Fréttablaðið - 27.12.2002, Síða 13
13FÖSTUDAGUR 27. desember 2002
Ríkið greiðir um 740 milljónir í húsaleigubætur:
Bótaþegum fjölgar
um 370% á 7 árum
HÚSALEIGUBÆTUR Heildarfjöldi
leigjenda sem fá húsaleigubætur
hefur aukist um 370% á sjö árum.
Árið 1995 voru þeir 1.249 en á síð-
asta ári voru þeir 4.611.
Í ársskýrslu samráðsnefndar
um húsaleigubætur árið 2001
kemur fram að bótaþegum hafi
fjölgað um 9,8% miðað við árið
2000. Ætla má að 25 til 30% allra
leigjenda í félagslegum og al-
mennum íbúðum fái húsaleigu-
bætur. Bæturnar skiptast sem
næst til helminga milli almennra
og félagslegra leiguíbúða. Á síð-
asta ári bjuggu um 88% allra bóta-
þega við lægri heildartekjur en 2
milljónir króna.
Á síðasta ári voru gerðar þó
nokkrar breytingar á lögum á
sviði húsaleigubóta. Helstu breyt-
ingarnar voru að ekki er lengur
skylt að þinglýsa leigusamningi
vegna íbúðar í eigu sveitarfélaga.
Fatlaðir og öryrkjar sem búa á
sambýlum hafa öðlast rétt til
húsaleigubóta, sem og námsmenn
á framhalds- og háskólastigi sem
leigja á heimavist eða á náms-
görðum. ■
HÚSALEIGUBÆTUR
1995 TIL 2001
Ár Milljónir
1995 277,1
1996 391,4
1997 394,5
1998 508,8
1999 607
2000 666,9
2001 740,5
Milljónir króna á föstu
verðlagi í júní 2002.
FJÖLDI BÓTAÞEGA
1995 TIL 2001
Ár Fjöldi
1995 1.249
1996 2.414
1997 2.434
1998 2.744
1999 3.737
2000 4.198
2001 4.611
NEW YORK, AP Tímaritið Time hef-
ur valið þrjár konur menn árs-
ins í ár. Þær eiga það allar sam-
eiginlegt að hafa ljóstrað upp
um brot á árinu. Konurnar,
Colleen Rowley, starfsmaður
FBI, Cynthia Cooper, starfs-
maður WorldCom, og Sherron
Watkins, starfsmaður Enron,
tóku áhættu með því að greina
frá vanrækslu eða sviksamlegu
atferli innan vinnustaðar síns.
Time útnefnir þær menn ársins
fyrir að trúa að sannleikann
megi ekki strika út úr bókunum
og fyrir að grípa til ráðstafana
til að koma í veg fyrir slíkt.
Rowley skrifaði yfirboðara
sínum, þar sem hún gagnrýndi
alríkislögregluna fyrir að hafa
horft framhjá gögnum um yfir-
vofandi atburði 11. september.
Cooper upplýsti stjórn
WorldCom um bókhaldsbrot að
upphæð 3,8 milljónir banda-
ríkjadala. Það var upphafið að
einu stærsta gjaldþroti banda-
rískrar viðskiptasögu. Watkins
varaði stjórnarformann Enron
við að bókhaldsbrot innan fyrir-
tækisins gætu leitt til hruns
fyrirtækisins.
Times segir þær dæmi um
fólk sem sinnir starfi sínu af
trúmennsku með hugrekki sem
allir voni að þeir hafi en muni
kannski aldrei reyna á. ■
UPPLJÓSTRARAR
Tímaritið Time hefur valið þrjár hugrakkar
konur menn ársins í ár. Þær sýndu sann-
leika og heiðarleika trúnað og stefndu eig-
in hagsmunum í voða.
Time heiðrar uppljóstrara:
Þrjár konur menn ársins
Kanaríeyjar fyrir þroskaheft fólk
Eigum örfá sæti laus í ferðir okkar til
Kanaríeyja 18. janúar og 15. febrúar.
Upplýsingar gefur Sveinn í síma
564 4091 eða 893 4170.
ÁRAMÓTAHEIT
Komdu fjármálunum í lag!
Er óreiða í þínum fjármálum? 1. Skref – Fjárhagsgreining
Er búið að semja umfram greiðslugetu? 2. Skref – Samningagerð
Vertu frjáls! 3. Skref – Greiðsluþjónusta
3 Skref ehf. -Fjármálaráðgjöf
Lágmúla 9, 108 Reykjavík
Sími 533-3007
Netfang: 3skref@3skref.is
SJÁVARÚTVEGUR „Ég hef orðið var
við mikil viðskipti með kvóta fyr-
ir áramótin síðustu. Sömu útgerð-
ir hafa síðan selt kvótann fljótlega
eftir áramót án þess að veiða svo
mikið sem gramm,“ segir Jón
Arason, útgerðar-
maður í Þorláks-
höfn, um það sem
hann telur vera
kvótabrask til að
komast hjá skött-
um.
Í einu dæminu
hafði útgerð leigt
til sín rúm 900
tonn af þorski und-
ir árslok 2001 auk annarra teg-
unda, alls um 1.100 tonn. Sama út-
gerð leigði frá sér tæp 900 tonn af
þorski á tímabilinu janúar til apr-
íl í ár. Ávinningurinn hefur þá
verið bæði skattalegur og hagnað-
ur af kvótasölunni.
„Útgerðin veiddi ekkert upp í
þennan kvóta en leigði hann frá
sér aftur á nýju ári. Ávinningur-
inn er væntanlega sá að sú upp-
hæð sem fer í kvótakaupin færist
sem útgjöld. Þar með þurfti ekki
að greiða tekjuskatt af þeirri upp-
hæð. Árið 2001 var skattprósent-
an hjá fyrirtækjum 30 prósentu-
stig en lækkaði í 18 prósent í ár.
Ávinningurinn er því augljós;
hagnaður var af kvótaviðskiptun-
um og útgerðin lækkar skatta
sína,“ segir Jón.
Þann 31. desember 2001 voru
samkvæmt bókum Fiskistofu 1.020
tonn af þorski færð á milli útgerða
auk annarra tegunda. Verðmæti
þess kvóta var 158 krónur á hvert
kíló þannig að heildarviðskiptin
námu rúmum 160 milljónum
króna. Að því gefnu að allur þessi
kvóti hafi verið færður sem út-
gjöld er reiknaður skattur af við-
skiptunum 48 milljónir króna ef
miðað er við skattprósentuna árið
2001. Miðað við 18 prósenta skatt
og að því gefnu að allir hafi stund-
að sama leikinn þá greiða fyrir-
tækin samkvæmt 18 prósenta
skattinum tæpar 29 milljónir
króna í skatt. Þar með verður rík-
issjóður af 19 milljóna króna tekj-
um þennan eina dag.
„Þessi viðskipti verða til þess
að skekkja alla verðmyndun og
kvótaverð hækkar upp úr öllu
valdi. Þannig var verð á þorsk-
kvóta um haustið árið 2001 um
120 krónur en í desember hækk-
aði það í 165 krónur. Áhrifin af
braskinu eru því þau að við sem
gerum út á leigukvóta verðum að
greiða okurverð,“ segir Jón.
rt@frettabladid.is
JÓN ARASON
Dæmi um að útgerðir leigi grimmt til sín
kvóta á síðustu mánuðum ársins.
Kvótabrask til
skattalækkunar
Jón Arason útgerðarmaður veitti eftirtekt miklum kvótaviðskiptum í
árslok í fyrra. Útgerðir leigðu til sín fyrir áramót en frá sér á nýju ári
þegar skattaprósentan hafði lækkað úr 30 prósentum í 18.
„Ávinningurinn
er væntanlega
sá að sú upp-
hæð sem fer í
kvótakaupin
færist sem út-
gjöld.“