Fréttablaðið


Fréttablaðið - 19.12.2002, Qupperneq 46

Fréttablaðið - 19.12.2002, Qupperneq 46
46 19. desember 2002 FIMMTUDAGUR Vinstrisinnað ungt tónskáld Símon Örn Birgisson er átján ára gamalt tónskáld. Fyrsta kórverk hans var frumflutt í gær. Hann stefnir á tónsmíðanám og segir bein tengsl milli listamanna og vinstri skoðana. Kórverkið „Á Hvalsnesi“ eftirSímon Örn Birgisson, við ljóð Snorra Hjartarsonar, var frumflutt af Kammerkór Hafn- arfjarðar í gær. Símon Örn er átján ára gamall Hafnfirðingur, sonur hjónanna Birgis Svan Sím- onarsonar skálds og Stefaníu Er- lingsdóttur, sem starfar hjá Eim- skipafélaginu. Föðurbróðir Sím- onar er Ólafur Haukur Símonar- son rithöfundur. Símon Örn var drifinn í Suzuki-skólann „ungur að aldri“ eins og hann orðar það og sýndi píanóinu mikinn áhuga þar til hann fór í framhaldsskóla. „Það flosnaði upp úr þessu hjá mér þá en ég sneri mér aftur að píanóinu fyrir tveimur árum og hellti mér þá út í það af fullum krafti,“ seg- ir tónskáldið unga, sem byrjaði þá einnig að semja verk fyrir hljóðfærið. „Á Hvalsnesi“ er fyrsta kórverkið sem hann sem- ur. Hann segir talsverðan mun á því að semja verk fyrir píanó og kór. „Það er frekar hægt að sleppa fram af sér beislinu þegar samið er fyrir píanó. Það er svo margt sem þarf að taka tillit til við kórinn: textinn, allar raddir og fleira. Kórinn er eitthvert fallegasta hljóðfæri sem til er,“ segir Símon Örn og bætir við að hann vildi gjarnan semja verk fyrir fleiri hljóðfæri. Símon Örn er á fjórða ári á fé- lagsfræðibraut í Flensborgar- skólanum og hyggst klára eftir ár. „Ég býst nú ekki við að leggja félagsfræðina fyrir mig,“ segir Símon Örn hlæjandi. „Ég stefni á að komast í Listaháskólann í tón- smíðadeild og hver veit nema hugurinn stefni út fyrir land- steinanna.“ Símon Örn hefur mikinn áhuga á pólitík og er í stjórn hjá ungum jafnaðarmönnum í Hafn- arfirði. „Það eru bein tengsl milli listamannsins og róttækra vinstri stjórnmálaskoðana. Mitt markmið er aðallega að berjast fyrir menningu. Við ungir jafn- aðarmenn höfum til dæmis kom- ið því í gegn að Listahátíð ungs fólks er haldin í Hafnarfirði auk þess sem við höfum staðið fyrir tónleikum og menningarkvöld- um.“ kristjan@frettabladid.is PERSÓNAN 35 ÁRA Guðlaugur Þór Þórðarson, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokks- ins, er þrjátíu og fimm ára í dag en fær ekkert ráðrúm til þess að gera sér sérstakan dagamun. „Þetta verður stífur afmælisdagur þar sem seinni umræðan um fjárhags- áætlun borgarinnar fer fram í dag og stendur fram eftir nóttu.“ Guðlaugur verður því í góðum félagskap samherja og andstæð- inga og tekur því með jafnaðargeði enda ekki vanur því að vera með mikið tilstand á afmælisdaginn. „Fjölskyldan gerir venjulega eitt- hvað skemmtilegt þegar maður vaknar og við hjónin höfum stund- um farið út að borða en það er orð- ið mjög langt síðan ég gerði eitt- hvað stórt á afmælinu mínu.“ Guðlaugur er uppalinn í Borgar- nesi, gekk í Menntaskólann á Akur- eyri og útskrifaðist sem stjórn- málafræðingur frá HÍ. Stjórnmálin eru helsta áhugamál hans og honum gefst lítill tími til að sinna öðru. „Maður reynir að eyða eins miklum tíma og maður getur með fjölskyld- unni og svo skýst maður í hitt og þetta þegar tími gefst til. Ég hef gaman af íþróttum og útivist og við hjónin förum svolítið í leikhús og á tónleika. Við höfum bæði mjög gaman af matargerð og ég reyni líka að lesa mikið, ekki síst um póli- tík og sögu. „Ég fæ iðulega mikið af bókum í jólagjöf og það kæmi mér á óvart ef ég fæ ekki nýju bókina hans Davíðs. Ég las fyrri bókina hans mér til mikillar ánægju og hef heyrt hann lesa upp úr þessari og á ekki von á öðru en hún sé góð. Þar fyrir utan á ég auðvitað helling af ólesnum bókum heima sem allar bíða betri tíma.“ Guðlaugur er giftur Ágústu Johnson og þau eiga saman tvö börn. „Fjölskyldulífið á vel við mig og það er með mig eins og marga aðra að ég vildi gjarnan eyða meiri tíma með fjölskyldunni en ég held samt að okkur takist ágætlega að samræma þetta.“ ■ Guðlaugur Þór Þórðarson borgarfulltrúi mun eyða afmælisdeginum á löngum og ströngum borgarstjórnarfundi þar sem fjárhagsáætlun borgarinnar verður rædd fram eftir nóttu. Afmæli Í góðum félagsskap fram eftir nóttu MEÐ SÚRMJÓLKINNI Að gefnu tilefni skal tekið fram að GSM- númerið hjá Guðna Ágústssyni landbún- aðarráðherra er tvær langar, ein stutt. Leiðrétting1. 2. 3. Veistu svarið? Svör við spurningum á bls. 6 Iceland Express. Teitur Þórðarson. Vetrarsólstöður. Daginn fer að lengja. LÓÐRÉTT: 1 starf, 2 gras, 3 reiðmenn, 4 kát, 5 holskrúfur, 6 mundir, 7 myndun, 8 þverneiti, 11 galgopi, 14 stafur, 16 kraminn, 18 vingjarnleiki, 20 harmar, 21 árbókar, 23 fyrirlestra, 26 lækurinn, 28 holdfúi, 30 askar, 31 sveia, 33 keyra. LÁRÉTT: 1 dugleg, 4 rudda, 9 eðli, 10 meðvitund, 12 flakk, 13 þröngi, 15 beljaka, 17 illgresi, 19 heydreifar, 20 snöggi, 22 skinni, 24 beita, 25 dónalegur, 27 ær, 29 leiðslunni, 32 geislabaugurinn, 34 eyktamarks, 35 kynsjúkdóm, 36 rákin, 37 ójafna. Lausn á síðustu krossgátu: Lárétt: 1 búks, 4 óskert, 9 viðsjál, 10 stög, 12 páll, 13 lúðuna, 15 fell, 17 rýrt, 19 fái, 20 ókost, 22 áburð, 24 rif, 25 assa, 27 æsta, 29 tangir, 32 aula, 34 arða, 35 smáræði, 36 ritaði, 37 iðin. Lóðrétt: 1 basl, 2 kvöð, 3 sigurs, 4 óspar, 5 sjá, 6 kálf, 7 ellefu, 8 taglið, 11 túrkis, 14 nýta, 16 lárvið, 18 tása, 20 órækur, 21 oftast, 23 banaði, 26 stari, 28 auma, 30 grið, 31 raun, 33 láð. FÓLK Í FRÉTTUMHVAR Það var sunnudagur og trúaðimaðurinn ákvað að sleppa því að fara í kirkju, bara þennan eina sunnudag, og fara á veiðar. Þegar hann kom út í skóg rakst hann fljótlega á glorsoltinn skógar- björn. Trúaði maðurinn lagði strax á flótta en þegar hann sá að hann ætti enga möguleika hentist hann á hnén og bað: „Góði Guð, gefðu að þessi skógarbjörn verði kristinn.“ Í sömu svifum snarstansaði björninn, henti sér líka fram fyrir sig og bað: „Góði Guð, þakka þér fyrir þessa máltíð sem ég er í þann veginn að ná mér í.“ KROSSGÁTA SÍMON ÖRN BIRGISSON Símon Örn segist vera orðinn forfallinn skákáhugamaður. Hann leggur nú stund á píanónám hjá Erni Magnússyni. LAUGAVEGI 15 • Sími 511 1900 www.michelsen.biz Kíktu á úrvalið á Stórglæsilegir skartgripir GUÐLAUGUR ÞÓR ÞÓRÐARSON „Þetta er líka á þessum tíma ársins að af- mælið fellur í skuggann af öðru, þannig að ég er vanur rólegum og notalegum afmæl- isdögum alveg frá því ég man eftir mér.“ FR ÉT TA B LA Ð IÐ /R Ó B ER T Almannatengslamennirnir hjáKOM eru ánægðir með sig þessa dagana eftir að bandaríska sjónvarpsstöðin CNN birti viðtal við Árna Mathiesen sjávarút- vegsráðherra þegar hann var í Bandaríkjunum fyrir skemmstu. Þar fjallaði Árni um stjórn fisk- veiða og kynnti heiminum áhersl- ur Íslendinga. Frumkvæðið að viðtalinu mun ekki hafa komið frá sjónvarpsstöðinni heldur sátu starfsmenn KOM og samstarfs- menn þeirra vestanhafs með sveittan skallann við að fá CNN til að birta viðtal við Árna. Það tókst og telja þeir víst sjálfir að viðtalið sé á við nokkur hundruð milljóna króna auglýsingar, hið minnsta. Sú alræmda mannanafnanefndog hennar störf hafa farið fyr- ir brjóstið á mörgum manninum. Einn þeirra er Steingrímur Sæv- arr Ólafsson, fyrrum fréttamaður og núverandi PR-maður auglýs- ingastofunnar Góðs fólks. Stein- grímur er einn af mikilvirkari bloggurum landsins og hefur á þeim vettvangi herjað stöðugt og lengi á mannanafnanefnd með fyrirspurnum og ítrekuðum tölvupósti. Hann berst fyrir því að fá millinafn sitt Sævarr viður- kennt. Mannanafnanefnd hefur lengi látið undir höfuð leggjast að svara fyrirspurnum hans en nú er langlundargeðið þrotið. Stein- grímur Sævarr hefur fengið þá meldingu frá nefndinni að hún sé hætt að virða hann viðlits og ætli hann að halda þessu til streitu skuli hann beina máli sínu til dómstóla. Glámur og Skrámur eru ein-hverjar þekktustu persónur sem komið hafa fram í sjónvarpi. Þeir félagar sáust fyrst á skjánum árið 1971 og eru því orðnir rétt rúmlega þrítugir. Þeir skemmtu sjónvarpsáhorfendum til ársins 1980 og gáfu meðal annars út plötu árið 1979 sem selst enn. „Þeir koma aldrei aftur fram í sjónvarpinu. Þeir lifa bara í minn- ingunni og á plötunni,“ segir Andrés Indriðason, sem átti hug- myndina að Glámi og Skrámi, en það var Gunnar Baldursson leik- myndahönnuður sem hannaði brúðurnar. Glámur og Skrámur hafa síð- ustu ár dvalið í leikmunadeild Sjónvarpsins ásamt mörgum öðr- um þekktum persónum úr sjón- varpinu, svo sem Páli Vilhjálms- syni og Binna bankastjóra. ■ JARÐARFARIR 13.30 Grétar Finnbogason, fyrrverandi lögreglumaður, frá Látrum í Aðal- vík, Suðurvangi 14, Hafnarfirði, verður jarðsunginn frá Hafnar- fjarðarkirkju. AFMÆLI Guðlaugur Þór Þórðarson borgarfulltrúi er 35 ára. TÍMAMÓT ÚTI Á GRÓTTU Það er friðsælt úti á Gróttu á Seltjarnarnesi, einni helstu perlu höfuðborgarsvæðisins. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /R Ó B ER T

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.