Fréttablaðið - 19.12.2002, Page 28

Fréttablaðið - 19.12.2002, Page 28
28 19. desember 2002 FIMMTUDAGUR Við höfum alltaf haft prófin ísíðustu vikunni fyrir jól en nú er búið að lengja skólaárið og okkur fannst þetta allt of löng törn í kennslu,“ segir Helga Kristín Gunnarsdóttir, deildar- stjóri í Valhúsaskóla. „Þetta kom þó til fyrst og fremst vegna þess að krakkarnir eru búnir að vera svo frábærir í vetur að okkur dauðlangaði að gera eitthvað skemmtilegt fyrir þau fyrir jól- in.“ Hugmyndin að þemadögun- um vaknaði snemma í haust en í lok október byrjuðu kennarar skólans að vinna markvisst að því að skipuleggja dagskránna. „Fólk skiptir með sér verkum og allir leggja eitthvað af mörk- um.“ Í Valhúsaskóla eru fjórir elstu bekkir grunnskólastigsins og á þemadögunum verður reynt að bjóða upp á eitthvað við allra hæfi. „Hver árgangur er með sitt prógram og þau eru ýmist að vinna saman innan bekkjarins eða í stöðvavinnu sem þau hafa sjálf valið sér. Af því sem í boði er má nefna myndmennt, smíðar og sauma, piparkökubakstur og konfektgerð, leiklist, söng og freestyledans,“ segir Helga Kristín. Kennarar og nemendur hjálpast að við að skipuleggja vinnu hvers hóps og einnig hafa verið fengnir utanaðkomandi að- ilar til að aðstoða þar sem þess hefur þótt þörf. „Við erum svo heppin að vera með leikkonu í félagsmiðstöð- inni Selinu og hún ætlar að hjálpa okkur með leiklistarhóp- inn. Svo fáum við kennara úr Tónlistarskóla Seltjarnarness til að aðstoða okkur með söng og hljóðfæraleik. Í dansinum ætl- um við að nota krafta nemenda og fengum nokkrar mjög klárar stelpur í lið með okkur. Okkur fannst við ekki í stakk búin að veita þeim leiðbeiningar þar.“ Helga segir að lítill munur sé á kynjaskiptingunni milli hópa og það hafi til dæmis komið á óvart hversu margir strákar skráðu sig í dansinn. En dagskráin fer ekki öll fram innan veggja skólans. „Við ætlum á kaffihús og yngri krakkarnir fá að sjá kvikmynd á meðan þau eldri fara í Hafnar- fjarðarleikhúsið að sjá Grettis- sögu. Á fimmtudaginn stendur til að leikhópurinn og sönghóp- urinn flytji afrakstur vikunnar og á föstudeginum verða litlu jólin haldin með hefðbundnu sniði.“ Helga á von á því að krakk- arnir muni taka þemadögunum opnum örmum og hefur hingað til aðeins orðið vör við jákvæð viðbrögð frá nemendum. „Þau eru vön því að vera í prófum al- veg fram undir jól og þau eru rosalega fegin að vera að þessu sinni búin aðeins fyrr og fá smá skemmtun rétt fyrir jólin.“ ■ Í Valhúsaskóla á Seltjarnarnesi verður hefðbundin kennsla felld niður í þessari viku og þess í stað haldnir þemadagar fyrir alla nemendur skólans. Nemendum umbunað fyrir dugnað og prúðmennsku JÓLASTEMNING Í SKÓLASTOFUNNI Það er greinilegt að nemendur Valhúsa- skóla eru komnir í jólaskap enda prófun- um lokið og ýmsar skemmtilegar uppá- komur framundan. HANDAVINNA Eitt af því sem er í boði á þemadögunum er föndur í saumum. Þar gefst krökkunum til dæmis tækifæri á að búa til skemmti- legar jólagjafir handa sínum nánustu. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /R Ó B ER T MAGNÚS ÓLAFSSON Bregður sér einu sinni til tvisvar í hlutverk Hurðaskells þessi jól. Hann hefur verið fastagestur á jólaballi Prentarafélagsins auk þess sem hann kemur við hjá vinum og kunningjum. Magnús Ólafsson, leikari: Jólasveinn í 40 ár JÓL „Lykillinn að því að vera góð- ur jólasveinn er að hafa gaman af því sem maður er að gera,“ segir Magnús Ólafsson, leikari og prentari, sem hefur leikið jóla- svein í rúm 40 ár. Hann lék fyrst jólasvein fimmtán ára gamall, þegar hann hljóp í skarðið fyrir jólasvein sem veiktist. „Ég kunni ekki að leika og var bara fleygt út í þetta,“ segir Magnús en bæt- ir því við að frumraunin hafi gengið vel. Magnús segir að jólasveinar þurfi að kunna að syngja en ekki séu allir sem kunni það nú. „Það eru kannski hinir einu sönnu jóla- sveinar,“ segir leikarinn hlæj- andi. Magnús leikur alltaf Hurða- skelli þegar hann bregður sér í gervi rauðklædda sveinsins. Hann hefur gefið út þrjár jóla- sveinaplötur ásamt Þorgeiri Ást- valdssyni, Stúfi litla. Plöturnar seldust vel og hafa þær verið endurútgefnar síðustu ár. Magnús hefur ekki sagt skilið við jólasveinahlutverkið þó hann bregði sér ekki í það jafn oft og áður. „Ég lék í ein 15 ár á stóra jólaballinu hjá Verslunarmanna- félagi Reykjavíkur. Það var aðalballið en svo fjaraði það út. Það er foreldrum að kenna því þeir hafa ekki haldið þessu við. Fólk verður að nenna að fara með börnin á böllin,“ segir Magnús en þegar mest var að gera hjá hon- um lék hann á fimm til sex böll- um á dag. ■

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.