
00
2
Allt ver›ur au›veldara...
S M Á R A L I N D
debenhams
Þú finnur fallegar jólagjafir handa öllum, í Debenhams.
Allt á einum stað og á verði sem kemur þér í jólaskap.
Baðvörur 2.990 kr.
GjafainnpökkunHerraskyrtur frá 1.890 kr.
Jólaskapið
Herraleðurhanskar frá kr. 3.290 kr.
Dúkkur frá 990 kr.
Jamie Oliver mortel 3.490 kr.
...EF fiÚ GENGUR HÆGAR, ANDAR D†PRA OG HUGSAR UM
HVERNIG fiIG LANGAR RAUNVERULEGA A‹ HAFA fiA‹ UM JÓLIN
Gjafabréf
Taska 3.290 kr.
Þjóð á hlaupum
Bakþankar
Steinunnar Stefánsdóttur