Fréttablaðið - 04.02.2020, Page 38
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@frettabladid.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050:
Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson, hlynur@frettabladid.is , Sigfús Örn Einarsson sigfus@frettabladid.is, Örn Geirsson orn.geirsson@frettabladid.is FÓLK/
SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5077: Atli Bergmann atli@frettabladid.is, Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@
frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is. FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar
Helgason hrannar@frettabladid.is, Viðar Ingi Pétursson vip@frettabladid.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Guðrún Inga Grétarsdóttir gudruninga@frettabladid.is
ÉG Á SVO AÐ KYNNA
EITTHVAÐ AF ÞESSU
LÍKA, ÚTSKÝRA AÐEINS
SPILVERKIÐ, STUÐMENN,
HREKKJUSVÍNIN OG SVO
VONANDI SJÁLFAN MIG.
ÉG SAMDI LAGIÐ EFTIR
PÖNTUN MEÐ EIGIN-
LEGA ÞEIRRI EINU KVÖÐ AÐ ÞAÐ
YRÐI AÐ VERA VIÐ KVÆÐI EFTIR
HANNES HAFSTEIN.
– MEST LESNA DAGBLAÐ LANDSINS
*Prentmæling Gallup, 12 - 80 ára, okt. - des. 2019.
Mannnöldatölur Hagstofu Íslands 2019
Auglýsingaefnið lendir á
eldhúsborðinu þegar blaðið er
opnað!
Íslendinga lesa Fréttablaðið
daglega að meðaltali.*
Kannaðu dreiileiðir og verð í
síma 550 5050
eða sendu tölvupóst á
orn@frettabladid.is.
Útvegum einnig hagstæð
verð í prentun.
93.000
HAFÐU FJÖLPÓSTINN
ÞINN Í FRÉTTABLAÐINU
Þótt Valgeir Guðjónsson hafi, meðal annars sem hrekkjusvín og stuð-maður mikill, komið víða við á tónlistarferli sem teygir sig yfir svo
gott sem hálfa öld er fólk sjálfsagt
almennt líklegra til þess að tengja
hann við popplög í g-dúr frekar en
kórsöng.
Lög hans hafa þó í seinni tíð
hljómað æ oftar hjá kórum víða um
land og nokkur þeirra orðið fastir
liðir hjá kirkjukórum og Valgeir
segir aðspurður að líklega sé orðið
óhætt að tala um hann sem stuð-
sálmaskáld.
„Ég er búinn að semja dálítið af
lögum sem hafa hentað vel fyrir
kóra að syngja og það er mjög
skemmtilegt,“ segir Valgeir og rekur
þessa þróun til þess að hann hafi
verið að „afpoppa“ sig með því að
„leita meira í mínar músíkrætur,“
sem hann segir miklu frekar hafa
komið upp úr einhvers konar þjóð-
lagatónlist.
„En ég fór svo strax í bítlið í gaggó
og svo vatt það nú upp á sig,“ segir
Valgeir þegar hann rifjar upp „að
það var stofnuð hljómsveit í Hamra-
hlíðinni“ og Stuðmenn urðu til.
„Það átti nú bara að tjalda þessu
til einnar nætur en ég held að næt-
urnar skipti orðið þúsundum og ég
var nú ekki alltaf með.“
Hálfrar aldar afmæli Stuðmanna
er handan við hornið en Valgeir
talar þó um yfirvofandi hátíðarhöld
af því tilefni sem framtíðarmúsík
sem komi í kjölfar kórtónleika í
Langholtskirkju á laugardaginn.
Söngmusteri í Sólheimum
„Laugardag ur inn verður ansi
skrautlegur. Langholtskirkja er
mikið söngmusteri og þar eru held
ég vel á þriðja hundrað meðlimir í
sex kórum þar sem yngstu kórfélag-
arnir eru fjögurra ára,“ heldur Val-
geir áfram en lög hans verða ýmist
f lutt af aðskildum eða blönduðum
kórum í kirkjunni.
„Ég hef búið um sex ára skeið
á Eyrarbakka þar sem við Ásta
Kristrún, eiginkona mín, rekum
menningarhúsið Bakkastofu ásamt
af komendum,“ segir Valgeir sem
ætlar að þeytast milli Langholts-
kirkju og Hannesarholts með gítar-
inn á lofti í hressilegri kaupstaðar-
ferð þeirra hjóna þar sem seinni
tíma músíktilraunir hans munu fá
að njóta sín.
„Barnakórarnir verða með mér í
Langholtskirkju og það er nú alltaf
afskaplega fallegt form að heyra. Ég
syng með þeim og svo syngja þau
sjálf og ég hef nú verið að rifja upp
lög sem ég hef ekki sungið lengi. Ég á
svo að kynna eitthvað af þessu líka,
útskýra aðeins Spilverkið, Stuð-
menn, Hrekkjusvínin og svo von-
andi sjálfan mig.
Mærðarsteypa Jónasar
Að kirkjutónleikunum loknum
tekur Valgeir stefnuna á Hannesar-
holt þar sem hann frumflytur nýtt
lag sem hann samdi við Hraun í
Öxnadal, þekkt ljóð Hannesar Haf-
steins um Jónas Hallgrímsson.“
„Ég samdi lagið eftir pöntun með
eiginlega þeirri einu kvöð að það
yrði að vera við kvæði eftir Hannes
Hafstein,“ segir Valgeir en tilefnið er
sjö ára afmæli menningarhússins.
„Ég samdi þetta um um ára-
mótin og hékk dálítið yfir þessu
fullur metnaðar enda á Jónas allt
gott skilið. Hann samdi kvæði sem
byrjar á þessum tveimur línum:
„Þar sem háir hólar, hálfan dalinn
fylla“ og svo fer hann bara í ein-
hverja svona mærðarsteypu en
Hannes gerir þetta svo fallega og af
svo mikilli virðingu þótt hann hafi
náttúrlega verið karlmannlegt skáld
með af brigðum.“
„Ef veðrið er gott vonast ég til að
geta fengið eitthvað af krökkunum
úr kórnum til að koma og syngja
þetta en annars geri ég það bara
sjálfur með Völu, dóttur minni, og
okkar litla þriggja gítara bandi sem
við höfum verið að leika okkur með
við að taka lög eftir mig og Völu sem
er óskaplega slyngur lagasmiður.“
toti@frettabladid.is
Sálmastuðmaðurinn
leitaði músíkrótanna
Valgeir Guðjónsson leitaði músíkrótanna til að „afpoppa“ sig og
uppskar þá lög sem falla vel að kórsöng. Hann spáir ansi skraut-
legum laugardegi þegar lög hans munu óma í Langholtskirkju.
Valgeir vildi heiðra Hannes og Jónas með því að gera Hraun í Öxnadal söngvænna. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
4 . F E B R Ú A R 2 0 2 0 Þ R I Ð J U D A G U R22 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð