Fréttablaðið - 27.12.2002, Blaðsíða 2
2 27. desember 2002 FÖSTUDAGUR
Séra Karl Sigurbjörnsson er biskup Þjóðkirkjunnar.
Jólagjafakaup voru í algleymingi í aðdraganda jól-
anna en yfir hátíðina hafa borist fregnir af góðri
kirkjusókn.
Eflaust eru einhverjir sem muna eftir því en
aðrir sem velkjast í vafa. Spurningin er þó
hvernig fólk tekur fagnaðarerindið inn í
hversdaginn eftir jólin. Mikilvægast er að
fagnaðarerindinu sé ekki pakkað niður
með jólaskrautinu.
SPURNING DAGSINS
Muna Íslendingar eftir fagn-
aðarerindinu í jólahaldinu? Barnafjölskylda í bílveltu í hálku á Suðurlandsvegi:
Beltin forðuðu stórslysi
BÍLSLYS Rúmlega þrítug kona slas-
aðist nokkuð þegar bíll sem hún
ók valt á Suðurlandsvegi í gær-
morgun.
Konan var á ferð ásamt eigin-
manni sínum og tveimur ungum
börnum þegar óhappið varð neðst
í svokölluðum Brattastíg, skammt
austan Þjórsár. Börnin voru í bíl-
stólum og foreldrar þeirra í bíl-
beltum. Þau voru flutt með tveim-
ur sjúkrabílum til Reykjavíkur.
Að sögn læknis á Landspítalanum
í Fossvogi hefðu örugglega farið
miklu mun verr hefði þau ekki öll
verið í beltum.
Læknirinn sagði um miðjan
dag í gær að konan væri á leið í
aðgerð vegna áverka sem hún
hlaut. Hann sagði engin innvortis
meiðsl hafa fundist. Konan væri
ekki í hættu. Eiginmaður hennar
meiddist aðeins lítillega og börn-
in sluppu alveg ómeidd.
Að sögn lögreglu er talið að
konan hafi misst stjórn á bílnum
vegnar geysimikillar hálku sem
var á veginum þar sem slysið
varð skammt vestan bæjarins
Steinslækjar. Bílinn fór út af í
krappri, aflíðandi beygju og valt
ofan í skurð sem var hálfullur af
vatni. Bíllinn er mjög mikið
skemmdur. ■
Kirkjusókn sögð aukast milli ára:
Mikil gleði og lofsöngur um jólin
KIRKJUSTARF „Aðsókn er ívið meiri
þessi jólin en í fyrra. Þar hjálpar
gott veður, einkum hvað eldra
fólk varðar. Þarf oft lítið til, svell
og skafrenningur getur fælt frá.
En fólk á öllum aldri var við fjöl-
skyldumessu sem var að ljúka
rétt í þessu,“ segir séra Jón Helgi
Þórarinsson sóknarprestur í
Langholtskirkju. Hann var að
koma frá því að kveðja kirkju-
gesti með handabandi, um 400
manns.
Langholtskirkja var þéttsetin
gestum annan í jólum en fluttur
var Helgileikur - Jólaguðspjall
sem Haukur Ágústsson samdi um
fæðingu frelsarans. Barnakórar
kirkjunnar sungu og séra Jón
Helgi skírði nokkur börn. Hann
talar um fjölskyldustund mikla
og góða.
Séra Jón Helgi segir aðspurð-
ur að vissulega verði menn að
gæta hófs í kaupæði sem vill
fylgja jólahaldi. Og hann segist
óneitanlega verða var við að það
hefjist fyrr en verið hefur.
„Nauðsynlegt er að menn gefi sér
tíma til að sinna sínu fólki og
ekki má eyða um efni fram og
hafa svo stöðugar áhyggjur af
því eftir á. Þá er friðurinn farinn
fyrir lítið hjá okkur. En við verð-
um að minna hvert annað á
þetta,“ segir séra Jón Helgi og
bætir við: „Að gleðjast er hluti
hátíðarinnar og ekkert athuga-
vert við það ef boðskapur jólanna
fær notið sín.“ ■
Svars borgarstjóra
beðið í ofvæni
Alfreð Þorsteinsson segir að Ingibjörg Sólrún beri ábyrgð á framtíð R-
listans og talar um hlýindi í veðri aðspurður um samskipti sín og Björns
Bjarnasonar. Stefán Jón Hafstein telur R-listann halda velli.
STJÓRNMÁL „Ég hef verið að slappa
af yfir jólin. Við höfum sagt að
það þyrfti að leiða þetta mál til
lykta fyrir áramót og því fyrr því
betra. Niðurstaða síðasta fundar
var sú að Samfylkingin bað um
tækifæri til að ræða saman í dag.
Fátt gerist í málinu fyrr en þeim
fundi lýkur. Ástæða þess að við
viljum flýta þessu er að við viljum
eyða þeirri óvissu sem uppi er
vegna þessa máls - allra hluta
vegna,“ segir Alfreð Þorsteinsson
borgarfulltrúi Framsóknarflokks.
Aðspurður segist Alfreð ekki
hafa rætt þessi mál við nokkurn
mann undanfarin dægur, hvorki
við sjálfstæðismenn né aðra.
Menn þykjast greina talsverða
þíðu í viðmóti Björns Bjarnasonar
oddvita Sjálfstæðismanna í borg-
inni í garð Alfreðs og Framsókn-
armanna að undanförnu? Því
svarar Alfreð:
„Það er náttúrlega hlýtt í veðri
núna, óvenjulega hlýtt - því er
ekki að neita. En varðandi fram-
tíð R-listans þá er ábyrgðin alger-
lega á herðum Ingibjargar. Um
það er að ræða að hún dragi þessa
ákvörðun sína til baka eða hún
standi upp úr sínum borgarstjóra-
stól og R-listinn haldi áfram en þá
með nýjum borgarstjóra.“ Af orð-
um Alfreðs má því ljóst vera að
Framsóknarmenn hafa ekki dreg-
ið af kröfum sínum og halda fast
við að Ingibjörg Sólrún víki fari
hún fram fyrir Samfylkingu í
komandi kosningum til þings.
Stjórn fulltrúaráðs og forystu-
sveit Samfylkingarinnar mun
koma saman í hádeginu í dag og
fara yfir stöðuna. „Við sjáum
enga ástæðu til að vera lengi yfir
þessu máli en þetta er nú kannski
ekki spurning um sólahringa til
eða frá. Betra að taka góða
ákvörðun fyrir R-listann í heild
og rasa ekki um ráð fram. Og sjá
málið fyrir allt til enda til að
tryggja styrka stjórn í borginni,“
segir Stefán Jón Hafstein borgar-
fulltrúi Samfylkingarinnar og tel-
ur langlíklegast að R-listinn haldi
velli enda sé enginn málefna- eða
persónuágreiningur uppi.
Samkvæmt heimildum
Fréttablaðsins hafa Sjálfstæðis-
menn leitað hófana hjá bæði
Framsóknarflokknum og VG um
myndun nýs meirihluta en ekki
tókst að fá staðfest að farið hafi
fram neinar viðræður þó Alfreð
Þorsteinsson tali um hlýindi í
veðri í samskiptum sín við sjálf-
stæðismenn.
jakob@frettabladid.is
Skoðanakannanir í
Bandaríkjunum:
Flestar
spáðu rétt
um úrslit
WASHINGTON, AP Skoðanakannanir,
sem gerðar voru í Bandaríkjunum á
árinu sem er að líða, reyndust flest-
ar gefa góða vísbendingu um úrslit
kosninga. Af 159 skoðanakönnun-
um, sem gerðar voru í tengslum við
kosningar til öldungadeildar eða
ríkisstjóra í nóvember síðastliðn-
um, reyndust einungis 22 spá röng-
um sigurvegara. Fjórar af hverjum
fimm skoðanakönnunum voru svo
nálægt réttum úrslitum, að þau
voru innan skekkjumarka. ■
HÖFN Á HORNAFIRÐI
Maðurinn var fluttur á Höfn eftir að hafa
verið fluttur niður af Vatnajökli.
Mannfjöldi á tækjaflota
sækir ferðamann:
Bandaríkja-
maður sóttur
á Vatnajökul
LÖGREGLUMÁL Fjórar björgunar-
sveitir af Suðausturlandi og Suð-
urlandi voru kallaðar úr á mið-
nætti að kvöldi jóladags til að
sækja bandarískan ferðmann á
Vatnajökul.
Bandaríkjamaðurinn lagði á
Vatnajökul 18. desember. Hann
ætlaði að verja 30 dögum til að
ganga á gönguskíðum austur yfir
jökulinn og niður Lambatungna-
jökul. Vegna snjókomu hafði hann
hins vegar verið fastur í þrjá daga
í tjaldi sem hann hafði slegið upp
við Grímsfjöll.
Maðurinn var með gervi-
hnattasíma og hringdi eftir að-
stoð. Hann gaf upp staðsetningu
sína og óskaði þess að verða sótt-
ur í tjaldið. Hann var vel útbúinn
og ekkert amaði að honum.
Um klukkan hálf tvö um nótt-
ina lagði björgunarsveitin frá
Höfn í Hornafirði af stað á fjórum
jeppum og með fjóra vélsleða.
Hálftíma síðar lögðu björgunar-
sveitir frá Árborg, Hellu og
Hvolsvelli af stað með þrjá jeppa,
tvo snjóbíla og fjóra vélsleða. Alls
tóku 38 menn þátt í leitinni. Sveit-
ir voru sendar úr tveimur áttum í
öryggisskyni.
Vélsleðamenn frá Höfn fundu
manninn loks eftir talsverða leit á
tíunda tímanum í gær. Hann var
fluttur til niður á Hornafjörð. ■
MIKIÐ ÁLAG Á UMFERÐINA
14 manns létu lífið vegna mikillar snjó-
komu í Norðausturríkjum Bandaríkjanna.
Miklar snjókomur:
Jólastemn-
ing og
mannskaði
BANDARÍKIN, AP Það voru víða hvít
jól í Bandaríkjunum eftir mikla
snjókomu undanfarið. Snjókom-
unni fylgdi ekki bara jólastemn-
ing heldur líka miklar hremming-
ar á vegum í norðaustanverðum
Bandaríkjunum. Fjórtán dauðs-
föll dagana fyrir jól eru rakin til
slæmrar færðar og vonds veðurs.
Jafnfallinn snjór mældist allt
að hálfum metra sums staðar í
norðausturríkjum Bandaríkj-
anna. Í Albany í New York voru
hvít jól í fyrsta skipti í 17 ár. Bið-
in eftir hvítum jólum hafði þó
verið mun lengri í Oklahoma
borg, þar snjóaði um jólin í
fyrsta skipti í 27 ár. ■
Jólafriðurinn úti
í Skerjafirði:
Skotið á
hunda
LÖGREGLA Karlmaður á fertugsaldri
skaut á tvo lausa hunda í Skerjafirð-
inum í fyrrinótt.
Nágranni mannsins hafði verið
úti að ganga með hundana þegar
hann missti þá frá sér á Ægissíð-
unni. Hundarnir, sem munu vera
miklir vexti, tóku strikið út í Skerja-
fjörð.
Byssumaðurinn gerði skotárás-
ina við heimili sitt um klukkan fjög-
ur um nóttina. Þá sagðist hann ár-
angurslaust hafa reynt að reka
hundana á brott.
„Maðurinn taldi að hundarnir
hefðu étið kanínurnar sínar. Þeir
hefðu urrað að honum og honum
hafi fundist sér ógnað. Eins hafi
hann verið hræddur um börn sín í
húsinu og því skotið tveimur skot-
um á hundana,“ segir lögreglumað-
ur í Reykjavík.
Annar hundanna særðist á höfði
og var fluttur á dýraspítala. Hinn
hundurinn var færður á hundahótel
enda var eigandi hans. karlmaður á
fertugsaldri, sjálfur færður á lög-
reglustöð. Hann var tekinn höndum
þegar hann kom akandi á vettvang.
Lögreglu grunar að hann hafi ekið
undir áhrifum áfengis.
Engum drepnum kanínunum var
framvísað við lögreglu. Skotvopn
byssumannsins var gert upptækt.
Lögregla telur að málið eigi sér upp-
tök í fyrri erjum mannanna. ■
26 BÖRN MYRT Á ÁRINU Það sem
af er þessu ári hafa 26 börn og
unglingar undir 17 ára aldri verið
myrt í Detroit í Bandaríkjunum,
17 þeirra létust af völdum skot-
sára. Íbúar borgarinnar eru rétt
innan við eina milljón og dánar-
tíðni barna af völdum ofbeldis-
verka hærri þar en í öllum helstu
borgum landsins.
HARÐARI LÖG UM BARNAVÆNDI
Lögregluyfirvöld í Japan hafa
kallað eftir nýrri löggjöf til að
berjast gegn barnavændi. Lög-
reglan vill þyngri refsingar yfir
þeim sem reyna að kaupa sér
kynlífsþjónustu barna og ung-
linga undir lögaldri. Lögreglan
vill einnig að börnum og ungling-
um undir lögaldri verði bannað
að bjóða kynlífsþjónustu til sölu
að viðlögðum sektum. Kannanir
benda til þess að fimm prósent
unglingsstúlkna í Tókíó hafi boð-
ið kynlífsþjónustu til að fjár-
magna kaup á tískuklæðnaði.
LANDSPÍTALINN Í FOSSVOGI
Fólkið var flutt á Landspítalann eftir slysið.
Kona um þrítugt gekkst undir
aðgerð í gær.
ALFREÐ ÞORSTEINSSON
Ítrekar að Ingibjörg Sólrún beri ábyrgð á framtíð R-listans og talar um óvenjuleg hlýindi í
veðri aðspurður um samskipti sín við Björn Bjarnason.
AP PH
O
TO
/N
EW
S-G
A
ZETTE, JO
H
N
D
IXO
N
SÉRA JÓN HELGI ÞÓRARINSSON.
Skírði nokkur börn í fjölskyldumessu
á annan í jólum.
ERLENT
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T