Fréttablaðið - 27.12.2002, Qupperneq 4
4 27. desember 2002 FÖSTUDAGUR
LÖGREGLUFRÉTTIR
KJÖRKASSINN
Farðu inn á frett.is og segðu
þína skoðun
frétt.is
Borðarðu skötu á Þorláks-
messu?
Spurning dagsins í dag:
Kaupir þú flugelda fyrir áramótin?
Niðurstöður gærdagsins
á www.frett.is
54,1%
13,5%Stundum
32,4%
ENGIN
SKATA
Meirihluti
borðar aldrei
skötu á Þor-
láksmessu
Aldrei
Alltaf
Mæling hagsveiflu:
Botninum
ekki náð
EFNAHAGSMÁL Botni hagsveiflunn-
ar er ekki náð ef marka má sam-
antekt hagvísa sem greiningar-
deild Búnaðarbankans hefur tekið
saman í vísitölu. Vísitalan er sam-
sett úr nokkrum hagstærðum sem
endurspegla stöðu hagkerfisins
hverju sinni. Inn í vísitölunnar
eru settar; breytingar á almenn-
um innflutningi, nýskráning bif-
reiða, raunverð á íbúðarhúsnæði á
höfuðborgarsvæðinu og skráð at-
vinnuleysi.
Breytingar eru reiknaðar mán-
aðarlega á hverjum þætti fyrir sig
og fengin meðaltalsbreyting með
því að gefa öllum þáttunum jafnt
vægi. Samkvæmt þessari vísitölu
var botn síðustu hagsveiflu í des-
ember 1993. Eftir það fór vísital-
an hækkandi til október árið 2000.
Síðan þá hefur vísitalan lækkað
hratt. Ekki er séð fyrir endann á
þeirri þróun, því samkvæmt síð-
ustu tölum frá því í nóvember er
enn um lækkun að ræða. Botni
hagsveiflunnar virðist því ekki
enn vera náð. ■
Biðin eftir nýrum gæti
styst:
Ný nýru
ræktuð í
músum
LÆKNISFRÆÐI Vera má að fólk með
bilað nýra þurfi ekki að bíða eft-
ir hentugum nýrnagjafa þegar
fram líða stundir. Í staðinn gætu
læknar komið stofnfrumum fyr-
ir í líkamanum og úr þeim vaxi
nýtt nýra.
Vísindamönnum í Ísrael hef-
ur tekist að gera þetta. Þeir hafa
sett stofnfrumur úr mönnum í
bæði mýs og svín, svo úr varð
nýra sem starfaði fullkomlega
eðlilega í dýrunum.
Vísindamennirnir gera sér
vonir um að geta notað stofn-
frumur úr svínum til þess að
rækta nýru í mönnum. ■
EINAR KARL HARALDSSON
Mun að öllum líkum skipa 5. sætið á lista
Samfylkingar í Reykjavíkurkjördæmi suður.
Samfylkingin:
Einar Karl í
fimmta sæti
STJÓRNMÁL Einar Karl Haraldsson,
almannatengslamaður og stjórn-
arformaður Hjálparstofnunar
kirkjunnar, mun skipa fimmta
sætið á framboðslista Samfylk-
ingar í öðru Reykjavíkurkjör-
dæmanna á móti Ingibjörgu Sól-
rúnu Gísladóttur samkvæmt
heimildum blaðsins. Einar Karl
lenti í 9. sæti í prófkjöri Samfylk-
ingar.
Í 6. sæti á framboðslistum
flokksins í Reykjavík verða
tveir ungir frambjóðendur sem
ekki tóku þátt í prófkjörinu, það
eru þau Eiríkur Bergmann Ein-
arsson stjórnmálafræðingur í
Reykjavík norður og Kristrún
Heimisdóttir lögfræðingur í
Reykjavík suður. ■
Góðverk ríka mannsins:
Seðlar á
glugga
CHARLOTTE, NORÐUR-KARÓLÍNU, AP
Rúmlega fertugur bandarískur
innréttingaráðgjafi, Mike
Jeffcoat, ákvað að gera góðverk
og gefa fátækum 300 dollara. Það
samsvarar um það bil 25 þúsund
krónum. En hann langaði óskap-
lega mikið að vera frumlegur um
leið. Hann tók því upp á því að
festa 300 einsdollara seðla á
gluggann á skrifstofu sinni.
Peningarnir voru horfnir á
rúmlega hálftíma. Seðlarnir vöktu
óneitanlega athygli og drógu að
sér mikinn mannfjölda. Margir
tóku ekki neitt. Sumir tóku nokkra
dali fyrir kaffibolla, jólagjöf eða
strætómiða. ■
ÓMEIDD ÚR BÍLVELTU Tæplega
hálfþrítug kona slapp ómeidd
þegar hún velti litlum jeppa á
Eyrarbakkavegi í fyrrinótt.
Óhappið varð skammt vestan Ós-
eyrarbrúar. Mjög mikil hálka var
á veginum og talið er að konan
hafi misst stjórn á bíl sínum þess
vegna. Konan, sem er búsett í ná-
grenninu, fékk að fara heim eftir
að hafa verið flutt til skoðunar á
heilsugæslustöð.
Siglufjörður:
Jólahátíð
í hita
JÓL Tólf stiga hiti var á Siglufirði
á aðfangadag samkvæmt upplýs-
ingum lögreglunnar.
Lögreglan sagðist að vísu
styðjast við óopinberan tölvu-
hitamæli utan á húsi sparisjóðs-
ins. Engu að síður hafi verið
ljóst að hlýindin voru mikil og
meiri en áður hefur þekkst á
þessum degi.
Hlýindin héldu áfram á Siglu-
firði á jóladag þó aðeins hafi þá
verið úr þeim dregið. Um hádegi
í gær, annan í jólum, var hitastig
enn yfir frostmarki en komið
slydduveður. ■
Miðausturlönd:
Blóðug átök á annan í jólum
RAMALLAH, VESTURBAKKANUM, AP Sex
Palestínumenn féllu fyrir hendi
ísraelskra hermanna í fimm skær-
um í gær, annan í jólum. Fjórir
hinna látnu voru vopnaðir en einn
var óvopnaður framhaldsskóla-
nemi og sá sjötti nítján ára um-
ferðarlögreglumaður. Tuttugu
Palestínumenn og fimm ísraelskir
hermenn særðust í átökunum.
Fyrsti maðurinn féll þegar ísra-
elskir hermenn stöðvuðu bíl með
tvo Palestínumenn innanborðs og
hófu skothríð þegar annar þeirra
greip til vopna að sögn hernaðar-
yfirvalda. Palestínskur lögreglu-
maður féll fyrir byssukúlum her-
manna þegar þeir skutu að ung-
lingum sem höfðu kastað grjóti að
þeim.
Tveir forystumenn í herskáum
hreyfingum Palestínumanna féllu
þegar ísraelskir hermenn sóttu að
þeim. Í Nablus skutu hermenn
vopnaðan Palestínumann til bana
þegar til skotbardaga kom í mið-
bænum.
Sjötti maðurinn til að láta lífið
var átján ára piltur. Hann lést þeg-
ar hermenn svöruðu grjótkasti
með því að hefja skothríð og tutt-
ugu menn að auki særðust. Vitni
segja að pilturinn sem lést hafi
ekki tekið þátt í grjótkastinu og
ekki haldið á öðru en bókum sín-
um. ■
Jólin misjafnlega hátíðleg
Páfi hvatti til friðar í jólaboðskap sínum á sama tíma og íbúar Betlehem héldu jól sín í skugga
hernáms. Kúbverjar héldu jólin hátíðleg þó jólasveinninn væri hvergi nærri og Vilhjálmur prins
var faðmaður af konu sem braust fram hjá öryggisvörðum til að afhenda honum jólagjöf.
ERLENT, AP Jólahaldið var með marg-
víslegum hætti í heiminum. Víða
gerðu menn sér glaðan dag en ann-
ar staðar voru jólin haldin í skugga
átaka og eymdar.
Jóhannes Páll páfi annar bað trú-
að fólk, hvaða trú sem það játar, og
góðviljaða karlmenn og konur um
að byggja varanlegan frið með því
að útiloka mismunun og skort á um-
burðarlyndi. Páfi flutti jólaboðskap
sinn að venju frammi fyrir þétt
skipuðu Péturstorgi á jóladag. Þús-
undir manna voru samankomnir og
létu leiðindaveður ekki stöðva sig.
Það var fámennara í Betlehem.
Þar voru jólin haldin í skugga voða-
verka undanfarinna missera og her-
náms ísraelskra hersveita sem settu
drungalegan svip á jólahaldið. Lítið
var um jólaskreytingar í borginni
og takmarkaður fjöldi kristinna
Palestínumanna lagði leið sína í
messu í Fæðingarkirkjunni.
Sjötta árið í röð fengu Kúbverjar
frí á jólunum og gerðu margir sér
dagamun þó með hógværari hætti
væri en víða annars staðar. Lítið var
um gjafir og jólakort auk þess sem
jólasveinninn sást varla en margar
fjölskyldur gerðu vel við sig í mat
og sumar settu upp jólatré. Jólin
voru afnumin sem frídagur á Kúbu
á sjöunda áratugnum og það breytt-
ist ekki fyrr en 1997 þegar von var
á páfa í heimsókn.
Bandarískir herflugmenn héldu
áfram eftirlitsflugi á flugbanns-
svæðinu í Írak á jóladag. Á bæki-
stöðvum þeirra gerðu menn sér
glaðan dag með ógrynni af kalkún-
um, gjöfum að heiman og símtölum
til ættingja á heimaslóðum. Her-
mennirnir fengu ekki ættingja í
heimsókn en jólasveinninn leit við
sem og Joe Lieberman öldungar-
deildarþingmaður og fyrrum vara-
forsetaefni Al Gore.
Elísabet önnur Bretlandsdrottn-
ing rifjaði upp sorgina við að missa
móður sína og systur á árinu. Jóla-
hald hinnar eðalbornu fjölskyldu er
þó væntanlega eftirminnilegast fyr-
ir það að bandarísk kona vatt sér að
Vilhjálmi prinsi þegar hann var á
leið frá messu, faðmaði hann og af-
henti honum jólagjöf, án þess að ör-
yggisverðir fengju rönd við reist. ■
BOTNINN ÓFUNDINN
Lífleg verslun í desember er árviss. Hins
vegar lætur viðsnúningur í efnahagslífinu á
sér standa. Vísbendingar eru um að botn-
inum sé ekki enn náð.
JÓLASVEINNINN HEILSAR
HERMÖNNUM
Jólasveinninn heimsótti bandaríska land-
gönguliða í herstöð í Kúveit á aðfangadag.
FJÖLMENNI FRAMMI FYRIR VATÍKANINU
Þúsundir voru saman komnar á Péturstorgi til að hlýða á jólaboðskap Jóhannesar Páls
páfa annars. Páfi lagði áherslu á að koma á friði í Miðausturlöndum og koma í veg fyrir
stríð í Írak.
MIÐNÆTURMESSA Í NÍGERÍU
Lítil börn getur syfjað í messu. Þessi stúlka sótti miðnæturmessu í Lagos í
Nígeríu á jóladag.
ÍSRAELSKIR HERMENN Í NABLUS
Sex Palestínumenn féllu fyrir hendi
ísraelskra hermanna í gær