Fréttablaðið - 19.12.2002, Blaðsíða 30
19. desember 2002 FIMMTUDAGUR
fia› er gott a› hafa öruggt skjól í Tra›arkoti fyrir bílinn
flegar flú átt erindi í mi›bæinn.
Fyrsta klukkustundin kostar a›eins 80 kr. e›a 1,33kr.
mínútan, sí›an grei›ir flú 10 kr. fyrir hverjar 12 mínútur
sem flú notar.
Fyrir flá sem starfa
e›a búa í mi›borginni
er í bo›i mána›arkort
á a›eins 5.600 kr. *)
fia› fæst varla
ód‡rara skjól fyrir
bílinn flinn.
Tra›arkot
vi› Hverfisgötu - gegnt fijó›leikhúsinu
*) Ef flú kaupir 6 mánu›i borgar›u a›eins fyrir 5.
Emil Sigurðsson býr í Reykja-vík og starfar hjá Landssíman-
um en um jólin ætlar hann að vera
hjá foreldrum sínum í Borgar-
nesi. Emil þurfti að fara í næsta
kaupstað til að sækja framhalds-
skóla og var því mjög snemma
kominn með annan fótinn úr for-
eldrahúsum. Að loknu námi flutti
hann í höfuðborgina og fyrr á
þessu ári festi hann kaup á íbúð.
„Það er alltaf verið að spyrja
mann hvað maður vilji fá í jóla-
gjöf og ég veit ekkert hverju ég á
að svara. Annars væri ég alveg
til í að fá einhver heimilistæki og
núna vantar mig til dæmis
brauðrist,“ segir Emil. „Ég er að
reyna að safna í búið smám sam-
an og hef alltaf fengið svoleiðis
tæki í jólagjöf annað slagið.“
Emil er vanur því að fá húsmuni
af ýmsu tagi frá vinum og vanda-
mönnum en það er nokkuð mis-
jafnt hvernig gefendunum tekst
til með að velja eitthvað sem hon-
um líkar. „Oftast er ég mjög
ánægður með það sem ég fæ en
ef mér finnst eitthvað ekki flott
sem fólk gefur mér þá set ég það
bara ofan í kassa og tek það svo
upp þegar viðkomandi kemur í
heimsókn.“
Emil segist líka oft fá fatnað í
jólagjöf en þó treystir hann fólki
síður til að velja slíkt. „Ég vil
helst velja fötin mín sjálfur og
mér finnst verra að þurfa að skila
því sem fólk gefur mér. Þess
vegna er ég oft látinn fá pening til
þess að kaupa mér sjálfur einhver
föt og svo pakkar fólk þeim bara
inn og setur gjöfina undir jóla-
tréð.“ Emil viðurkennir þó að það
komi fyrir að fólki takist að velja
sjálft eitthvað á hann og það sé
auðvitað alltaf skemmtilegt.
Það er óhætt að segja að Emil
sé afar jarðbundinn þegar kemur
að jólagjöfum en eins og við öll
leyfir hann sér þó stundum að
dreyma „Það væri svo sem ekkert
amalegt ef einhver gæfi manni
stóra kistu fulla af gulli en það
gerist víst seint.“ ■
Þrátt fyrir ungan aldur óskar Emil Sigurðsson sér praktískra jólagjafa eins
og heimilistækja og fatnaðar. Hann treystir sínum nánustu ágætlega til að
velja handa sér tæki og aðra húsmuni en fötin vill hann velja sjálfur.
Heimilistæki og húsbún-
aður efst á óskalistanum
Jólagjöf karlmanns
um tvítugt
„Ég er oft látinn fá peninga
til að kaupa mér einhver föt
og svo pakkar fólk þeim
bara inn og setur gjöfina
undir jólatréð.“
EMIL SIGURÐSSON
Hann er að safna munum til heimilisins og hefur ekkert á móti
því að fá einhver nytsamleg heimilistæki í jólagjöf.