Fréttablaðið - 27.12.2002, Blaðsíða 21
FÖSTUDAGUR 27. desember 2002
LEIRKONUNGAR
Leirstyttur þessar, sem sýna Victor
Emmanuel, son síðasta konungs Ítalíu, og
son hans Filiberto, eru nú til sölu í Napólí.
Þær eru verk listamannsins Guiseppe
Ferrigno, sem gerði þær í tilefni heimsókn-
ar Emmanuels til Ítalíu eftir hálfrar aldar
útlegð. Konungsfjölskyldan var gerð útlæg
vegna stuðnings síns við einræðisherrann
Benito Mussolini.
SHAKIRA
Er nýkomin úr tónleikaferðalagi í Evrópu
og ætlar að eyða jólunum með fjölskyldu
sinni í Barranquilla.
Söngkonan Shakira:
Gaf 10 þús-
und skópör
FÓLK Kólumbíska söngdívan
Shakira kom færandi hendi þegar
hún heimsótti heimabæ sinn
Barranquilla á fimmtudag. Hún
gaf tíu þúsund pör af íþróttaskóm
til fátækra barna, söng fyrir þau
nokkur lög og hvatti þau til að
iðka íþróttir.
Shakira sagði við komuna í
heimabæinn að hún hefði munað
eftir skólausum börnum sem léku
sér í knattspyrnu þegar hún ólst
þar upp. Því hafi hún ákveðið að
gleðja litlu hjörtun.
Shakira er afar dáð í Suður-
Ameríku og í október þegar
fyrstu MTV Latin verðlaunin voru
veitt fékk hún fimm stykki. ■
GEORGE CLOONEY
Yppir öxlum yfir sannleiksgildi söguþráðar-
ins í nýjustu mynd sinni.
George Clooney:
Lof fyrir
leikstjórn
KVIKMYNDIR Leikarinn og sjarmör-
inn George Clooney hefur hlotið
lof fyrir frumraun sína sem leik-
stjóri. Myndin heitir Confessions
of a Dangerous Mind og er hún
framleidd af fyrirtæki sem Cloon-
ey stofnaði ásamt Steven Soder-
bergh. Myndin er byggð á ævi-
sögu Chuck Barris. Hann var
þekktur sjónvarpsþáttastjórnandi
í Bandaríkjunum en í ævisögu
sinni hélt hann því fram að hann
hefði einnig verið á mála hjá
bandarísku leyniþjónustunni CIA.
Þar sagðist hann m.a. hafa ráðið
yfir 30 manns af dögum fyrir CIA.
Sannanir fyrir þessum fullyrðing-
um hafa verið fáar og efast marg-
ir um sannleiksgildi þeirra. Cloon-
ey, sem birtist í litlu hlutverki
sem njósnari hjá CIA, lætur sig
það litlu skipta hvort sagan er
sönn eður ei. ■