Fréttablaðið - 27.02.2020, Blaðsíða 21
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Ásvaldur Andrésson
bifreiðasmiður,
Fannborg 8, Kópavogi,
er lést þann 13. febrúar á
Landspítalanum í Fossvogi, verður
jarðsunginn frá Kópavogskirkju, föstudaginn
28. febrúar kl. 15.00.
Erna María Jóhannsdóttir
Hanna S. Ásvaldsdóttir Gunnlaugur Helgason
Regína Ásvaldsdóttir Birgir Pálsson
Ragnhildur Ásvaldsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskulegur bróðir okkar og mágur,
Skúli G. Norðdahl
Úlfarsfelli,
lést á heimili sínu 18. febrúar sl.
Útför verður frá Lágafellskirkju í
Mosfellsbæ þann 4. mars kl. 15.
Ingibjörg Norðdahl Daníel Þórarinsson
Guðmundur G. Norðdahl Guðbjörg S. Birgisdóttir
Guðjón Norðdahl Auðbjörg Pálsdóttir
Elskuleg móðir okkar, tengdamamma,
amma og langamma,
Elsa Aðalsteinsdóttir
Engjavöllum 3, Hafnarfirði,
lést sunnudaginn 23. febrúar á
hjúkrunarheimilinu Sólvangi.
Útförin fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju
þriðjudaginn 10. mars kl. 13.00. Sérstakar þakkir til
starfsfólks Sólvangs fyrir góða umönnun og hlýju.
Árni Ingvarsson Helena Jensdóttir
Þórður Ingvarsson Anna María Bryde
ömmubörn og langömmubörn.
Við þökkum innilega auðsýnda samúð,
hlýjar kveðjur og kærleika við andlát
og útför okkar elskulega
Karls K. Berndsen
hárgreiðslu- og förðunarmeistara.
Einnig langar okkur að senda kærar
þakkir til starfsfólks Landspítalans, deild
11G/11E, starfsfólks hjúkrunarheimilisins Höfða, Akranesi,
og til starfsfólks hjúkrunarheimilisins Seltjarnar, með
þökk fyrir alúð og hlýju, sem þið sýnduð Kalla
í veikindunum.
Fyrir hönd fjölskyldunnar,
Ingibjörg Fríða Hafsteinsdóttir
Laufey og Ernst K. Berndsen
Okkar ástkæri,
Ástþór Runólfsson
húsasmíðameistari,
Þúfuseli 2,
lést sunnudaginn 2. febrúar.
Útför Ástþórs fer fram frá Seljakirkju
föstudaginn 28. febrúar klukkan 13.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem
vilja minnast hans er bent á Ljósið, endurhæfingu fyrir
krabbameinsgreinda.
Ingunn Jóna Óskarsdóttir
Hildur Ástþórsdóttir Jóhann Ólafur Jónsson
Guðmundur Már Ástþórsson Dagný Alda Steinsdóttir
Hlín Ástþórsdóttir Hrafnkell Marinósson
Hulda Ástþórsdóttir Aðalsteinn Guðmannsson
Runólfur Þór Ástþórsson Heiðrún Ólöf Jónsdóttir
Silja Ástþórsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Talan 24 kemur víða fyrir, bæði í tónlist og annars staðar. Það eru 24 tímar í sólarhringnum, en það eru einnig 24 tóntegundir, ef taldar eru bæði dúr og
moll,“ segir píanóleikarinn Hjörtur Ingvi
Jóhannsson sem spilar á einleikstón-
leikum undir yfirskriftinni 24 myndir í
Listasafni Reykjavíkur kl. 20 á morgun.
Tónleikarnir verða spunnir á staðnum
og verða lögin f lutt á píanó í öllum 24
tóntegundunum. Hjörtur leggur áherslu
á að tæma hugann á undan þannig að
tónlistin verði til á staðnum en byggist
ekki á áður ákveðinni áætlun.
Hjörtur er líklega best þekktur sem
meðlimur hljómsveitarinnar Hjaltalín
en hann hefur nýlega hafið að gefa út
lagabálkinn 24 myndir. „Ég spilaði á
sams konar tónleikum á Akureyri í
fyrrasumar sem var hluti af þessu verk-
efni,“ segir Hjörtur. „Þetta er eitthvað
sem ég ætla að hafa gegnumgangandi
svo það verða ekki bara þessir tónleikar.“
Fyrsta lagið úr lagabálkinum nefnist
Cascade og er komið á allar helstu veitur,
eins og Spotify. Hjörtur segir að lögin úr
lagabálkinum verði ekki flutt á tónleik-
unum en sum verði þó í sama anda. „Tón-
leikarnir verða 100 prósent spunnir en
þessi lög eru eitthvað sem ég er að vinna
í jafnt og þétt.“
Aðspurður um hugmyndina að verk-
efninu segir Hjörtur að hann skipti oft
um tóntegund til að fá nýjar hugmyndir.
„Ég tek oft nokkur lög í röð þegar ég er
að semja svo þetta kom eiginlega frekar
organískt út frá því,“ segir hann og bætir
við að í framtíðinni muni hann mögu-
lega fá einhverja með sér á svipaða tón-
leika.
Verkefnið er styrkt af launasjóði tón-
listarflytjenda og er miðaverð 2.000 kr.
(1.000 kr. fyrir eldri borgara, öryrkja og
námsmenn). arnatomas@frettabladid.is
Leikur af fingrum fram
Píanóleikarinn Hjörtur Ingvi Jóhannsson heldur einleikstónleika í Listasafni Reykja-
víkur á morgun undir yfirskriftinni 24 myndir. Tónleikarnir verða spunnir á staðnum.
Ástkær móðir okkar,
tengdamóðir og amma,
Agatha Ásta Erludóttir
lést á Heilbrigðisstofnun
Suðurnesja 26. janúar sl.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk
hinnar látnu. Sérstakar þakkir til starfsfólks
HSS fyrir góða umönnun.
Sigurbjörn Jón Árnason Bylgja Sjöfn Jónsdóttir
Jóhann Bachmann
Helga Árný Hreiðarsdóttir Kristján Karl Meekosha
Helena Ásta Hreiðarsdóttir Svavar Grétarsson
Hreiðar Ásberg Hreiðarsson
og barnabörn.
Okkar einstaki vinur og nágranni
Bjarni Sigurjón Erasmusson
verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni
föstudaginn 28. febrúar kl. 11.
Vinir.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Anna Margrét Jafetsdóttir
kennari, Dalbraut 16, Reykjavík,
lést á Landspítalanum þriðjudaginn
18. febrúar. Útförin fer fram frá
Laugarneskirkju, miðvikudaginn 4. mars klukkan 15.00.
Blóm og kransar afþökkuð en þeim sem vilja minnast
hennar er bent á Píeta samtökin og UNICEF.
Ari Hálfdanarson Guðbjörg Sesselja
Jónsdóttir
Finnbogi Rútur Hálfdanarson Guðrún Edda
Guðmundsdóttir
Guðmundur Hálfdanarson Þórunn Sigurðardóttir
Jóna Hálfdánardóttir Einar Már Guðmundsson
Guðrún Hálfdánardóttir Sigurður Árni Sigurðsson
Halldóra Hálfdánardóttir Hilmar Þór Karlsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginkona mín og móðir okkar,
Erla Kristín Svavarsdóttir
er látin.
Útförin fer fram í kyrrþey
að ósk hinnar látnu.
Sigríkur Smári Ragnarsson
Sveinn Ívar Sigríksson
Andri Sævar Sigríksson
Einar Sindri Sigríksson
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
Ardís Guðrún
Kristjánsdóttir
frá Heimabæ, Hvallátrum,
lést á Hrafnistu Hafnarfirði
laugardaginn 22. febrúar.
Útförin fer fram frá Garðakirkju föstudaginn
6. mars kl. 13.00.
Valtýr Eyjólfsson
Eyjólfur V. Valtýsson Ludene Valtýsson
Sigurður H. Valtýsson Siv E. Sæmundsdóttir
Bylgja Valtýsdóttir Jóhann Sigurþórsson
barnabörn og barnabarnabarn.
Hjörtur Ingvi mun spinna lög í öllum 24 tóntegundum. MYND/MAGNÚS ANDERSEN
Hjörtur Ingvi Jóhannsson
Hjörtur Ingvi Jóhannsson er fæddur
1987 og er ef til vill best þekktur sem
hljómborðsleikari hljómsveitarinnar
Hjaltalín. Hann er virkur píanóleikari,
tónskáld og útsetjari, auk þess að
kenna á píanó við MÍT. Þá hefur hann
unnið í leikhúsinu, en hann var til að
mynda tónlistarstjóri í Ronju ræn-
ingjadóttur í Þjóðleikhúsinu á síðasta
leikári. Hjörtur lærði djasspíanóleik í
Konservatoríinu í Amsterdam, þaðan
sem hann útskrifaðist 2015.
2 7 . F E B R Ú A R 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R20 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
TÍMAMÓT