Fréttablaðið - 04.12.2019, Blaðsíða 20
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og
umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit-
stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Hjördís Erna
Þorgeirsdóttir | hjordiserna@frettabladid.is s. 550 5767 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@
frettabladid.is s. 550 57686 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s.
550 5762 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768
Útgefandi:
Torg ehf
Ábyrgðarmaður:
Jóhanna Helga Viðarsdóttir
Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Atli
Bergmann, atli@frettabladid.is, s. 550 5657, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@
frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is,
s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103,
Það eiga allir skilið að sofa í frábærum rúmfötum úr allra bestu satín- og damaskefnum
sem framleidd eru,“ segir Björn Þór
Heiðdal, verslunarstjóri hjá Rúm-
föt.is sem er ný rúmfataverslun við
Nýbýlaveg 28 í Kópavogi.
Verslunin sérhæfir sig í hágæða
rúmfötum á góðu verði.
„Við seljum tilbúin rúmföt frá
Ítalíu, Þýskalandi og Kína en
flytjum einnig inn gæðaefni sem
við saumum úr dýrindis rúmfatnað
og erum með frábæra saumakonu,
Margréti Guðlaugsdóttur, sem
saumaði meðal annars fyrir þá
rómuðu rúmfataverslun Fatabúð-
ina á sínum tíma,“ upplýsir Björn.
Þvottahús A. Smith
Áhuga Björns fyrir rúmfötum má
rekja til Þvottahúss A. Smith sem
afi hans Adolf Smith stofnaði árið
1946.
„Ég hef unnið í þvottahúsinu og
meðhöndlað rúmföt og dúka frá
því ég man eftir mér,“ segir Björn.
„Mín fyrsta minning úr þvottahús-
inu er að hjálpa pabba að hrista upp
dúka og rúmföt. Ég man ekki hvað
ég var gamall, kannski fjögurra
eða fimm ára. Ég man líka eftir
því að hafa teiknað myndir inni á
kaffistofu sem ég gaf konunum sem
unnu hjá pabba. Ef þær voru góðar
fékk ég eina krónu að launum,“
segir Björn hugsi.
Ódýrasta heimilishjálpin
Í dag er rekstur Þvottahúss A.
Smith tvískiptur, eða eins og Bára
Magnúsdóttir verkstjóri orðar það:
„Nú fyrir jólin erum við á fullu að
þvo og strauja rúmföt og sparidúka
fyrir heimilin. Sama fólkið kemur
hingað aftur og aftur með dúkana
sína og rúmfötin og einhver hafði á
orði að þetta væri ódýrasta heim-
ilishjálpin,“ segir Bára.
Annar stór hluti af starfsemi
þvottahússins er leiga á dúkum og
þjónusta við veislusali.
„Við erum sennilega með bestu
og flottustu dúkana þegar kemur
að dúkaleigu í brúðkaupsveislur,
jólahlaðborð og almennt veislu- og
fundahald. Ég læt vefa dúkana sem
við leigjum í Króatíu og gæðin eru
frábær. Stærðirnar eru líka réttar og
dúkarnir okkar eru örlítið lengri en
þeir sem aðrir bjóða upp á,“ bætir
Björn við.
Rúmfatabúðin er einstök
Fyrir rétt rúmu ári opnaði Þvotta-
hús A. Smith, eins og áður segir,
glæsilega rúmfatabúð á Nýbýlavegi
28 í Kópavogi. Búðin nefnist Rúm-
föt.is og sérhæfir sig í vönduðum
damask- og satínrúmfötum sem
m.a. eru saumuð á staðnum.
„Segja má að Rúmföt.is sé arftaki
rúmfataverslananna Fatabúðar-
innar og Versins,“ upplýsir Björn.
„Samt ekki alveg, því við kaupum
líka inn dýrustu og flottustu
rúmfataefnin frá Ítalíu. Í fyrra
vorum við með sérofið 600 þráða
blómadamask í nokkrum litum og
í ár lét ég vefa fyrir mig 700 þráða
röndótt damask. Allt eru það
ótrúlega mjúk og vönduð efni sem
Magga saumakona saumar úr af
sinni alkunnu snilld.“
Spurður hvernig nafnið á
búðinni er tilkomið svarar Björn:
„Ég hreinlega rann út á tíma. Búðin
átti að heita eitthvað voða flott en
ég er í stjörnumerkinu voginni og
vogir eru víst óákveðnar og taka sér
langan tíma í allar ákvarðanir. Þess
vegna er þetta bráðarbirgðanafn
enn heitið á búðinni og svo er það
líka sniðugt fyrir útvarpsauglýs-
ingar,“ segir Björn brosandi.
Afmælistilboð fyrir jól
„Mér finnst alltaf gaman að gera vel
við fólk og fæ miklu meira út úr því
að fá ánægða viðskiptavini til mín
aftur og aftur en að telja peninga,“
segir Björn um leið og hann tekur
fram dásamlega mjúka dúnsæng og
bætir við: „Í tilefni þess að við erum
nýbyrjuð að selja æðislegar dún-
sængur fylgir dún- og fiðurkoddi,
að verðmæti 12.900 krónur, með
öllum seldum sængum fram að
jólum,“ segir Björn í jólaskapi.
Rúmföt.is er á Nýbýlavegi 28. Sími
565 1025. Opið frá klukkan 12 til
18 alla virka daga og frá klukkan 11
til 15 á laugardögum. Sjá nánar á
rumfot.is. Þvottahús A. Smith er í
Bergstaðastræti 52. Símí 551 7140.
Sjá nánar á dukar.is
Fagurrauður
og djúpblár
sængurfatnaður
setur heillandi og
jólalegan svip á
svefnherbergið.
Þá er ljúfur nætur-
svefn tryggður
á jólanótt þegar
hvílst er í rúm-
fötum úr hágæða
damaski og satíni
frá Rúmföt.is.
Stelpurnar í Þvottahúsi A. Smith að strauja jóladúka.
Ítölsk lúxus rúmföt saumuð af Möggu saumakonu.
Rúmföt.is selur sérofin lúxus damaskrúmföt frá Ítalíu.
Nýpressaðir dúkar sem biða eftir jólunum hjá Þvottahúsi A. Smith.
Í Rúmföt.is fæst glæsilegt úrval vandaðs rúmfatnaðar.
Framhald af forsíðu ➛
Hjá Rúmföt.is er að finna sængurfatnað úr hágæða satíni í miklu úrvali.
Mér finnst alltaf
gaman að gera vel
við fólk og fæ miklu
meira út úr því að fá
ánægða viðskiptavini til
mín aftur og aftur en að
telja peninga.
2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 4 . D E S E M B E R 2 0 1 9 M I ÐV I KU DAG U R