Fréttablaðið - 27.02.2020, Side 43

Fréttablaðið - 27.02.2020, Side 43
MAÐUR VEIT ALDREI VIÐ HVERJU MÁ BÚAST ÞEGAR VIÐ INGA DETT- UM Í SKÖPUNARGLEÐINA SAMAN.Harpa Einarsdóttir og I ng a Ma r ía Brynjarsdóttir eru tvær af 11 lista-m ö n n u m s e m verða með sam- sýningu í áhugaverðu rými í Brí- etartúni 11 næstkomandi laugar- dag. Hópurinn samanstendur af listamönnum úr mismunandi áttum, en þeir deila vinnustofum í Bríetartúni 13 sem er annað tveggja húsa sem áður hýstu WOW air við Höfðatorg. Harpa Einarsdóttir listakona, einnig þekkt sem Ziska, hefur lengi unnið við myndlist og tekið þátt í ýmsum skapandi verkefnum, meðal annars við leikhús og kvik- myndir. Hún er menntaður fata- hönnuður og býr til fatalínuna Myrka. Hún hefur unnið mikið með Hatara síðasta árið, ásamt bú ninga hönnuðinu m K a renu Briem. Harpa sýnir verk unnin með blandaðri tækni á sýningunni, verkin eru innblásin af bakteríum og vírusum sem verða að litríkum náttúruheimi í líkamanum. „Við Inga María höfum þekkst lengi og vorum áður með sameigin- lega vinnustofu í Komplexinum í Skipholti, þar sem margir skemmti- legir karakterar voru saman, meðal annars Goddur, Egill Sæbjörns og Ragnar Helgi rithöfundur. Það var mikill söknuður þegar húsinu var breytt í Bónusverslun því við eigum ófáar skemmtilegar minn- ingar af þessari skrautlegu lista- fjölskyldu og uppátækin voru ófá,“ segir Harpa. Hún segir vináttu þeirra Ingu litast af mikilli sköpunargleði. „Maður veit aldrei við hverju má búast þegar við Inga dettum í sköp- unargleðina saman, við héldum einu sinni listamaraþon þar sem við teiknuðum og máluðum allan daginn og fólk gat komið og keypt af okkur nýsköpuð verkin. Kvöldið endaði svo í búningapartíi, þegar við vorum tvær með akrýl, málaði ég Ingu alla túrkísbláa og ljósmynd- aði hana, úr því urðu bestu verk Samsýning í Bríetartúni Listamennirnir, Gunnar, Jódís, Marteinn, Inga María, Sigtryggur, Óli, Stefán, Harpa, Máney og Haraldur. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI Inga María er þekkt fyrir einstakar og súrrealískar dýralífsteikningar. Harpa Einars- dóttir er einnig þekkt undir listamanns- nafninu Ziska. Eftirtaldir listamenn taka þátt í samsýningunni: n Gunnar Gunnarsson n Guðjón Kristinsson n Haraldur Karlsson n Harpa Einarsdóttir n Inga Maria Brynjarsdóttir n Jódís Hlöðversdóttir n Marteinn Bjarnar Thordarson n Ólafur Th. Ólafsson n Sighvatur Andrésson n Stefán S. Hvítadal n Sverrir Kristjánsson Harpa og Inga María eru hluti af teymi 11 listamanna sem opna samsýningu á laugardaginn í gamla WOW air húsinu. kvöldsins,“ segir Harpa og hlær. Harpa tók við rúmgóðu stúdíói í Bríetartúni síðasta sumar. „Áður en leið á löngu var Inga mín komin til mín. Ég átti ekki von á að karlarnir hér á hæðinni, sá elsti hátt í áttrætt, yrðu svona miklir og góðir vinir okkar. Hvað þá að við myndum standa saman fyrir svona magnaðri sýningu í listrænni stjórn Bjarna Sigurbjörnssonar myndlist- armanns. Stefán S. Hvítadal er ein- stakur karakter og kallar sig meðal annars afa hundsins míns og dekrar hann út í eitt,“ segir Harpa. Inga María er þekkt fyrir einstak- ar, súrrealískar dýralífsteikningar, auk þess að vinna með fundin dýrahræ sem eiga það til að stuða fólk svolítið. Inga mun sýna teikn- ingar á sýningunni, stórar dýra- lífsteikningar og minni teikningar með brotnum eða ónýtum hlutum. „Undanfarið hef ég verið að ferðast reglulega til Grænlands með Hróknum og kennt þar í hjálparstarfi, ásamt því að vinna við hleðslu og stígagerð í náttúru Íslands, sem ég nýti einnig í sköpun minni,“ segir Inga. Sýningin er í Bríetartúni 11 og hefst á laugardaginn klukkan 17.00. Hún stendur til 15. mars. steingerdur@frettabladid.is 2 7 . F E B R Ú A R 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R34 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.