Fréttablaðið - 27.12.2002, Page 20
LEIKHÚS
20.00 Með fullri reisn er sýnt á Stóra
sviði Þjóðleikhússins.
SKEMMTANIR
Óskar Einarsson trúbador spilar á Ara í
Ögri.
Sóldögg spilar á Gauki á Stöng.
Í svörtum fötum spilar á Players, Kópa-
vogi.
SÝNINGAR
Birgir Rafn Friðriksson heldur sýning-
una Án samhengis - allt að klámi í
Café Presto Hlíðasmára 15, Kópavogi.
Birgir sýnir 34 þurrpastelmyndir unnar á
árinu 200. Sýningin stendur út janúar
2003 og er opin á opnunartíma Café
Presto, 10-23 virka daga og 12-18 um
helgar.
Ingvar Þorvaldsson heldur sýningu á
olíumálverkum á Kaffi Mílanó, Faxafeni
11. Sýningin stendur út desember.
Listakonan Vera Sörensen heldur sýn-
inguna „Töfrandi landslag“ í Gallerý Veru
að Laugavegi 100. Sýningin er opin frá
11 til 18 og stendur út desember.
Sýning Kristjáns Jónssonar myndlistar-
manns stendur yfir í galleríi Sal á Hverf-
isgötu 39. Þar sýnir Kristján, sem nam
grafík og málaralist í Barcelona, um tutt-
ugu málverk sem ýmist eru unnin með
blandaðri tækni eða olíulitum. Sýningin
er opin daglega frá kl. 17 til 19,
Ingólfur Júlíusson ljósmyndari stendur
fyrir sýningunni Grænland - fjarri,
svo nærri í Reykjavíkurakademí-
unni, 4. hæð, Sýningin er opin
virka daga frá 9-17 og stendur til
31. janúar.
Sýning á útsaumuðum frummyndum
Elsu E. Guðjónsson úr bók hennar
Jólasveinarnir 13 stendur yfir í Bóka-
safni Kópavogs. Sýningin er opin á opn-
unartíma safnsins og lýkur 6. janúar.
Magnús Guðjónsson og Gunnar Geir
sýna í húsi Gráa kattarins, Hafnargötu
18 í Keflavík. Magnús sýnir verk sem
unnin eru í grjót og smíðajárn. Gunnar
Geir sýnir málverk, teikningar og lág-
myndir frá ýmsum tímabilum. Sýningin
stendur út desember og verður opin frá
kl. 14 til 18 alla daga nema sunnudaga.
Guðjón Ketilsson sýnir á myndvegg
skartgripaverslunarinnar Mariellu á
Skólavörðustíg 12. Sýningin stendur til
5. janúar.
Í hers höndum er yfirskrift á sýningu
sem stendur yfir í Borgarskjalasafni
Reykjavíkur, í Grófarhúsi, Tryggvagötu 15,
6. hæð. Sýningin er opin alla daga
klukkan 12-17 og stendur til 2. febrúar.
Hrafnkell Birgisson hönnuður heldur
sýningu á verkum sínum í Kaffitári,
Bankastræti 8. Sýningin er opin frá 7.30
til 18.00 og stendur til 10. janúar.
Sýning á málverkum Aðalheiðar Val-
geirsdóttur stendur yfir í Hallgríms-
kirkju í Reykjavík. Á sýningunni eru mál-
verk unnin á þessu ári sérstaklega fyrir
sýninguna í kirkjunni. Viðfangsefnið er
Lífið, tíminn og eilífðin. Sýningin í Hall-
grímskirkju er haldin í boði Listvinafé-
lags Hallgrímskirkju og stendur til loka
febrúarmánaðar.
Í Hafnarborg stendur yfir sýningin
“Sambönd Íslands“, alþjóðleg sýning
með þátttöku erlendra listamanna sem
hafa heimsótt Ísland og íslenskra lista-
manna búsettra erlendis. Sýningin
stendur til 22. febrúar.
Lína Rut Wilberg sýnir olíumálverk á
Café Presto, Hlíðarsmára 15, Kópavogi.
Opið 10-23 virka daga og 12-18 um
helgar.
Sýningin Þetta vilja börnin sjá er haldin
í Menningarmiðstöðinni Gerðubergi.
Sýndar verða myndskreytingar úr nýút-
komnum barnabókum. Sýningunni lýkur
6. janúar 2003.
Hildur Margrétardóttir myndlistarkona
sýnir nokkur óhlutbundin málverk á
Mokka-kaffi. Sýningin stendur til 15. jan-
úar.
Sýningin Milli goðsagnar og veruleika
er í Listasafni Reykjavíkur. Sýningin
kemur frá Ríkislistasafni Jórdaníu í
Amman og er ætlað að varpa ljósi á
heim araba.
Sýning á nokkrum verkum Guðmundar
Hannessonar ljósmyndara stendur yfir
í Gallerí Fold. Sýningin nefnist Reykja-
víkurminningar en myndirnar tók Guð-
mundur um miðja síðustu öld í Reykja-
vík.
Inga Svala Þórsdóttir sýnir Borg í Lista-
safni Reykjavíkur. Inga Svala fjallar um
og endurvekur draumsýnina um hið full-
komna samfélag. Hún leggur fram hug-
mynd að milljón manna borgarskipulagi
í Borgarfirði og á norðanverðu Snæfells-
nesi.
20 27. desember 2002 FÖSTUDAGUR
FÖSTUDAGUR
27. DESEMBER
hvað?
hvar?
hvenær?
Þjóðleikhúsið:
Striplast á Stóra sviðinu
LEIKHÚS Þjóðleikhúsið frumsýndi
söngleikinn Með fullri reisn á
Stóra sviðinu á öðrum degi jóla.
Söngleikurinn byggir á sam-
nefndri breskri kvikmynd frá
árinu 1997. Handrit kvikmynd-
arinnar skrifaði Simon Beaufoy
og leikstjóri var Peter Cattaneo.
Kvikmyndin varð geysivinsæl
víða um heim og setti aðsóknar-
met í Bretlandi.
Kvikmyndin fjallar um
nokkra stálsmiði í Sheffield í
Bretlandi sem hafa misst vinn-
una og grípa til þess örþrifaráðs
að fækka fötum til að vinna sér
inn peninga. Þegar ráðist var í
að gera söngleik eftir kvikmynd-
inni voru gerðar ýmsar breyt-
ingar á verkinu, þó svo að grunn-
þættir þess væru þeir sömu.
Ráðinn var nýr handritshöfund-
ur, hið þekkta leikskáld Terrence
McNally. Persónum var bætt
við, kvenhlutverkin gerð veiga-
meiri og atburðarásin var flutt
frá Bretlandi til Buffalo í Banda-
ríkjunum, til að færa hana nær
væntanlegum áhorfendum.
Í sýningu Þjóðleikhússins hef-
ur söngleikurinn verið staðfærður
og atburðarásin gerist í íslensku
þorpi úti á landsbyggðinni. Skipa-
smíðastöðinni í bænum hefur ver-
ið lokað og stór hópur karlmanna
stendur uppi atvinnulaus. Þeirra á
meðal er Gunni sem er fráskilinn
en á tólf ára son. Ef honum tekst
ekki að afla fjár til að borga með-
lagið með syni sínum verður hon-
um meinað að umgangast hann.
Rúnar Freyr Gíslason leikur
Gunna en með hlutverk félaga
hans fara Ólafur Darri Ólafsson,
Baldur Trausti Hreinsson, Atli
Rafn Sigurðarson, Kjartan Guð-
jónsson og Arnar Jónsson. ■
MEÐ FULLRI REISN
Í sýningu Þjóðleikhússins hefur söngleikurinn verið staðfærður og atburðarásin gerist í íslensku þorpi úti á landsbyggðinni. Skipa-
smíðastöðinni í bænum hefur verið lokað og stór hópur karlmanna stendur uppi atvinnulaus.
HEAVEN SHALL BURN
Þó svo að nafnið gefi það til kynna segir Birkir nokkuð viss um að það sé ekki
meint sem guðlast. „Miðað við texta sveitarinnar myndi ég ekki segja að þetta
þýddi að kristinlegur himinn brenni. Þeir eru mun frekar að meina að himinn
muni brenna vegna ágangs mannanna á náttúruna. Það fer allt í vaskinn ef við
förum ekki að athuga okkar gang.“
Harðkjarnarokk í Tjarnarbíói:
Heaven Shall
Burn snýr aftur
TÓNLEIKAR Þýska harðkjarna-
sveitin Heaven Shall Burn er
komin aftur til landsins og held-
ur tónleika í kvöld í Tjarnarbíó.
„Það var fáránlega skemmtileg
síðast og geðveik mæting,“ seg-
ir Birkir Viðarsson, söngvari I
Adapt, um tónleika Heaven
Shall Burn í fyrra. „Þeir voru
hrifnir af því að hanga hérna og
eru því komnir aftur og ætla að
vera hér lengur.“
Það er svolítið kaldhæðnis-
legt að á sama tíma og vef-
svæðið dordingull.com heldur
menningarstarfssemi sinni
áfram liggur vefsvæðið niðri.
„Það var misskilningur hjá
þeim sem vistaði síðuna. Þeir
héldu því fram að það hefði
ekki verið borgað í einhvern
tíma og tóku hana niður. Um-
sjónarmaðurinn var búinn að
láta þá vita að peningurinn
myndi berast eftir tvo daga en
þeir biðu ekki og tóku hana al-
veg niður. Þarna eru næstum
því fjögurra ára heimildir um
tónlistarmenningu á Íslandi
farnar í vaskinn.“ Birkir segir
að skaðinn sé mikill. Til dæmis
hafi allar hljómsveitasíðurnar
verið þurrkaðar út.
Verið er að vinna að endur-
bótum og býst Birkir við því að
svæðið opni aftur snemma á
næsta ári.
Ásamt Heaven Shall Burn og
I Adapt koma fram Spilldog,
Andlát og Vígspá eftir langt
spilahlé.
Tónleikarnir fara sem áður
segir fram í Tjarnarbíói og
verða fremstu bekkirnir skrúf-
aðir upp til þess að fólk geti
slammað. ■
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/I
N
G
O