Fréttablaðið - 19.12.2002, Blaðsíða 34
34 19. desember 2002 FIMMTUDAGUR
kl. 4LIKE MIKE kl. 4, 6, 8 og 10
Sýnd kl. 5, 6, 8, 9 og 10.50
Sýnd í lúxus kl. 4, 7 og 10 Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.10
kl. 10.10POSSESSION
SANTA CLAUSE kl. 5.55, 8 og 10.10Sýnd kl. 6, 8 og 10
Sýnd kl. 5 og 8
THE TUXEDO kl. 8 VIT474 SWEET HOME ALABAMA 4 og 6
VIT
461
LILO OG STITCH/ísl.tal kl. 4 VIT429
SANTA CLAUS kl. 3.40, 5.50, 8, 10.10 VIT485
CHANGING LANES kl. 10.10 VIT479
kl. 5.50 og 8HAFIÐ
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 9.15 VIT 468 Sýnd kl. 6, 8 og 10.10 VIT 487
MASTER OF DISGUISE
FRÉTTIR AF FÓLKI
Önnur myndin í Hringadróttins-þríleiknum, „The Two
Towers“, var frumsýnd í gær í
Bretlandi og í
Bandaríkjunum.
Hún var sýnd í
yfir 10 þúsund
sýningarsölum í
gær á heimsvísu,
þar af 6.500 í
Bandaríkjunum.
Ekki er búist við
öðru en að hún
rjúki beint í efsta sæti aðsóknar-
lista. Langflestir gagnrýnendur
gefa myndinni frábæra dóma og
virðist almenningur sammála. Að
minnsta kosti ef eitthvað er að
marka vefinn Internet Movie
Database þar sem myndin var
komin í 174. sæti yfir bestu mynd-
ir allra tíma tveimur dögum áður
en hún kom út. Fyrri myndin í
þríleiknum er nú í fimmta sæti á
þeim lista. Þegar er byrjað að spá
myndinni fjölda tilnefninga til
Óskarsverðlauna.
Leikkonan og fyrirsætan LizHurley hefur afþakkað tilboð
frá barnsföður sínum sem vildi
borga henni 100
þúsund pund (13,2
milljónir ísl. kr) á
ári fyrir að sjá um
uppeldi sonar
þeirra. Samkvæmt
úrskurði dómsyf-
irvalda var honum
skipað að borga
1,8 milljónir
punda (237 milljónir ísl. kr.) á
fyrstu 18 árum sonarins eftir að
DNA próf sýndi að hann væri fað-
ir hans. Hurley segist þó ekki vilja
peningana. Hún segir að henni og
syni sínum vegni vel ein á báti.
Æskuheimili Eminem seldistekki á Ebay-uppboðinu þrátt
fyrir að hæsta boðið hafi hljóðað
upp á 12 milljónir dollara. Þegar
allt kom til alls höfðu svo margir
sprelligosar boðið í húsið undir
fölsku nafni að ekkert var mark-
tækt á endanum. Hæsta raunveru-
lega boðið náði ekki settu lágmarki
og því er húsið enn óselt.
Pepsi-fyrirtækið hefur ákveðiðað láta Britney Spears róa og
ráða til sín sönggyðjuna Béonce
Knowles úr Destiny’s Child. Hún
hefur samþykkt að birtast í tveim-
ur auglýsingum fyrir fyrirtækið.
Pepsi hefur einnig boðist til þess
að styrkja tónleikaferðalag á
næsta ári sem stúlkan er að leggja
drög að. Það verður fyrsta tón-
leikaferðin sem hún fer í ein og
óstudd. Samningur Pepsi við
Britney rennur út í árslok og ekki
eru áform um að endurnýja hann.
Út er komin ný plata með einniaf uppáhalds sveitaballa-
hljómsveit okkar Íslendinga,
Landi og sonum. Platan heitir
Happy Endings og eins og enskan
í nafninu gefur til kynna er hér
um að ræða hljómplötu á ensku.
Platan hefur heillegt yfirbragð,
og jafnvel fullheillegt þar sem
mér finnst lögin öll frekar svip-
uð, að minnsta kosti er hljómur-
inn kunnuglegur og manni finnst
eins og maður hafi heyrt öll lögin
áður. Enskan þykir mér heldur
vera galli þar sem skemmtilegu
textarnir sem alltaf hafa ein-
kennt Land og syni hafa orðið
undir fyrir einhverjum hálf asna-
legum enskum textum sem engan
veginn eru með tærnar þar sem
textar eins og „Vöðvastæltur“
hafa hælana. En það eru ekki
bara textarnir sem eru orðnir al-
þjóðlegir heldur er tónlistin það
líka, og minnir sterkt á banda-
rískar popp/rokk sveitir. Ekki
veit ég hvort Land og synir eiga
eftir að slá í gegn í útlandinu,
eins og allir vilja vera láta, en ég
veit að þessi nýju lög verða
skemmtileg viðbót í íslensku
sveitaballaflóruna.
Anna Tryggvadóttir
Alþjóðlegt
sveitaball
LAND OG SYNIR: Happy Endings
TÓNLIST
KVIKMYNDIR Hún Stella komst ekki
stórslysalaust frá því að fara í orlof
fyrir rúmum 16 árum. Endurkoma
Stellu virðist það sjálfsögð og vel-
komin að hægt er að ímynda sér að
myndin hafi verið á teikniborðinu í
langan tíma.
„Fyrstu árin eftir að við gerðum
Stellu 1986 datt okkur ekki í hug að
gera mynd í kjölfarið þó að það hafi
alltaf verið hugmynd í loftinu að
hún færi einhvern tímann til Spán-
ar,“ segir Halldór Þorgeirsson
framleiðandi. „Svo liðu árin og sá
tímapunktur kom að okkur fannst
rétt að gera þetta. Hún fór reyndar
ekki til Spánar, en í framboð í stað-
inn.“
Hann og eiginkona hans, Guðný
Halldórsdóttir, leikstjóri myndar-
innar, reka saman kvikmyndafyrir-
tækið Umba og hafa framleitt alvar-
legar myndir og gamanmyndir til
skiptis. Síðasta mynd var „Ungfrúin
góða og húsið“ og því tími kominn
til þess að sletta úr klaufunum. „Við
þekkjum Stellu vel og fannst gam-
ansöm hugmynd að draga hana aft-
ur í sviðsljósið eftir öll þessi ár.
Hver veit nema eftir næstu 17 ár
verði Stella orðin eftirlaunaþegi á
Spáni.“
Í myndinni eru 17 ár liðin frá or-
lofinu viðburðaríka. Allar söguper-
sónur fyrri myndarinnar koma aft-
ur við sögu, eldri en lítið vitrari, og
margar nýjar bætast í hópinn. Stella
og Salomon reka saman fyrirtæki
og blandast inn í kosningaslaginn
vegna þessa. „Þau eru fengin til
þess að aðstoða miðjuflokk í barátt-
unni um sæti á Alþingi við annan
miðjuflokk. Af misskilningi fer
Stella óvart inn á framboðslistann. Í
millitíðinni er Salomon fenginn út á
land til þess að vinna fyrir Anton
Skúlason flugstjóra og þar fer allt í
bál og brand. Það hefur svo veruleg
áhrif á útkomu kosninganna. Þetta
er ekki pólitísk mynd. Þetta eru
bara tveir miðjumoðsflokkar, bara
eins og íslenskir flokkar eru.“ Hall-
dór tekur það sérstaklega fram að
engu púðri sé eytt í það að skjóta á
strauma og stefnur íslenskra stjórn-
málaflokka.
Halldór ætti að þekkja Stellu
manna best. Myndi hann treysta
henni inni á Alþingi? „Já,“ svarar
hann hiklaust. „Hún yrði að minnsta
kosti skemmtileg. Hún er hreinskil-
in og gengur beint til verks. Kan-
arnir myndu segja að hún væri ekki
„full of shit“,“ segir hann og hlær
feimnislega að lokum.
Í kvöld verður haldin sérstök
boðssýning og verður hún svo for-
sýnd á morgun í Háskólabíó og í
Sambíóunum á Akureyri. Stella fer
svo formlega í framboð annan í jól-
um.
biggi@frettabladid.is
STELLA Í FRAMBOÐI
Meðal leikara í myndinni eru Edda Björgvinsdóttir (Stella), Þórhallur Sigurðsson (Salomon), Rúrik Haraldsson (Leó Löve), Gísli Rúnar
Jónsson (Anton), Nína Dögg Filippusdóttir (Bíbí), Björn Jörundur Friðbjörnsson (Önundur), Róbert Ólíver Gíslason (Goggi) og Alda
Rós Hafsteinsdóttir (Stella Brá).
Jólamynd Sambíóanna er framhaldsmynd „Stellu í orlofi“. Sautján ár eru liðin
frá sumarbústaðaævintýrinu síðast og fyrir algjöra slysni fær Stella sæti á fram-
boðslista stjórnmálaflokks til alþingiskosninga.
X - Stella
pöntun cocio@mi.is
uppl: 659 0994
Heimsendingargjald kr. 300
á höfuðborgarsvæðinu
Jólatilboð
Silkidamask
sængurverasett
6.500 kr. settið
Verslun
Jórunnar Brynjólfs
Skólavörðustíg 19
s. 551 6088