Fréttablaðið - 27.02.2020, Page 13

Fréttablaðið - 27.02.2020, Page 13
Frá degi til dags Halldór Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is Má svo sem til sanns vegar færa að best sé að ríkisstjórn sem iðulega gerir meira ógagn en gagn sé sem aðgerða­ minnst. Handan hornsins bíða okkar önnur risastór verkefni sem þessari ríkisstjórn er ekki treyst­ andi fyrir. ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Helgi Magnússon FORSTJÓRI OG ÚTGEFANDI: Jóhanna Helga Viðarsdóttir RITSTJÓRI: Jón Þórisson jon@frettabladid.is, FRÉTTASTJÓRAR: Ari Brynjólfsson arib@frettabladid.is, Garðar Örn Úlfarsson gar@frettabladid.is MARKAÐURINN: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is FRÉTTABLAÐIÐ.IS: Kristjón Kormákur Guðjónsson kristjon@frettabladid.is. Fréttablaðið kemur út í 80.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is HELGARBLAÐ: Björk Eiðsdóttir bjork@frettabladid.is MENNING: Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is Auglýst var eftir ríkisstjórninni á Alþingi í vikunni. Það gerði sá athuguli þingmaður Viðreisnar Þorsteinn Víg­lundsson. Hann hafði tekið eftir því að ríkisstjórn sem áformaði að leggja fram 48 mál í janú ar og fe brú ar hefur einungis lagt fram fimm. Einhver myndi kalla þetta kulnun í starfi, hér áður fyrr hét þetta víst leti. Þingmaður Viðreisnar spurði hvort rík is stjórn­ in hefði lagt niður störf, eða kannski farið í langt vetrar frí. Hann vildi vita hvar hún væri niðurkomin. Svo heppilega vildi til að að minnsta kosti einn þing­ maður Sjálfstæðisflokks var á Alþingi, vinnustað sínum, þennan dag. Sá heitir Birgir Ármannsson og varð heldur stúrinn vegna þess að stjórnarandstöðu­ þingmaður hafði tekið eftir því hversu verklítil þessi ríkisstjórn raunverulega er. Birgir kom ríkisstjórn­ inni til varnar. Hann sagði að sú rík is stjórn væri ekki endilega best sem legði fram flest frum vörp og sam­ þykkti f lest mál. Má svo sem til sanns vegar færa að best sé að ríkisstjórn sem iðulega gerir meira ógagn en gagn sé sem aðgerðaminnst. Almenningur fær þá allavega frið fyrir henni á meðan. Það er þó ekki eins og ráðherrar ríkisstjórnarinnar fái ekki hugmyndir, þær eru bara svo oft ekki nægi­ lega góðar. Mikið væri nú gaman ef ráðherrar landsins myndu vakna einn morguninn, hugsa um fegurð landsins og mikilvægi náttúruverndar og heita sjálfum sér því að gerast talsmenn náttúrunnar og leggja sitt af mörkum í baráttunni fyrir verndun hennar. Enga Hvalárvirkjun á minni vakt, takk fyrir! En þannig vakna ráðherrar ekki, nema kannski umhverfisráðherrann velviljaði stutta stund, svona rétt áður en hann rankar við sér í hinum ískalda raunveruleika og man að hann er í ríkisstjórnarsam­ starfi með flokki virkjanasinna, Sjálfstæðisflokkn­ um, og öðrum flokki, Framsóknarflokki, þar sem orðið náttúruvernd hefur nákvæmlega ekkert vægi. Mikið væri líka gott ef dómsmálaráðherra landsins myndi svo vakna endurnærður og segja við sjálfan sig: Nú ætla ég að tala af einlægni máli þeirra for­ eldra sem hingað leita í neyð í von um að geta boðið börnum sínum nýtt og betra líf. Ég ætla að segja eins og Píratinn sagði á þingi á dögunum þegar hann mótmælti brottvísun íranska trans piltsins Mani: Dyflinnarreglugerðin, bla, bla, bla – og bæta síðan við: Breytum skipulaginu! Þetta mun ekki gerast. Hins vegar fékk nýsköpun­ arráðherrann hugmynd sem kynnt var í sömu viku og þingmaður Viðreisnar lýsti eftir ríkisstjórninni. Ráðherrann ætlar að leggja niður Nýsköpunarmið­ stöð Íslands og finna verkefnum innan hennar annan farveg. Þetta hljómar eins og hugmynd ráðherra sem hefur lítið við að vera. Er þetta virkilega brýnt hags­ munamál fyrir íslenska þjóð? Sjálfsagt útskýrir ráð­ herra nauðsyn þessa á þingi í löngu og staglkenndu máli, á þann hátt að enginn verður nokkru nær. Kannski er öllum fyrir bestu að þessi ríkisstjórn sé sem aðgerðaminnst. Hvar er ríkisstjórnin? Erum með mikið úrval af allskonar bílaverkfærum á frábæru verði! ViAir 12V loftdælur í miklu úvali. Hleðslutæki 12V 6A 6T Búkkar 605mm Par Jeppatjakkur 2.25t 52cm. Omega Viðgerðarkollur 4.995 9.999 17.995 7.495 Smáratorgi 1, 201 Kópavogi, sími 588 6090, vl@verkfaeralagerinn.is Mán.-fim. kl. 9-18, fös. kl. 9-18:30, lau. kl. 10-18, sun. kl. 12-17 Verkfæralagerinn Það kostaði blóð, svita og tár að komast til valda, sagði Bjarni Benediktsson eftirminni­lega í Silfrinu um helgina. Ólíkt Winston Churchill, sem sagðist ekkert geta boðið þjóð sinni nema blóð svita og tár, í viðleitni til að þjappa henni saman á ögurstundu, notaði for­ maður Sjálfstæðisflokksins þessi orð til að útskýra erfiðið sem stjórnarflokkarnir þurftu að leggja á sig til að komast í ríkisstjórn. Það réttlætti það, að hans mati, að halda þingkosningar eins seint og mögulegt er – þrátt fyrir að hefð sé fyrir vorkosningum á Íslandi og augljósum kostum þeirra. Nægir að nefna þann tíma sem tekur að semja vönduð fjárlög. Líklega er formaður Sjálfstæðisflokksins ekki bjart­ sýnn á úrslit næstu kosninga og það kemur ekkert á óvart að Sjálfstæðismenn vilji ríghalda í ráðherra­ stólana, nú þegar fálkanum er að fatast f lugið. Hvort sem kosið verður að vori eða hausti 2021 er mikilvægast að skipta um kúrs. Formenn stjórnar­ flokkanna sögðu ríkisstjórnina myndaða um póli­ tískan stöðugleika. Útkoman varð frekar pólitísk stöðnun. Þegar stjórnmálamenn tala um „blóð, svita og tár“ fer betur á því að það sé í þágu almannahagsmuna en ekki til að vorkenna sér yfir því hversu erfitt hafi verið að komast til valda. Verkefnin eru ærin. Við þurfum nú þegar að jafna lífskjör í landinu. Sjá til þess að fólk á lágum og meðal­ launum hafi meira öryggi og fjárhagslegt svigrúm í dýru landi. Minnka skerðingar og jaðarskatta. Til þess þarf ríkasta og eignamesta fólk landsins að leggja aðeins meira af mörkum. Handan hornsins bíða okkar önnur risastór verk­ efni sem þessari ríkisstjórn er ekki treystandi fyrir. Við verðum að horfast í augu við loftslagsvandann. Við verðum að mæta fyrirsjáanlegum þjóðfélags­ breytingum samfara nýrri tækni með stórsókn í menntun, rannsóknum og nýsköpun. Styðja við lítil fyrirtæki og skapa fjölbreytt störf. Verkefni næsta árs er að mynda ríkisstjórn um jöfnuð og framfarir. Samfylkingin er klár í slaginn. Blóð, sviti og tár Logi Einarsson formaður Sam- fylkingarinnar Jöfnuður og réttlæti Dómsmálaráðherra stefnir að því að leggja niður mannanafna- nefnd, hina miklu grýlu sem fylgt hefur þjóðinni í rúma öld. Loksins verður þjóðinni treyst fyrir að nefna börnin sín. Nú megum við heita Satan, Snati, Szczepa eða hvað sem við viljum. Sjálfsagt munu einhverjir spyrna við og reyna að kæfa og ófrægja frumvarpið. Sér í lagi fólk með ættarnöfn, bláblóðungar Íslands. Lengi hafa Thorsarar, Briemarar, Blöndalar og Thoroddsenar staðið varðstöðu um manna- nafnanefnd og einokun ættar- nafna. Ber því að fylgjast vel með Ingu Sæland, Kolbeini Proppé og Sigríði Andersen næstu vik- urnar. Hér er mesta jafnaðar- og réttlætismál sögunnar á ferðinni, því ef frumvarpið nær í gegn geta allir orðið ríkisbubbar. Óþægileg sóttkví Tíu Íslendingar eru fastir í sóttkví á lúxushóteli á Tenerife. Þúsund gestir eru á hótelinu og þegar hafa fjögur smit verið staðfest. Ætla mætti að mikil- vægt væri að takmarka samneyti hótelgesta eins og hægt er. En það virðist öðru nær. Miðað við frásögn Íslendings á hótel- inu flatmaga sumir gestir við hótelsundlaugina og borða svo saman í mötuneytinu. Vonandi taka landar vorir ytra upp stífa einangrunarstefnu, halda sig inni á sínum Egilshallar-herbergjum og freista þess að klára Netflix á næstu tólf dögum. kristinnhaukur@frettabladid.is 2 7 . F E B R Ú A R 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R12 S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð SKOÐUN

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.