Fréttablaðið - 27.02.2020, Side 11

Fréttablaðið - 27.02.2020, Side 11
Tindfjöll eru með fallegustu fjöllum á Íslandi en tveir hæstu tindar þessarar eldkeilu bera nöfn jötna; Ýmir, sem er 1462 m, og mun tilkomumeiri Ýma sem er 12 metrum lægri. Báðir tindarnir sjást víða að og minna á hvítklætt par sem ákvað að hittast löngu áður en stefnumótasíður eins og Tinder komu til sögunnar. Kuldalegt parið er aðskilið með skarði, sem úr fjarlægð líkist hengirúmi, en umhverfis það er 20 fer- kílómetra stór Tindfjallajökull og undir honum 5 km breið askja sem varð til við mikið sprengigos. Við rönd jökulsins er aragrúi tinda sem bera skemmtileg nöfn eins og Búri, Saxi, Haki, Hornklofi, Ásgrindur og loks þverhníptur Tindur (1251 m), sem fjöllin bera nafn sitt af. Norðaustan í jöklinum er síðan eldgígurinn Sindri. Upp á flest þessi fjöll príluðu Guðmundur frá Miðdal og fjallavinir hans sem byggðu þarna skála á fyrri hluta síðustu aldar en örnefnin skírskota flest til norrænnar goðafræði. Þannig var Ýmir fyrsti jötunn í heimi og allir jötnar frá honum komnir, en kýrin Auðhumla nærði hann með spenum sínum sem úr runnu fjórar mjólkurár. Barnabörn Ýmis hétu Óðinn, Vilji og Vé og sköpuðu þeir heiminn úr líkamsleifum hans, eftir að hafa ráðið honum bana. Bjuggu þeir til lönd úr holdinu, himin úr höfuðkúpunni, blóðið varð að sjó og stöðuvötnum, bein og tennur að fjöllum, heilinn að skýjum og hárið að skógi. Flestir ganga á Tindfjöll úr vestri og er ekið eftir tor- færum jeppavegi upp úr Fljótshlíð að nýuppgerðum Tindfjallaskála Ísalp í 800 m hæð. Snemma vors er efsti hluti vegarins þó ófær óbreyttum jeppum, vegna snjóa eða aurbleytu. Frá skálanum er haldið upp brekkur til austurs uns komið er í Skíðadal og síðan haldið áfram upp Búraskarð að jökulröndinni. Í fyrstu er jökullinn aflíðandi, en þegar komið er að rótum Ýmis er best að halda sig norðaustan við fjallið og þræða sig síðan eftir hrygg upp á hæsta tindinn. Þaðan er gríðarlegt útsýni, meðal annars að Eyja- fjallajökli, Vestmannaeyjum og Heklu. Í góðu veðri er tilvalið að ganga einnig á Ýmu, sem er mun brattari tindur, en af henni sést vel yfir Fjalla- bak og Laugaveginn en líka Mýrdalsjökul, Þórsmörk og Einhyrning. Ýmir og Ýma eru frábærar fjallaskíðaleiðir, en frá Tindfjalla- skála eru þetta 16 km fram og til baka. Á Sindra er hins vegar oftast gengið að norðanverðu, en jeppavegur liggur norðan Tindfjalla og er vinsæl fjallahjólaleið. Jötnar á jökladeiti Tindfjöll séð úr norðaustri af Fjallabaksleið syðri. Jötna­ parið Ými og Ýmu ber við himin efst á Tindfjallajökli. MYND/ÓMB Þótt Ýma sé ívið lægri en Ýmir er hún miklu tignarlegri tindur – en líka erfiðari uppgöngu. MYND/ÓMB Ýmir getur verið þungur á brún en Ýma sem er austar léttir honum lund. MYND/ÓMB Tómas Guðbjartsson hjartaskurð- læknir og náttúruunnandi og Ólafur Már Björnsson augnlæknir og ljósmyndari 2 7 . F E B R Ú A R 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R10 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.