Fréttablaðið - 27.02.2020, Síða 23

Fréttablaðið - 27.02.2020, Síða 23
S Í G I L D K Á P U B Ú Ð Skipholti 29b • Sími 551 4422 • www.laxdal.is Fylgið okkur á FB NÝ BASIC DRESS FRÁ GERRY WEBER – FALLEG HÖNNUN 10% kynningarafs láttur til 10. mars Óhætt er að fullyrða að Hildur sé fjölhæf leikhús-listakona. „Ég er sviðslista- kona, leikskáld, móðir og nú síðast leikmynda- og búningahönnuður í leiksýningunni Mæður sem er sýnd í Iðnó um þessar mundir.“ Þá er ýmislegt sem kveikir áhuga þessarar hæfileikaríku konu. „Ég hef mikinn áhuga á öllu sem við kemur listum, hönnun, tísku, barnauppeldi, sálfræði og heilsu.“ Hefurðu áhuga á tísku? „Já, en ég myndi ekki segja að ég fylgi öllum tískustraumum. Ég hef með tímanum skapað minn eigin stíl og er því síður móttækileg fyrir tískubylgjum. En skynditíska (e. fast fashion) gengur svolítið út á það að gera klæðnað úreltan með nýjum tískustraumum svo við finnum okkur knúin til að kaupa alltaf nýtt.“ Hvenær kviknaði sá áhugi? „Ég hef alltaf haft sterkar skoð- anir á því hverju ég klæðist. Sem barn á leikskóla tók ég ekki annað í mál en að ráða mínum klæðnaði sjálf. Ég var mjög mikið í umfangs- miklum ballkjólum í leikskólan- um. Ég gerði samning við mömmu, um að hún mætti ráða útifötunum og ég innifötunum. Seinna fór ég í uppreisn gegn kjólum og glingri og tók tímabil sem krakki þar sem ég klæddist köflóttum skyrtum og gallabuxum með stórri sylgju. Ég dýrkaði Ruth Reginalds þegar ég var barn og núna er Móeiður Ronja, sex ára dóttir mín, farin að hlusta mikið á barnaplöt- urnar hennar sem komu út 1976 og 1977. Ég fattaði um daginn að ég á næstum sama dress og Ruth er í framan á plötunni sem kom út ’77 en þar er hún með sixpensara, í hvítum smekkbuxum og opnum skóm með þykkum botni. Ég held að sú ljósmynd hafi haft djúp- stæð áhrif á mig, mér fannst hún svo óendanlega töff. Síðan þá má segja að ég hafi verið algjör sökker fyrir 70’s tísku, tónlist, litum, mynstrum og bara öllu sem við kemur áratugnum.“ Hvernig myndir þú lýsa stílnum þínum? „Afslappaður en á sama tíma stundum dramatískur. Mér finnst til dæmis gaman að raða saman ólíkum flíkum og klæði mig stundum eins og ég sé að fara að leika í tónlistarmyndbandi. En ég er eins og allir aðrir og klæði mig misjafnlega eftir því hvernig mér líður. Þar spilar tíðahringurinn líka stóran sess. Ef ég er í stórri hettupeysu og gallabuxum þá er ég líklega á um það bil degi 29.“ Eyðirðu miklu í föt? „Nei ekkert rosalega. Ég splæsi stöku sinnum í dýra f lík en ég kaupi að mestu notað og ódýrt. Ég hef lengi verið mikill grúskari og ég fagna nýjum verslunarháttum Íslendinga með tilkomu loppu- búðanna. Ég kaupi til dæmis nær ein- göngu notað á dætur mínar, sér- staklega þá yngri sem er að verða eins árs. Ég sjálf dýrka að fara á nytjamarkaði og róta og gramsa. Ég get gleymt mér í þannig grúski í marga klukkutíma. Ég hugsa að ég fái það sama út úr því og fólk fær andlega út úr því að fara í ræktina.“ Hjördís Erna Þorgeirsdóttir hjordiserna@frettabladid.is Hildur er hér í fötum sem hún segir minna sig á söngkonuna Ruth Reginalds. FRÉTTABLAÐIÐ/ VALLI Hildur reynir eftir fremsta megni að kaupa notuð föt fremur en ný. Framhald af forsíðu ➛ Netverslun www.belladonna.is ER FLUTT Á NETIÐ OG SAMEINAST BELLADONNA SKEIFUNNI 8 SÖMU GÓÐU VÖRURNAR OG ENN MEIRA TIL 2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 7 . F E B R ÚA R 2 0 2 0 F I M MT U DAG U R

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.