Fréttablaðið - 18.01.2020, Blaðsíða 30

Fréttablaðið - 18.01.2020, Blaðsíða 30
Sandra Guðrún Guðmundsdóttir sandragudrun@frettabladid.is Að þessu sinni hlaut hún tilnefningu fyrir besta leik í aukahlutverki í kvik- myndinni Richard Jewell sem Clint Eastwood leikstýrði. Þetta er í þriðja sinn sem hún er tilnefnd fyrir besta leik í aukahlutverki en hún var einnig tilnefnd fyrir leik sinn í kvikmyndinni About Schmidt árið 2003 og Primary Colors árið 1999. Kathy sagði í nýlegu viðtali við The Guardian að tilnefningin í þetta sinn skipti hana miklu máli því hún vekti athygli á myndinni sem segir sögu sem hún vill að sem flestir heyri. Kvikmyndin Richard Jewell segir sanna sögu öryggis- varðarins Richards Jewell sem uppgötvar bakpoka með grun- samlegu innihaldi rétt hjá íþrótta- leikvangi á Ólympíuleikunum í Atlanta árið 1996. Öryggisvörður- inn tók enga áhættu og forðaði fólki frá bakpokanum rétt áður en hann sprakk. Í kjölfarið var Jewell grunaður um að hafa skipulagt verknaðinn og við tóku löng og ströng málaferli. Í kvikmyndinni fer Bates með hlutverk móður öryggisvarðarins, Bobi Jewell, sem mátti þola stöðugan ágang fjölmiðla í hátt í þrjá mánuði eftir atvikið en hún deildi íbúð með syni sínum. Kathy hitti Bobi löngu áður en tökur myndarinnar hófust. Hún segir í viðtalinu við The Guardian að það hafi verið augljóst að þessir atburðir höfðu enn gríðarleg áhrif á hana hátt í aldarfjórðungi eftir að þeir áttu sér stað. Hún sagði að þess vegna hefði það skipt hana öllu máli að skila hlutverki sínu vel og að Bobi upplifði að kvikmyndin hreinsaði mannorð sonar hennar. Kathy Bates er metnaðarfull leikkona sem leggur sig alla fram við að koma persónunum sem hún leikur vel til skila. Hún er líklega Metnaðarfull leikkona með hjartað á réttum stað Leikkonan Kathy Bates hefur hlotið fjölda verðlauna fyrir framúrskarandi leik í kvikmynd­ um og sjónvarpi. Á dögunum fékk hún sína fjórðu tilnefningu til Óskarsverðlauna en hún hreppti Óskarinn árið 1991 fyrir leik sinn í Misery, myndinni sem kom ferli hennar á skrið. Kathy Bates á fimmtíu ára feril að baki og hefur leikið margar ólíkar kvenpersónur. MYNDIR/GETTY Kathy Bates heldur hér á Óskarsstyttunni sem hún fékk fyrir hlutverk sitt í kvikmyndinni Misery árið 1991. Leikkonan er margverð- launuð. Hér heldur hún á Emmy-verð- launagrip fyrir leik í American Horror Story. Hlutverk Kathy Bates í Misery átti eftir að hafa mikil áhrif á feril hennar. einna þekktust fyrir hlutverk sitt í kvikmyndinni Misery en fyrir það hlutverk hlaut hún Óskarsverð- laun sem besta leikkona í aðal- hlutverki. Hlutverkið skilaði henni líka Golden Globe-verðlaunum auk nokkurra minni verðlauna og fjölda tilnefninga. Kathy segir að það hlutverk hafi virkilega komið kvikmyndaferli hennar á skrið en hún var 41 árs þegar kvikmyndin kom út. Hún talar einnig um það í viðtal- inu við The Guardian að í þá daga hafi ekki verið mikið um bitastæð hlutverk fyrir konur sem komnar voru yfir fertugt, en hún er þakklát framleiðendum sjónvarpsefnis í dag sem framleiða þætti með miklu fjölbreyttari hlutverk fyrir konur komnar yfir miðjan aldur en áður fyrr. Bates, sem er 71 árs í dag, segist fyrir löngu hafa sætt sig við að fá aldrei aðalhlutverkið í rómantískri mynd. Hún fékk mikla gagnrýni á yngri árum fyrir að vera ekki nógu falleg. Hún fékk oft mjög ljótar athugasemdir um útlit sitt sem hún segist hafa átt mjög erfitt með að hunsa í fyrstu. En í dag er hún stolt af því að skilja eftir sig fjöl- breytt hlutverk af áhugaverðum alvöru konum. FERMINGARGJAFIR Fimmtudaginn 15. mars gefur Fréttablaðið út bráðsniðugt aukablað sem innheldur ótal hugmyndir að fjölbreyttum fermingargjöfum. Allir sem hafa fermst vita að dagurinn og ekki síst gjarnar lifa í minningunni um aldur og ævi. Tryggðu þér gott auglýsingapláss í langmest lesna dagblaði landsins. Upplýsingar hjá auglýsingadeild Fréttablaðsins í síma 512 5402 eða sendu okkur póst á netfangið serblod@frettabladid.is Nán ri upplýsi ar um blaðið veitir Arnar Magnússon markaðsfulltrúi Fréttablaðsins Sími: 550-5652 / arnarm@frettabladid.is ENDURSKOÐUN OG BÓKHALD Sérblað Fréttablaðsins um Endurskoðun og bókhald kemur út miðvikudaginn 29. janúar Tryggðu þér gott auglýsingapláss í langmest lesna dagblaði landsins. 6 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 8 . JA N ÚA R 2 0 2 0 L AU G A R DAG U R
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.