Fréttablaðið - 18.01.2020, Side 26
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og
umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit-
stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Hjördís Erna
Þorgeirsdóttir | hjordiserna@frettabladid.is s. 550 5767 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@
frettabladid.is s. 550 57686 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s.
550 5762 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768
Útgefandi:
Torg ehf
Ábyrgðarmaður:
Jóhanna Helga Viðarsdóttir
Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Atli
Bergmann, atli@frettabladid.is, s. 550 5657, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@
frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is,
s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103,
Í Hlíðarfjalli er sannkölluð skíðaparadís rétt við bæjar-dyr Akureyrar með frábærri
aðstöðu til skíða- og snjóbrettaiðk-
unar og í febrúar verður opnuð ný
og glæsileg skíðalyfta. Í Hlíðarfjalli
er starfræktur skíðaskóli fyrir fólk
á öllum aldri og hægt er að leigja
sér nýjan og góðan búnað, svo allir
geta komið og notið aðstöðunnar.
„Þetta er skíðasvæði allra lands-
manna, hingað kemur fólk víðs
vegar af landinu til að skemmta
sér á skíðum og snjóbrettum,“
segir Guðmundur Karl Jónsson,
forstöðumaður Hlíðarfjalls. „Alla
jafna er opið hjá okkur frá því í
desember og fram í lok apríl, en
það hafa reyndar verið svo mikil
læti í veðrinu að undanförnu að
í ár opnuðum við ekki fyrr en 19.
desember.“
Bylting í skíðamennsku
„Í Hlíðarfjalli er meiri fjölbreyti-
leiki í brekkum og meira snjó-
öryggi en víðast annars staðar,“
segir Guðmundur. „Við erum með
snjóframleiðslu til að tryggja að
það sé oftar nægur snjór í brekk-
unum okkar, sem gerir lífið léttara.
Við höfum líka verið að setja
upp nýja skíðalyftu. Hér var tog-
lyfta sem dró fólk upp á fjallið en
við höfum verið að vinna að því að
setja upp fjögurra sæta stólalyftu
sem fer bæði hærra upp í fjallið og
býr til skemmtilegri skíðaleiðir þar
sem hún endar,“ segir Guðmundur.
„Hún er komin upp en við erum
enn að klára að ganga frá henni og
ætlum að vígja hana 15. febrúar.
Þessi lyfta á eftir að vera bylting í
skíðamennsku landsmanna!“
Skóli og góð búnaðarleiga
„Í Hlíðarfjalli hefur líka verið
rekinn skíðaskóli fyrir börn og
fullorðna í yfir 20 ár, svo þar hefur
safnast upp mikil reynsla. Þangað
getur fólk komið og fengið kennslu
á skíði og snjóbretti,“ segir Guð-
mundur. „Kennsla fyrir börn fer
fram um helgar og á tyllidögum
og þá geta þau komið hingað
milli klukkan 10 og 14 og skíðað
og fengið pitsu í hádeginu. Þetta
er mjög vinsælt hjá krökkunum.
Fullorðnir geta aftur á móti fengið
einkakennslu hvenær sem þeim
hentar.
Svo erum við líka með stóra og
öfluga skíðaleigu fyrir fólk á öllum
aldri þar sem boðið er upp á mikið
úrval af skíðum og snjóbrettum.
Hún gerir það að verkum að það
er hægt að mæta bara og leigja
nýjan og góðan búnað,“ segir Guð-
mundur. „Það er því engin þörf á
að eiga búnað til að koma í Hlíðar-
fjall og prófa nýju lyftuna eða fá
smá kennslu.“
Mikið fjör í vetrarfríinu
„Vetrarfrí eru orðin fastur liður í
tilveru Íslendinga og það er mjög
algengt að fjölskyldur nýti þau
til að gera eitthvað saman,“ segir
Guðmundur. „Margir koma til
Akureyrar og fara á skíði í vetrar-
fríinu, enda hefur það marga kosti.
Hér er fjölbreytileiki í brekkum og
öflugur skíðaskóli og skíðaleiga
svo hér er tækifæri til að upplifa
útiveru og gera eitthvað skemmti-
legt með allri fjölskyldunni.
Auk þess er mikið um að vera á
Akureyri á vetrarfrístímabilinu,
sem er frá því seint í febrúar og
fram í byrjun mars. Það verða
tónleikar og listviðburðir og hér
er mjög mikil þjónusta, veitinga-
staðir og frábær sundlaug,“ segir
Guðmundur. „Það er því þægilegt
fyrir þá sem eru vanir þéttbýlis-
þjónustu að koma hingað og njóta
hennar en hafa um leið greiðan
aðgang að sveitinni.
Nýja skíðalyftan á eftir að lyfta
aðstöðunni í Hlíðarfjalli á nýtt
plan og það er alveg upplagt að
koma til Akureyrar í vetrarfríinu
og njóta frábærrar aðstöðu og
góðrar þjónustu í fjölskylduvænu
umhverfi,“ segir Guðmundur.
Guðmundur segir að nýja stólalyftan verði vígð 15. febrúar og hún eigi eftir
að vera bylting í skíðamennsku landsmanna. FRÉTTABLAÐIÐ/AUÐUNN
Í Hlíðarfjalli hefur verið skíðaskóli fyrir börn og fullorðna í yfir 20 ár.
Þangað getur fólk komið og lært á skíði og snjóbretti. FRÉTTABLAÐIÐ/AUÐUNN
Á skíðaleigunni er boðið er upp á mikið úrval af bæði skíðum og snjó-
brettum fyrir börn og fullorðna á öllum aldri. FRÉTTABLAÐIÐ/AUÐUNN
Guðmundur
segir að Hlíðar-
fjall bjóði upp
á mikinn
fjölbreytileika
í brekkum,
meira snjó-
öryggi en víða
annars staðar,
frábæran skíða-
skóla og leigu á
gæða skíða-
búnaði. FRÉTTA-
BLAÐIÐ/AUÐUNN
Við höfum verið að
vinna að því að
setja upp fjögurra sæta
stólalyftu sem fer bæði
hærra upp í fjallið og býr
til skemmtilegri skíða-
leiðir þar sem hún endar.
2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 8 . JA N ÚA R 2 0 2 0 L AU G A R DAG U R