Fréttablaðið - 27.12.2002, Qupperneq 14
14 27. desember 2002 FÖSTUDAGURKÖRFUBOLTI
JORDAN
Michael Jordan, leikmaður Washington
Wizards, tekur körfuskot yfir Bruce Bowen,
leikmann San Antonio Spurs, í leik liðanna
í NBA-deildinni í körfubolta á dögunum.
Spurs vann leikinn 92-81. Jordan, sem hef-
ur átt góða leiki upp á síðkastið, skoraði
16 stig í leiknum.
ÞÝSKI BOLTINN
Robson Ponte, leikmaður Wolfsburg (til vin-
stri), berst um boltann við Aliksandr Hleb, leik-
mann Stuttgart í leik liðanna fyrir skömmu.
Karl-Heinz Rummenigge telur að launalækk-
anir leikmanna séu ósanngjarnar.
Karl-Heinz Rummenigge:
Á móti
launalækk-
unum
FÓTBOLTI Karl-Heinz Rummenigge,
fyrrum landsliðsmaður Þýska-
lands í knattspyrnu og stjórnar-
maður hjá Bayern München, segir
að mörg félög í Evrópu geti sjálf-
um sér um kennt fyrir það skulda-
fen sem þau hafa komið sér í.
Hann er einnig á móti því að fé-
lög dragi úr launakostnaði leik-
manna sinna til að draga úr skuld-
um sínum. „Launalækkanir eru
ósanngjarnar,“ sagði Rummenig-
ge. „Ég tel að leikmannasamning-
ur sé samningur sem ég læt leik-
manninn samþykkja ef ég veit að
ég hef efni á því. Ég er á móti
þeim kvörtunum sem eru uppi í
dag, bæði í Bundesligunni og í al-
þjóðlegum fótbolta.“ ■
ÍÞRÓTTIR Í DAG
18.30 Sýn
Trans World Sport (Íþróttir um allan
heim)
20.00 Sýn
Gillette-sportpakkinn
Jimmy Floyd Hasselbaink:
Áfram hjá Chelsea
FÓTBOLTI Jimmy Floyd Hassel-
baink, framherji hjá Chelsea,
segist ekki ætla að fara frá fé-
laginu þegar opnað verður fyrir
félagaskipti á Englandi í næsta
mánuði.
„Ég ætla ekki að yfirgefa
Chelsea núna. Mér líður vel
hérna og vil vinna meistaratitil-
inn með félaginu. Við höfum
aldrei verið í betri stöðu og ég
get fullvissað stuðningsmenn
liðsins um að ekkert gæti fengið
mig til að skipta um skoðun,“
sagði Hasselbaink.
Hollendingurinn snjalli hefur
verið orðaður við mörg félög
undanfarið, þar á meðal spæns-
ka félagið Barcelona. Hassel-
baink lék áður á Spáni, með
Atletico Madrid.
Eftir sigurleik Chelsea gegn
Aston Villa á dögunum sagði
Hasselbaink að Claudio Ranieri,
knattspyrnustjóra Chelsea, hafi
ekki líkað umræðan varðandi
Barcelona í sumar. „Ranieri var
ekki ánægður með að Barcelona
hefði áhuga á mér og að ég hefði
áhuga á Barcelona. Þegar honum
líkar ekki við þig eru hlutirnir
búnir hjá þér. Hann er afar stíf-
ur og kaldur,“ sagði Hassel-
baink. ■
Kevin Keegan:
Harkalegt að
reka Hoddle
FÓTBOLTI Kevin Keegan, knatt-
spyrnustjóri Manchester City,
telur að það hafi verið harkaleg
ákvörðun að reka Glenn Hoddle,
núverandi stjóra Tottenham, úr
starfi sem þjálfara enska lands-
liðsins á sínum tíma.
Hoddle var rekinn á meðan
undankeppni Evrópukeppninnar
árið 2000 stóð yfir fyrir ummæli
sín um fatlað fólk. Keegan tók
við landsliðinu af Hoddle en
hætti aðeins 18 mánuðum síðar
eftir tap gegn Þýskalandi á
Wembley.
„Glenn var óheppinn að missa
landsliðsþjálfarastöðuna. Þrátt
fyrir að ég skilji hvers vegna
ákvörðunin var tekin þá var hún
harkaleg vegna þess hversu lið-
inu gekk vel á knattspyrnuvell-
inum,“ sagði Keegan. „Hann hef-
ur staðið sig afar vel síðan hann
tók við Spurs. Við beitum svip-
uðum aðferðum og viljum að lið-
in okkar spili góðan fótbolta. Við
viljum vinna en við viljum líka
gera það með stæl.“ ■
Ekki dauður úr öllum æðum
Enski miðvallarleikmaðurinn Paul Gascoigne hefur lýst yfir áhuga á að ganga til liðs við Leeds
United og hjálpa Terry Venables og lærisveinum í baráttunni í úrvalsdeildinni. Gazzi, eins og
hann er gjarnan kallaður, hefur ekki leikið sem atvinnumaður í rúmt ár.
FÓTBOLTI Paul Gascoigne, sem er
35 ára, hóf feril sinn hjá
Newcastle og lék sinn fyrsta leik
fyrir liðið árið 1985 gegn Q.P.R.
Hann lék 99 leiki fyrir Newcastle
á árunum 1985-1988 og skoraði 25
mörk. Frammistaða hans vakti
mikla athygli og varð til þess að
Terry Venables keypti hann til
Tottenham fyrir 2 milljónir
punda. Sama ár kom hann inn á
sem varamaður í fyrsta landsleik
sínum.
Gazzi varð lykilleikmaður í
enska landsliðinu á heimsmeist-
aramótinu á Ítalíu árið 1990. Hann
þótti yfirburðamaður á vellinum
og stjórnaði miðjunni líkt og her-
foringi. Þá féll England úr keppni
í undanúrslitum eftir vítaspyrnu-
keppni við Þjóðverja.
Þegar heim var komið sýndi
Gazzi hvað í honum bjó og átti
hvern stórleikinn á fætur öðrum.
Hann kom Tottenham í úrslit
ensku bikarkeppninnar en það
varð afdrifaríkur leikur fyrir
stórstjörnuna. Hann braut illa á
Gary Parker, leikmanni Notting-
ham Forrest, en hlaut um leið
slæm hnémeiðsli sjálfur og var
fluttur í skyndi á sjúkrahús. Hann
gekkst undir þrjár aðgerðir og
þegar hann loks jafnaði sig, 16
mánuðum seinna, gekk hann til
liðs við Lazio á Ítalíu.
Gazza gekk ekki vel á Ítalíu,
var ýmist meiddur eða á forsíðum
dagblaða fyrir slæma hegðun inn-
an vallar sem utan. Árið 1995 fór
svo að hann var seldur til Glasgow
Rangers og þá birti til í lífi hans.
Hann var aftur valinn í landsliðið
og fór að sýna gamalkunna takta.
Eftir Evrópumótið árið 1996
fór enn að síga á ógæfuhliðina.
Gazzi fékk hvað eftir annað að
líta rauða spjaldið og var djúpt
sokkinn í drykkju. Árið 1998 voru
forráðamenn Rangers komnir
með nóg og seldu hann til Midd-
lesbrough. Gazzi náði sér ekki á
strik þar og var seldur til Ev-
erton fyrir tímabilið 2000. Þar
náði hann heldur ekki að sýna sitt
rétta andlit og skoraði aðeins eitt
mark. Á miðju tímabili 2001 gekk
hann til liðs við 1. deildar liðið
Burnley. Þar gekk hvorki né rak
hjá honum og nú hefur hann ver-
ið samningslaus í rúmt ár. Á þeim
tíma hefur hann reynt fyrir sér
hjá hinum ýmsu liðum víða um
heim, meðal annars í Bandaríkj-
unum og Nýja-Sjálandi.
Gazzi segist þó ekki vera
dauður úr öllum æðum og vill
leika fyrir eitt félag enn áður en
hann leggur skóna á hilluna.
„Ég vil gera allt sem í mínu
valdi stendur til að hjálpa Terry
Venables,“ sagði Gascoigne í við-
tali við breska fjölmiðla í vik-
unni. „Hann á eftir að snúa spil-
unum við í byrjun janúar og þá
gæti ég verið í leikmannahópn-
um. Ég myndi gera allt fyrir
hann. Hann hefur verið mér sem
faðir.“
kristjan@frettabladid.is
ZIEGE
Christian Ziege, Þjóðverjinn í liði Totten-
ham, fagnar marki sínu gegn Arsenal.
Glenn Hoddle hefur verið að gera góða
hluti með lið Tottenham undanfarið.
PAUL GASCOIGNE
Hóf ferilinn hjá Newcastle United en hefur komið víða við á ferlinum, svo sem Tottenham, Lazio, Glasgow Rangers, Middlesbrough,
Everton og Burnley.
HASSELBAINK
Jimmy Floyd Hasselbaink segist vera ánægður hjá Chelsea og vill vinna Englandsmeistara-
titilinn með félaginu.
Handmáluð, munnblásin glös
www.konunglegt.is
s:561 3478 og 891 7657