Fréttablaðið - 27.02.2020, Síða 2

Fréttablaðið - 27.02.2020, Síða 2
Þetta hefur heil- mikla þýðingu fyrir þau, að hafa eitthvað fyrir stafni í stað þess að hanga inni í klefa og bíða eftir að tíminn líði. Auður Guðmundsdóttir, verkstjóri Veður N - og NA, víða 10-18 m/s í dag. Él N- og A-lands, en bjart veður á Suður- og SV-landi. Frost 0 til 9 stig. Snjókoma með köflum við SSV-ströndina, annars úrkomu- lítið og kalt í veðri. SJÁ SÍÐU 22 Kötturinn sleginn út tunnunni Stuð og stemning var á Glerártorgi á Akureyri í gær þegar börn klædd upp sem hinar ýmsu kynjaverur slógu köttinn úr tunnunni á sjálfan ösku- dag. Löng hefð er fyrir tunnuslættinum í bænum en um er að ræða danskan sið sem barst hingað til lands á nítjándu öld. Þá var raunin þó sú að dauður köttur eða hrafn var í tunnunni en akureyrsku börnunum til mikillar gleði var tunnan í gær litrík og full af sælgæti. FRÉTTABLAÐIÐ/AUÐUNN FANGELSISMÁL Fangar á Hólms­ heiði hófu hönnun og framleiðslu á handverki í nóvember og verður brátt opnuð vefverslun þar sem afurðirnar verða seldar. Ber verk­ efnið heitið Fangaverk og er í umsjá Auðar Guðmundsdóttur verkstjóra. Á Hólmsheiði er pláss fyrir 56 fanga, bæði karla og konur, og Auður segir að í kringum 25 hafi verið virk í verkefninu. „Þetta hefur gengið mjög vel. Þau eru öll mjög hugmyndarík,“ segir Auður en í Fangaverki fá fangarnir útrás fyrir sköpunargleðina. Vörurnar eru af ýmsum toga, svo sem prjónaðar húfur, vasar, kerta­ stjakar, fjölnota bómullarskífur og pokar, óróar, koddaver, ofnhanskar, málverk og margt f leira. Allt hand­ málað og unnið á staðnum frá grunni. Íslensku fangelsin eru í auknum mæli farin að huga að umhverfis­ málum og endurnýtingu. Ber verkefnið sterkan keim af því. „Í steypuna notum við mjólkurfernur, skyrfernur og fleira sem við endur­ nýtum innandyra. Það er safnað í verkefnið á öllum göngunum hérna og öllum þykir svolítið vænt um þetta,“ segir Auður. Einnig hefur fangelsið fengið efni og föndurvörur frá fyrirtækjum. Samkvæmt Auði hefur fangelsinu á Hólmsheiði gengið frekar illa að fá verkefni fyrir fangana og þess vegna var farið af stað með handverkið. Að selja vörur beint úr fangelsinu. Hún segir miklu máli skipta að fangar séu virkir og eru þeir hvattir til að taka þátt. „Þetta hefur heilmikla þýðingu fyrir þau, að hafa eitthvað fyrir stafni í stað þess að hanga inni í klefa og bíða eftir að tíminn líði. Sjálfstraustið og sjálfsmyndin Opna vefverslun með handverksmuni fanga Koddaver, ofnhanskar og óróar eru meðal þess sem selja á í vefverslun með handverksmuni eftir fanga sem hefur verið undirbúin frá því í haust. Eflir sjálfsmynd og styrkir fanga fyrir endurkomu út í samfélagið, segir verkstjóri. eflist og þau fá tækifæri til að nýta hæfileikana,“ segir hún. Einnig að það hjálpi þeim þegar þau koma út í samfélagið aftur. Þó að vefverslunin sjálf sé ekki farin í loftið segir Auður að lítið mál sé að nálgast vörurnar strax og bendir áhugasömum á netfangið sitt audur@fangelsi.is. Hún geti einnig svarað spurningum um verk­ efnið og vörurnar. Fangelsið á Hólmsheiði var tekið í notkun árið 2016 og var áhersla lögð á mannúðlega hönnun við byggingu þess. Alls eru átta deildir í fangelsinu. Á Hólmsheiði er lang­ tímavistun fyrir konur og skamm­ tímavistun og gæsluvarðhald fyrir karla. Auk handverksins starfa fangar einnig við samsetningar, pökkun, viðhald og getað stundað nám. kristinnhaukur@frettabladid.is Handverksmunir fanga á Hólmsheiði bera ríkri hugmyndaauðgi þeirra vitni. SALTVATNSPOTTAR HEITIRPOTTAR.IS HÖFÐABAKKI 1 SÍMI 7772000 PLUG & PLAY HITAVEITUSKELJAR • Tilbúin til notkunar • Tengja 2 rör • Eyðir minna vatni HLAÐVARP Félagið Meðvitaðir for­ eldrar er hópur áhugafólks um virðingarríkt uppeldi. Það hefur starfað í um tvö ár og heldur nú úti hlaðvarpinu Virðing í uppeldi. „Þessi nálgun í uppeldi snýst um að nálgast hegðun og þroska barns­ ins af virðingu og setja sambandið við barnið í fyrsta sæti,“ segir Guð­ rún Birna le Sage, einn af félögum hópsins. „Þetta snýst um viðhorfs­ breytingu og að innleiða grunn­ gildin virðingu, traust og tengsl.“ Foreldramorgnar félagsins eru á Kaffi Laugalæk. „Smátt og smátt vatt vinnan upp á sig við undirbúning foreldramorgna og upp kom hug­ myndin um að vera með hlaðvarp,“ segir Guðrún Inga Torfadóttir. Þættirnir eru nú 25. Tekur nýjasti þátturinn fyrir Alfie Kohn og hug­ myndir hans um refsingar, verðlaun og skilyrðislaust uppeldi. Þátturinn er á Hlaðvarpi Frétta­ blaðsins, Spotify og iTunes. – atv / nánar á frettabladid.is Nýtt hlaðvarp um uppeldismál +PLÚS STJÓRNSÝSLA Samkvæmt nýju frum­ varpi dómsmálaráðherra er lagt til að mannanafnanefnd verði lögð niður í núverandi mynd. Helstu breytingar verða þær að felldar verða niður reglur um að eigin nöfn skuli geta tekið ís lenska eignar­ falls endingu eða unnið sér hefð í ís lensku máli. Einnig er fellt brott ákvæði um að nafn megi ekki brjóta í bága við ís lenskt mál kerfi og að það skuli ritað í sam ræmi við al mennar ritreglur ís lensks máls, nema hefð sé fyrir öðrum rit hætti þess. Þá er það ný mæli lagt til í frum varpinu að heimilt verði að taka upp ættar­ nöfn, en það hefur ekki verið laga­ lega heimilt frá lagasetningu 1925. Ei rík ur Rögn valds son, pró fess or emer it us í ís lenskri mál fræði við Há skóla Íslands, lýsir yfir stuðn­ ingi við frumvarpið, í umsögn sem birtist í samráðsgátt stjórnvalda. Í umsögninni bendir Eiríkur á að réttur manns til nafns sé mjög ríkur og því telji hann nauðsyn á auknu frelsi. Það muni ekki skaða íslenska tungu, að mati prófessorsins. Að hans mati eiga erlend manna­ nöfn þegar greiða leið inn í tungu­ málið og telur hann þau svo sér­ stakan og afmarkaðan hluta tungu­ málsins að ekki sé líklegt að þau hafi veruleg áhrif á aðra þætti þess. Að mati Eiríks er æskilegt að við­ halda þeirri menningarhefð að Íslendingar kenni sig við föður eða móður. „Hefðir eru lítils virði nema samfélagið þar sem þær gilda hafi áhuga á að halda í þær. Hefð sem þarf að viðhalda með lögum er ekki hefð – heldur nauðung,“ segir Eiríkur. – bþ Íslenskan þarf ekki á stífum reglum að halda Eiríkur Rögnvaldsson, prófessor. 2 7 . F E B R Ú A R 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.