Fréttablaðið


Fréttablaðið - 27.02.2020, Qupperneq 35

Fréttablaðið - 27.02.2020, Qupperneq 35
LEIKHÚS Útsending Þjóðleikhúsið Höfundur leikrits: Lee Hall. Byggt á kvikmyndahandriti eftir Paddy Chayefsky Leikstjóri: Guðjón Davíð Karlsson Leikarar: Pálmi Gestsson, Birgitta Birgisdóttir, Þröstur Leó Gunn- arsson, Steinunn Ólína Þorsteins- dóttir, Hallgrímur Ólafsson, Ólafía Hrönn Jónsdóttir, Atli Rafn Sigurðarson, Sigurður Sigurjóns- son, Arndís Hrönn Egilsdóttir, Örn Árnason, Snæfríður Ingvarsdóttir, Arnar Jónsson, Edda Arnljóts- dóttir, Baldur Trausti Hreinsson, Hildur Vala Baldursdóttir og Gunn- ar Smári Jóhannesson Leikmynd: Egill Eðvarsson Búningar: Helga I. Stefánsdóttir Lýsing: Halldór Örn Óskarsson Tæknihönnun: Björn Helgason Tónlist: Eðvarð Egilsson Hljóðmynd: Aron Þór Arnarsson, Kristján Sigmundur Einarsson og Eðvarð Egilsson Myndbönd og grafík: Ólöf Erla Einarsdóttir Þýðing: Kristján Þórður Hrafnsson Fréttastofur eru jafnaðar við jörðu og hringleikahús byggð í staðinn. Forsetar eru kosnir með aðstoð áróðurssjónvar psstöðva. Spá- menn ljósvakans hræða líftóruna úr áhorfendum sínum á meðan þeir selja fæðubótarefni á heima- síðum sínum. Kynlíf og dauði selja auglýsingar. Áhorf skiptir öllu. Útsendingin er í beinni allan sólar- hringinn. Þetta er fjölmiðlafrum- skógur nútímans og hugmyndir sem eru tæklaðar í Útsendingu sem er leikstýrt af Guðjóni Davíð Karls- syni á Stóra sviði Þjóðleikhússins. Kveikir undir brjálseminni Kvikmyndin Network var frum- sýnd árið 1976 og margt hefur breyst í samfélaginu á síðustu 44 árum, sérstaklega hvað samfélags- miðla varðar, en mannskepnan er ávallt söm við sig. Kvikmyndahand- ritið var skrifað af Paddy Chayefsky en Lee Hall skrifaði aðlögun fyrir svið árið 2017, hann aðlagaði einn- ig Shakespeare verður ástfanginn. Á yfirborðinu snýr söguþráðurinn að uppgjöf, upphafningu og örlögum fréttaþularins Howards Beale en fjallar líka um umbreytingu frétta- f lutnings í heiminum síðustu ára- Dauðans skemmtun Hér vantar fjörið, tætinginn og orkuna, segir gagnrýnandi um Útsendingu. MYND/HÖRÐUR SVEINSSON Hvað? Hvenær? Hvar? Fimmtudagur hvar@frettabladid.is 27. FEBRÚAR 2020 Hvað? Tónleikar Hvenær? 12.00 Hvar? Fríkirkjan í Reykjavík Þórunn Elfa Stefánsdóttir sópran og Julian Hewlett píanóleikari f lytja bandarísk sönglög. Aðgangs- eyrir er 1.500 krónur (ekki er tekið við greiðslukortum). Hvað? Ráðstefna Hvenær? 13.00-17.00 Hvar? Hátíðarsalur Háskóla Íslands. Samtal um þjóðaröryggi: Fjöl- þáttaógnir. Ráðstefnan fer fram á ensku. Hvað? Myndlistarsýning Hvenær? 17.00 Hvar? Borgarbókasafnið | Menn- ingarhús Kringlunni Á sýningunni má sjá veggspjöld eftir Natka Klimowicz, sem hún hefur unnið á síðastliðnum árum. Wazy Lizard mun flytja lifandi tónlist við opnunina. Hvað? Inngrip – Myndlistarsýning Hvenær? 17.00 Hvar? Gallerí Grótta Sýning Sigurðar Magnússonar „Inngrip“. Veggspjald eftir Natka Klimowicz. tugina og hvaða áhrif þessar breyt- ingar hafa bæði á einstaklinga og samfélagið í heild sinni. Kristján Þórður Hrafnsson þýðir og hefur hann oft og tíðum verið ansi lunk- inn í sinni vinnu en er ekki nægilega lipur hér; samtöl hökta, orðaval er stirt og samskipti milli persóna ná sjaldan því hraða tempói sem til þarf. Ekki góður grunnur fyrir handrit sem byggir á snörpum til- svörum og stórum hugmyndum. Pálmi Gestsson leikur þulinn Howard Beale sem er annaðhvort á barmi taugaáfalls eða hefur nýlega fengið uppljómun um hinn heilaga sannleika, kannski hvort tveggja. Til að byrja með virðist Pálmi frekar lumpinn í sínum leik en logandi, jafnvel óöruggur í hlutverki sínu. Um miðbik sýningar kveikir Pálmi undir brjálseminni og sýnir hversu magnaður leikari hann getur verið. Þröstur Leó Gunnarsson er einn af hæfustu leikurum landsins en finnur sig aldrei í hlutverki Max. Sömuleiðis er metnaðarfulli dag- skrárgerðarstjórinn Díana, leikin af Birgittu Birgisdóttir, fremur einstrengingsleg og sjaldan sann- færandi. Steinunn Ólína fer á kostum Þessi óheilaga þrenning er umkringd aukapersónum sem eiga að dýpka heim verksins en þær virka frekar sem skammvinn skemmtun frekar en þrívíðar persónur. Atli Rafn Sigurðarson leikur hinn dólgs- lega Hackett og nær að spenna upp sínar senur en skilur lítið eftir sig. Hallgrímur Ólafsson á ágætis innkomur en áhorfendur kynn- ast persónunni lítið. Ólafía Hrönn Jónsdóttir og Edda Arnljótsdóttir sýna krafta sína í einstaka senum, þeirra hæfileika þarf að nýta miklu betur innan veggja Þjóðleikhússins. Fjöldi frambærilegra leikara fer með smærri hlutverk í sýningunni þar á meðal Sigurður Sigurjónsson, Örn Árnason, Snæfríður Ingvarsdóttir, Gunnar Smári Jóhannesson, Baldur Trausti Hreinsson og Arndís Egils- dóttir en yfirborðskennd leikstjórn, sem rædd verður frekar hér á eftir, heftir þeirra vinnu. Þó eru tveir leikarar í smærri hlutverkum sem verður að nefna sérstaklega. Steinunn Ólína Þor- steinsdóttir fer á kostum í hlutverki Louise, eiginkonu Max. Í einungis tveimur atriðum tekst henni að skapa eftirminnilega, heilsteypta og lifandi persónu. Eiginlega er óskiljanlegt af hverju í ósköpunum Max tekur þá ákvörðun að fara frá henni. Arnar Jónsson sýnir sömu- leiðis hvers hann er megnugur með tveimur þrumuræðum en atriðin hans eru ekki nægilega vel uppbyggð til að hann fái að njóta sín að fullu. Skortur á snerpu Handritið er uppfullt af hugmynd- um, ádeilu og húmor en hér vantar fjörið, tætinginn og orkuna sem fyrirfinnst í beinni útsendingu. Slíkt verður að skrifast á Guð- jón Davíð sem nær aldrei föstum tökum á efninu. Metnaðurinn er kannski til staðar en samleikur leikaranna á sviðinu er sjaldan dill- andi eða neistandi. Listræn nálgun hans er ekki nægilega afgerandi, uppbrotin í sýningunni virðast til- viljunarkennd og af þeim sökum skortir sýninguna snerpu. Að auki má nefna að hvergi í auglýsinga- efni Þjóðleikhússins birtist nafn Belgans Ivo van Hove, eins merki- legasta sviðsleikstjóra seinni tíma, eða hönnuðarins Jan Versweyveld sem komu að upphaflegu uppsetn- ingunni. Fagurfræði þeirra eimar af sviðinu en útfærslan er útvötnuð. Egill Eðvarðsson er happafengur fyrir sýninguna samt sem áður, enda einn reyndasti sjónvarps- maður landsins. Hann hólfar sýn- inguna fallega inn en samspil á milli hönnunar og leikstjórnar er ekki nægilega gott. Sérstaklega þakklátt er að sjá verk Andy Warhol af Eliza- beth Taylor í hlutverki Kleópötru á stofuvegg Arthur Jenssen, vísun í þær fimmtán frægðarmínútur sem Warhol sá fyrir. Björn Helgason sér um tæknihönnun sýningarinnar sem er stór í sniðum og f lókin en hefði mátt nýta betur í listrænni framkvæmd. Ólöf Erla Einarsdóttir sér um myndbönd og grafík sem leika stórt hlutverk í Útsendingu og njóta sín almennt vel, sérstaklega í senum Jensen, en þarf að virkja betur í heildartúlkuninni. Hljóðmynd og tónlist eru sömuleiðis ekki nægi- lega afgerandi. Verkefni Helgu I. Stefánsdóttur er ærið enda sér hún um að endurskapa fagurfræði sjötta áratugarins og gerir vel að mörgu leyti en því miður draga lit- ríkir búningarnir, sem og fjölmörg óþörf búningaskipti, fókusinn frá söguþræðinum. Saga fyrir okkar tíma Hvað gerist þegar fréttasnáparnir og spámenn samtímans heillast af áhorfendatölum og heilögum sann- leika sem selur grimmt? Nýlega svipti ung sjónvarpskona í Bret- landi sig lífi en hún hafði um árabil unnið í bresku sjónvarpi og nánast frá byrjun verið hundelt af gulu pressunni. Caroline Flack er ekki fyrsta né heldur, því miður, síðasta manneskjan sem er fórnað á altari áhorfsins og sorgleg áminning um eitraðan heim æsifréttamennsk- unnar. Útsending er svo sannar- lega saga fyrir okkar tíma, þar sem fjölmiðlar eru orðnir að hringleika- húsi skemmtunar, en þrátt fyrir ágæta frammistöðu leikaranna er úrvinnslan á þessu frábæra handriti gölluð og á endanum bitlaus. Sigríður Jónsdóttir NIÐURSTAÐA: Orkulítil sýning sem líður fyrir yfirborðskennda leikstjórn. Búningar www.hókuspókus.is Verslun og vefverslun Laugavegi 69 S. 551-7955 2 7 . F E B R Ú A R 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R26 M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð MENNING

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.