Fréttablaðið


Fréttablaðið - 19.12.2002, Qupperneq 20

Fréttablaðið - 19.12.2002, Qupperneq 20
19. desember 2002 FIMMTUDAGUR Það er líf að færast í skákíþrótt-ina hér á landi eftir magran tí- unda áratug síðustu aldar. Það mætti kalla það gullaldartímabil þegar menn á borð við Jóhann Hjartarson, Margeir Pétursson, Helga Ólafsson og fleiri voru mik- ið í sviðsljósinu og kepptu reglu- lega á mótum við góðan orðstír. Þessir menn höfðu nánast atvinnu af því að tefla enda voru góð verð- laun í boði á mótum. Þegar litið er til baka virðist sem þeir hafi dott- ið út hver á fætur öðrum og eng- inn fyllt þeirra stað. Að sögn Hrannars B. Arnars- sonar, forseta Skáksambands Ís- lands, hefur þetta sínar skýringar. „Í fyrsta lagi þá flæddi inn mikið af millisterkum skákmönnum frá Austur-Evrópu við fall kommún- ismans. Þeir höfðu í raun verið tempraðir inni og aðeins bestu skákmönnunum hleypt út að keppa. Þetta leiddi af sér mikið framboð á skákmönnum og um leið fór verðlaunafé á skákmótum minnkandi.“ Hina ástæðuna segir Hrannar vera innreið tölvunnar. Með tilkomu hennar hafi skák- áhugamenn átt möguleika á að tefla heima við sterk skákforrit og í leiðinni hafi dregið úr þátt- töku á skákmótum. Framboð og forrit styrkja skákina Hrannar bendir þó á að skáklíf hafi ekki alveg legið niðri og til dæmis hafi skákmenn eins og Hannes Hlífar Stefánsson staðið sig vel undanfarin ár. Hrannar heldur svo áfram: „Þrátt fyrir að offramboð skákmanna og tölvan hafi dregið úr sýnilegum vin- sældum skákarinnar þá hafa þessi tvö atriði einnig virkað styrkjandi fyrir íþróttina.“ Hrannar bendir á að með skákfor- ritum hafi almenningur getað teflt á móti mun sterkari and- stæðingum en annars. Einnig hafi mikið framboð á skákmönnum leitt til þess að auðveldara hafi verið að fá skákmenn hingað til lands, sem aftur hefur komið skákfólki hérlendis til góða. Auk þess hafa taflfélög á borð við Hrókinn verið dugleg við að breiða út skákina með því að stan- da fyrir mótum og flytja inn er- lent skákfólk. „Árangurinn erum við að sjá í dag, hjá skákfólki af báðum kynjum. Til dæmis var ár- angur beggja sveita okkar á ólympíuskákmótinu fyrr á árinu mun betri en búist var við. Þá er Stefán Kristjánsson að standa sig vel á heimsmeistaramóti ung- linga þessa dagana, þar sem hann tapaði sinni fyrstu skák ekki fyrr en í áttundu umferð,“ bendir Hrannar á. Auk þess keppir Dav- íð Kjartansson á mótinu og hefur líka staðið sig vel. Framtíðin virðist því björt í ís- lenskum skákheimi. Það eru kanns- ki ekki jafn miklir möguleikar á því að stunda skákina sem atvinnu. Það er þó möguleiki að Íslendingar fari að eignast fleiri framúrskar- andi skákmenn og bendir Hrannar á að fjöldi ungs skákfólks hér á landi sé að ná áföngum í skákinni. Þar sé að þakka áðurtöldum atrið- um, auk þess sem Skáksambandið hafi tekið upp hvetjandi kerfi í formi styrkja fyrir þá sem ná áföngum. ■ SKÁKIN Í AUKINNI SÓKN Skákin hefur verið lítið í sviðsljósinu undanfarin ár en er nú að verða sýnileg á ný. Skákin á uppleið eftir mögur ár Fyrir rúmum áratug áttu Íslendingar nokkra skákmenn sem telja mátti atvinnumenn í íþróttinni. Síðan dalaði íþróttin mikið. Hrannar B. Arnarsson, forseti Skáksambands Íslands, telur bjartari tíma fram undan. DAVÍÐ KJARTANSSON Fulltrúi nýrrar og upprennandi kynslóðar íslenskra skákmanna. HANNES HLÍFAR STEFÁNSSON Einn fárra sem hafa verið að ná árangri á mótum síðustu ár. HRANNAR B. ARNARSSON Segir mikinn vöxt vera í skákinni í dag. Erum einnig með glæsi- legar ítalskar eldhúsinn- réttingar, komið og skoðið sýningareldhúsin á staðnum eða fáið send- an myndalista. Opið mán.–fös. 10–18, lau. 10–16 og sun. 13–16 – gæða húsgögn Bæjarhrauni 12, Hf. Sími 565-1234 Jól ati lbo ð Jól ati lbo ð Jól ati lbo ð Jól ati lbo ð Jól ati lbo ð Leðurhornsófar 2+H+2 og 2+H+3 verð frá 179.000.- stgr. Litir: koníaksbrúnt og antíkbrúnt. Módel King 3+1+1, fullt verð 329.000.- verð nú 298.900.- stgr. Koníaksbrúnt, rauðbrúnt og dökkbrúnt bycast leður Módel IS 1000 3+1+1 verð nú aðeins 189.000.- stgr. Litir: koníksbrúnt, antikbrúnt, svart, búrgundýrautt og ljóst Módel IS 200 3+1+1 3+2+1 í Bycast leðri og taui Hátíðatilboð 3+1+1 í leðri á aðeins 298.000.- stgr. Margar gerðir af borðstofuhúsgögnum frá Ambitat. Glæsileg ítölsk leðursófasett stakir sófar og hornsófar

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.