Fréttablaðið - 18.01.2020, Qupperneq 23
ÉG HRINGDI STRAX Í
PABBA MINN ÞEGAR ÉG
VAR KOMIN ÚT Í BÍL OG
SAGÐI HONUM AÐ NÚ
ÞYRFTI HANN AÐ VERA
DUGLEGUR FYRIR MÖMMU
OG FJÖLSKYLDUNA.
ÉG ÆTTI BARA EITT TIL
ÞRJÚ ÁR EFTIR ÓLIFUÐ.
Fyrirlestrar:
Erlendir ferðamenn á bílaleigubílum
og Hringvegurinn 2010-2018
Rögnvaldur Guðmundsson,
framkvæmdastjóri hjá Rannsóknum
og ráðgjöf ferðaþjónustunnar (RRF),
kynnir niðurstöður rannsókna RRF á
þróun umferðar erlendra ferðamanna
á bílaleigubílum á tíu stöðum við
Hringveginn á tímabilinu 2010 til 2018.
Áningarstaðir Vegagerðarinnar
Einar Pálsson forstöðumaður vega
þjónustu á þjónustusviði Vegagerðarinnar
fjallar um áningarstaði Vegagerðarinnar,
fjölda þeirra, aðstöðu, upplýsingaskilti
og áskoranir vegna aukins fjölda
ferðamanna.
Hvar stoppa ferðamenn?
Ferðamenn á þjóðvegum og áningarstaðir verða til umfjöllunar
á morgunverðarfundi Vegagerðarinnar í Hvammi á Grand Hótel
Reykjavík, þriðjudaginn 21. janúar klukkan 8.30 til 10. Allir eru
velkomnir. Skráningagjald er 2.500 krónur en innifalið er glæsilegt
morgunverðarhlaðborð frá klukkan 8 til 8.30.
Hvar vilja ferðamenn stoppa?
Sóley Jónasdóttir verkefnastjóri
á hönnunardeild Vegagerðarinnar segir
frá verkefni þar sem kortlagðir voru
staðir á og við Hringveginn þar sem
ferðamenn stoppa til myndatöku.
Af hverju Norðurstrandaleið?
Björn H. Reynisson verkefnastjóri hjá
Markaðsstofu Norðurlands fjallar um
hina nýju Norðurstrandaleið, tilurð
hennar, árangur og framtíðarsýn.
Fundarstjóri er G. Pétur Matthíasson
upplýsingafulltrúi Vegagerðarinnar.
ÖRYGGI
FRAMSÝNI
ÞJÓNUSTA
FAGMENNSKA
Skráning á tix.is
Fundinum verður streymt
á facebooksíðu Vegagerðarinnar.
Rögnvaldur
Einar
Sóley
BjörnG. Pétur
Morgunverðarfundur Vegagerðarinnar 21. janúar 2020
Hringvegur (1)
á Sólheimasandi
starfar hjá Marel. Þau eiga saman
fjögur börn á aldrinum 9 ára til 26
ára. Unu Mattý, Ágúst, Heklu Björk
og Bjarna Gunnar.
„Við reyndum að láta lífið ganga
sinn vanagang og auðvitað er það
erfitt. Una var að byrja í MR og Ági
að klára 10. bekk, Hekla var ellefu
ára gömul og nýbúin að eignast
lítinn bróður. Ég fókuseraði mikið
á Bjarna Gunnar enda var hann
ósjálf bjarga og ég vildi kynnast
honum. Maður missir auðvitað
stjórnina á eigin lífi og kraft til að
takast á við aðstæður um tíma. En
meðferðin gekk vel.“
Eitt til þrjú ár
Sirrý greindist fimm árum síðar á
svipuðum tíma, rétt fyrir jól. „Við
Jens vorum með planað matarboð
og fóturinn á mér bólgnaði upp.
Varð alveg fjórfaldur, ég hugsaði
með mér að þetta væri bara þreyta
og var í hálfgerðri afneitun. Ég hafði
hringt í Björn Zoëga sem alltaf hefur
reynst mér svo vel og hann skipaði
mér að fara strax á slysavarðstof-
una.“
Sirrý var eftir skoðunina sagt að
fara heim og koma og hitta lækninn
sinn strax daginn eftir. „Ég var enn
í afneitun, vildi ekki trúa því að ég
væri aftur orðin veik. Ég sagði meira
að segja við Jenna að hann þyrfti
ekki að koma með mér og fór ein til
læknisins.
Læknirinn spurði mig hvort
læknanemi mætti fylgjast með. Ég
sagði það allt í lagi og þá spurði hún
mig aftur, hvort ég væri alveg viss.
Þá vissi ég að ég myndi fá slæmar
fréttir, mér fannst samstundis eins
og ég minnkaði og að þær stækkuðu
fyrir framan mig.
Ég fékk að vita að krabbameinið
væri komið aftur og bólgan í fæt-
inum stafaði af þrýstingi á sogæða-
kerfið. Batalíkurnar væru erfiðar.
Ég spurði hvað ég ætti eftir að lifa
lengi. Það er galin spurning því
það er enginn sem veit það í raun
og veru. Og þú ert ekkert betur sett
með svör. Þau ræna þig valdi. Ég
fékk svarið; eitt til þrjú ár. Og það
var bara það eina sem ég heyrði.
Eitt til þrjú ár.
Útivistin gaf styrk
Ég hringdi strax í pabba minn þegar
ég var komin út í bíl og sagði honum
að nú þyrfti hann að vera duglegur
fyrir mömmu og fjölskylduna. Ég
ætti bara eitt til þrjú ár eftir ólifuð.
Hann fór að gráta í símann, litla
stelpan hans væri að deyja. Er þetta
svona slæmt? Spurði hann og ég
svaraði: Já, þetta er mjög slæmt. Ég
á bara eitt til þrjú ár eftir ólifuð. Ég
endurtók þetta hvað eftir annað og
það tók mig langan tíma að hætta
að segja þetta. Ég þurfti að breyta
þessari tölu í eitthvað annað. Brytja
hana niður og breyta henni í líf og
stundir.
Kannski er ég ekki enn búin að
losa mig við hræðsluna. En með
hverju ári sem hefur liðið og ég farið
fram úr líkunum hef ég öðlast meiri
trú á því að þetta verði allt í lagi. Og
ég trúi því mestmegnis, að þetta
verði bara allt í lagi. En auðvitað er
FRÉTTABLAÐIÐ.IS
frettabladid.is
er með
þér á EM!
Ekki missa af neinu, fylgdu
Fréttablaðinu á Facebook
frettabladid.is færir
landsmönnum
fréttir daglega frá
EM í handbolta!
23L A U G A R D A G U R 1 8 . J A N Ú A R 2 0 2 0