Fréttablaðið - 04.02.2020, Page 14
Sandra ítrekar að hún hafi verið að taka þátt í Þrekmótaröðinni, ekki keppa. „Við
erum bara ekki í þeirri deild. Við
vorum bara að ögra sjálfum okkur
og hafa gaman,“ segir Sandra sem
dró þrjár stelpur með sér í keppn
ina. „Við vorum ekki með metnað
fyrir neinu sæti en okkur fannst
þetta svo skemmtilegt að það er
aldrei að vita nema við gerum
þetta aftur.“
Sandra æfði fimleika og fótbolta
sem barn en þegar hún varð ungl
ingur urðu aðrir hlutir mikilvægari
eins og er svo algengt. „Ég byrjaði
ekki að æfa að ráði aftur fyrr en ég
byrjaði í Bootcamp árið 2012. Ég
rambaði inn á hlaupanámskeið þar
og hef ekki hætt hjá þeim síðan.“
Fyrst þegar Sandra var að
byrja að æfa var hún frekar
stressuð því Bootcamp hafði orð á
sér fyrir að vera „rosalega hard
core“ eins og hún orðar það. „Ég er
bara mjög venjuleg manneskja, ég
fer ekki í ræktina sex sinnum í viku
eða er með geggjaðan bakgrunn í
íþróttum en í Bootcamp var rosa
lega vel tekið á móti mér. Allir eru
bara að gera sitt besta. Vissulega er
mikið af ofurfólki að æfa þar en svo
eru líka bara venjulegar mann
eskjur eins og ég.“
Æfingarnar snúast að miklu
leyti um að æfa með líkamsþyngd
sína en einnig er mikið um hlaup
og þrekæfingar. „Við gerum líka
æfingar sem reyna á hugarfarið, að
gefast ekki upp og finna kraftinn
í að klára. Þú þarft ekki að vera
fyrst eða best. Heldur bara klára
það sem sett er fyrir. Ef mér tekst
það þá líður mér best, ég verð svo
ánægð með mig. Ég hugsa kannski
fyrst að ég eigi aldrei eftir að geta
þetta. En svo fær maður svo mik
inn stuðning og hvatningu. Allir
hvetja alla, sama hvort þú ert fyrst
eða síðust, það er bara stemningin
þarna. Ég get komið inn og verið
ég sjálf og æft á mínum eigin hraða
og ég get oft gert miklu meira en
ég held fyrst. Það er mjög gott fyrir
sjálfstraustið,“ segir Sandra.
Gott andlega og líkamlega
Í upphafi byrjaði Sandra að æfa
með það í huga að léttast og komast
í gott form. „En ég er alveg búin að
bakka út úr því. Mér finnst bara
gaman að fara á æfingu. Það gerir
mér ótrúlega gott bæði andlega og
líkamlega. Ég vinn á skrifstofu þar
sem ég sit mikið svo það að koma
blóðinu af stað með hreyfingu
veitir mér vellíðan. Það er miklu
mikilvægara heldur en einhver
kílóatala eða eitthvað ákveðið útlit
sem ég var fyrst að sækjast eftir.“
Undanfarið hefur Sandra verið
að æfa lyftingar hjá Bootcamp.
„Ég blanda svolítið saman lyfting
unum og venjulegu Bootcamp
æfingunum. Ég elska að lyfta og
er farin að keppast við hve miklu
ég næ í þyngdum. Kílóin snúast
núna um kílóin á stönginni en ekki
kílóin á líkamanum mínum. Ég
náði því markmiði í desember að
taka 100 kíló í réttstöðulyftu sem
ég var búin að stefna að lengi,“ segir
Sandra stolt.
Sandra segir að hreyfingin sé
orðin lífsstíll hjá henni og hún
setur það í forgang að komast á
æfingu. „Núna, ef ég fer í frí, þá tek
ég æfingu, ég reyni að æfa alltaf
þrisvar í viku, tvisvar er algjört
lágmark en ef ég kemst fjórum
sinnum þá er það bara bónus. Það
er betra að gera eitthvað en ekkert
og ég hef ekkert endilega tíma til
þess að vera alltaf í ræktinni. Vikan
er svo ekki lengur ónýt hjá mér þó
ég missi úr æfingu, ég mæti bara
næst. Lykilatriðið er að hætta ekki
þó maður komist stundum ekki í
að hreyfa sig.“
Sandra náði nýlega að lyfta 100
kílóum í réttstöðulyftu sem hafði
lengi verið markmið hjá henni.Sandra vildi ögra sjálfri sér og skráði sig til þátttöku í Þrekmótaröðinni ásamt þremur vinkonum sínum.
Sandra Guðrún
Guðmundsdóttir
sandragudrun@frettabladid.is
Framhald af forsíðu ➛
Að koma blóðinu
af stað með hreyf-
ingu veitir mér vellíðan.
Það er miklu mikilvæg-
ara heldur en einhver
kílóatala.
Sólhattur fyrir ónæmiskerfið
Sólhattur er eitthvert algengasta bætiefni gegn kvefi og flensu.
Þeir sem taka inn sólhatt eru oft á tíðum fljótari að ná sér af pestum
og fá jafnvel vægari einkenni. Sólhattur getur t.d. hjálpað gegn;
• Hálsbólgu
• Eyrnabólgu
• Ennisholubólgum
Fæst í apótekum, Heilsuhúsinu, Fjarðarkaup og Heilsuhillum Nettó
Sólhattur er ein mest notaða
jurtin á vesturlöndum til að
efla ónæmiskerfið, enda
lang mest rannsökuð.
2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 4 . F E B R ÚA R 2 0 2 0 Þ R I ÐJ U DAG U R