Fréttablaðið - 19.12.2002, Blaðsíða 26
19. desember 2002 FIMMTUDAGUR
Ámeðan meirihluti landsmannasinnir jólaundirbúningi og nýtur
stemningarinnar á aðventunni sitja
námsmenn um allt land sveittir yfir
próflestri. Nú er skammt til jóla og
margir því orðnir langþreyttir á
lestrinum enda búnir að vera að
myrkranna á milli í margar vikur og
jafnvel mánuði. Þegar prófunum
loksins lýkur ríkir mikil gleði meðal
nemanna eins og vera ber. En þar
sem allt sem viðkemur jólunum hef-
ur verið látið sitja á hakanum fram
að því eru ýmis verkefni sem bíða
þeirra áður en hægt er að fara að
slaka á fyrir alvöru. Meirihluti há-
skólanema kýs að vinna ekki í jóla-
fríinu sínu og nýta það heldur til að
endurheimta orkuna svo hægt sé að
mæta hress og endurnærður í skól-
ann á nýju ári.
Framhaldsskólanemar og háskólafólk eru enn í prófum:
Jólin veita
langþráða hvíld
Ég byrjaði í prófum 7. desemberog mér er búið að ganga sæmi-
lega hingað til,“ segir Þórður Snær
Júlíusson, nemi á öðru ári í stjórn-
málafræði í Háskóla Íslands. Þórð-
ur fer í síðasta prófið sitt á laugar-
daginn og ætlar að halda upp á það
með því að fara á jólahlaðborð um
kvöldið. „Það verður auðvitað mjög
gott þegar þessu er lokið og maður
getur farið að lifa lífinu að nýju.“
Þórður lætur það ekkert á sig fá
þó margir vina hans séu ekki í próf-
um en finnst samt leiðinlegt að próf-
in hjá honum þurfi að dragast svona
lengi. „Mér finnst ekki nógu sniðugt
að við skulum fá heilar 3 vikur til að
undirbúa 4 próf. Þetta er hreinlega
allt of langur tími. Ég held að það
væri alveg hægt að skipuleggja
þetta betur svo við yrðum búin
fyrr.“ Þórður er búinn að vera á
Þjóðarbókhlöðunni meira og minna
síðan upplestrarfríið byrjaði og hef-
ur því orðið lítið var við jólastemn-
inguna sem ríkir í bænum. „Ég held
að jólaskapið komi ekki fyrr en á
laugardaginn því ég hef engan tíma
til þess að pæla í jólunum fyrr en
þá. Svo nota ég bara sunnudaginn
og mánudaginn til þess að kaupa
jólagjafir og gera það sem gera
þarf.“
Þórður er að vinna með skólan-
um en hefur ákveðið að taka sér frí
að mestu leyti yfir jólin. „Ég ætla
bara að nota tímann til þess að sofa
út og lesa eitthvað annað en náms-
bækur. Annars verð ég reyndar að
vinna aðeins strax eftir áramót því
ég er í fríi alveg til 13. janúar. Ég er
nefnilega búinn að taka að mér að
leysa af kennara í Korpuskóla í
nokkra daga.“ Kennslan leggst
ágætlega í Þórð þó ekki hafi hann
fengist við slík störf áður. „Ég
hlakka rosalega mikið til að prófa
þetta.“ ■
Jólaskapið kemur þegar prófunum er lokið
Þórður Snær Júlíusson
er orðinn þreyttur á
próflestrinum og finnst
óþarfi að prófin taki svo
langan tíma sem raun
ber vitni.
ÞÓRÐUR SNÆR JÚLÍUSSON
Verður í löngu jólafríi og ætlar að nota tækifærið og prófa að fara í hlutverk kennarans í
nokkra daga á nýju ári.
Guðmundur G. Kristjánsson ernemi á fyrsta ári í viðskipta-
fræði í Háskóla Íslands. Hann byrj-
aði í prófum 7. desember og hefur
setið í Þjóðarbókhlöðunni við lestur
sleitulaust síðan. „Mér er búið að
ganga ágætlega en fyrsta prófið var
dálítið erfitt. Það var í rekstrarhag-
fræði og það voru margir mjög
óánægðir með prófið,“ segir Guð-
mundur. Hann hefur þó ekki látið
það slá sig út af laginu og síðustu
tvö prófin leggjast ágætlega í hann.
„Síðasta prófið er á laugardaginn og
ég fer örugglega eitthvað að
skemmta mér eftir það. Það verður
víst eitthvað jólaboð fyrir viðskipta-
fræðinema, lögfræðinema og verk-
fræðinema á Hótel Íslandi.“
Guðmundur býr í foreldrahúsum
en tekur lítinn þátt í jólaundirbún-
ingnum á heimilinu á meðan hann
er enn í prófum. Hann þarf þó eins
og flestir að kaupa einhverjar jóla-
gjafir áður en hátíðin gengur í garð.
„Ég hef auðvitað ekki haft neinn
tíma til að undirbúa jólin en það er
allt í lagi því ég er ekki nema
nokkra klukkutíma að ljúka af jóla-
gjafainnkaupunum.“ Guðmundi
finnst engu að síður mjög óþægilegt
að vera búinn svona seint í prófum.
„Maður kemst auðvitað ekki í neitt
jólaskap því maður er alltaf að
hugsa um prófin. Það er líka frekar
leiðinlegt þegar maður hittir fólk
sem er ekki í prófum og er komið í
mjög mikla jólastemningu.“ ■
Jólastemningunniskotið á frest
Guðmundur G. Krist-
jánsson situr við próflest-
ur bróðurpartinn af að-
ventunni og fer því að
mestu á mis við jólaund-
irbúninginn á heimilinu.
GUÐMUNDUR G. KRISTJÁNSSON
Gaf sér örstutt hlé frá próflestri til að fá
sér morgunhressingu í kaffistofu
Þjóðarbókhlöðunnar.