Fréttablaðið


Fréttablaðið - 27.02.2020, Qupperneq 25

Fréttablaðið - 27.02.2020, Qupperneq 25
Tyra Banks segir að Modelland sé staður til að fagna eigin einstöku fegurð. Sandra Guðrún Guðmundsdóttir sandragudrun@frettabladid.is Tyra Banks hefur hafið sölu á miðum í nýjan fyrirsætuskemmtigarð. MYND/GETTY Tyra Banks, sem er líklega þekktust í dag fyrir að vera þáttastjórnandi hinnar vin- sælu þáttaseríu America’s Next Top Model, mun opna garðinn þann 1. maí næstkomandi í Santa Monica í Kaliforníufylki í Banda- ríkjunum. Miðasala inn í garðinn hófst í vikunni. Samkvæmt lýsingu á vefsíðu Módelgarðsins mun fólk sem þangað kemur geta upplifað drauminn og verið fyrirsæta í einn dag. Það getur fengið ljósmyndir af sér teknar af fagmönnum sem draga fram það besta hjá öllum gestum. Hægt verður að ganga inn á svið þar sem gesturinn er þátt- takandi í tískusýningu. Það er sérstaklega tekið fram að allir óháð vaxtarlagi og útliti geti komið í garðinn og upplifað bestu útgáfuna af sjálfum sér. Þar segir að Tyra Banks sjálf muni gefa gestum ýmis ráð þegar þeir fá að stilla sér upp fyrir myndavélarnar. Fyrirsætan verður að vísu ekki á staðnum heldur gefur hún leið- beiningar á upptöku sem spiluð er fyrir gesti. Einnig fara gestirnir í gegnum einhvers konar ævin- týraveröld sem er drifin áfram af leikurum og dönsurum innan um stórkostlega hönnun. Gestirnir yfirgefa garðinn svo með mynda- bók með myndum sem teknar eru af þeim á meðan þeir upplifa ævin- týraheim fyrirsætunnar. Margir tískuspekúlantar vestan- hafs hafa velt fyrir sér hver tilgang- urinn sé með garði sem þessum og hver sé raunveruleg ástæða þess að fyrirsætan hrinti þessari hugmynd í framkvæmd. Er þetta hrein og bein græðgi, er ætlunin að hafa af fólki pening fyrir einhvers konar óljósa upplifun? Spurningum sem þessum hefur verið varpað fram. Miði inn garðinn er alls ekki ódýr og fólk hefur rætt og skrifað um að óljóst sé hvað nákvæmlega er inni- falið í verðinu. Almennt aðgangs- verð eru 59 Bandaríkjadollarar sem eru rúmlega 8.000 íslenskar krónur. Svo er hægt að kaupa ævintýraaðgang og draumaaðgang sem kosta heilar 208.000 krónur, dýrari miðinn, og tæpar 80.000 krónur ódýrari miðinn. Innifalið í dýrasta aðganginum er, ásamt því sem áður var talið, hárgreiðsla og förðun, aðgangur að tískufatnaði og VIP-sætum sem óljóst er hvað fela í sér, drykkir í boði hússins og fleira. Tyra sagði sjálf í viðtali að hana langaði einfaldlega að leyfa öllum að njóta sín í einn dag. Modelland væri staður til að fagna sinni eigin einstöku fegurð og elska sig sjálf þrátt fyrir eigin galla. Hún vill að allir geti upplifað sig fallega. Hvort fólk er tilbúið til þess fyrir rúmar 200.000 krónur á svo eftir að koma í ljós. Ævintýraland sem fagnar fegurðinni Fyrirsætan og frumkvöðullinn Tyra Banks hyggst opna skemmtigarð á næstunni undir nafninu Modelland en hann hefur verið í undirbúningi í næstum áratug. Kr. 5.530.- Str. 40/42-56/58 Fleiri litir Bæjarlind 6 • S. 554 7030 Við erum á Facebook túnikur 30% afsláttur fimmtudag-laugardags Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517 6460 • www.belladonna.is Verslunin Belladonna NETVERSLUN WWW.BELLADONNA.IS FLOTT FÖT, FYRIR FLOTTAR KONUR FRÉTTIR, FÓLK & MENNING á Hringbraut 4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 7 . F E B R ÚA R 2 0 2 0 F I M MT U DAG U R

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.